laugardagur, 16. maí 2026

Dagatal leikskólastarfsmannsins


Það er mikið talað um álag á leikskólastarfsmönnum í umræðunni. Þeir eru að sligast undan álagi unnvörpum og veikindaforföll þeirra eru 8%. 

Fram kemur í skýrslunni "Brúum umönnunarbilið" sem tekin var saman í Desember 2025 að fjöldi barna er að meðaltali 4 á starfsmann leikskóla á Íslandi á sama tíma og þau eru 5 í Noregi og 6 í Danmörku og Svíþjóð. (sjá hér bls. 26: https://www.stjornarradid.is/library/01--Frettatengt---myndir-og-skrar/FOR/Fylgiskjol-i-frett/Sk%C3%BDrsla%20a%C3%B0ger%C3%B0ah%C3%B3ps%20um%20br%C3%BAun%20um%C3%B6nnunarbilsins.pdf)

Opinberir starfsmenn á Íslandi eru með 30 daga í sumarfrí. Frá því þeir hefja störf á vinnumarkaði 18 ára eða hvað þeir eru gamlir. 30 daga. 

Þeir eru komnir með "styttingu vinnuvikunnar" sem er hægt að útfæra á ýmsa vegu en er t.d. útfærð eins og sést hér með því að gefa frí annan hvern föstudag. Það eru ca. 23 frídagar til viðbótar á ári. (Þar sem opinberir frídagar komu upp á þessum dögum þrisvar, tók ég út einhvern annan dag í staðinn eins og fram kemur þarna 9. apríl í stað 2. apríl, 14. maí í stað 1. maí og 30. des. í stað 25. des.)

Skráningardagar eru ekki opinberir frídagar allra starfsmanna en foreldrum er gert að skrá börn sín fyrirfram ef þeir vilja njóta vistunar fyrir þau þessa daga og greiða fyrir það sérstaklega. Þetta eru dagar þar sem grunnskólabörn eru í fríi og grunnskólakennarar þar af leiðandi í fríi. Þetta eru 7 - 9 dagar á ári eins og sjá má hér: https://reykjavik.is/skraningardagar-i-leikskola

Þá eru 6 starfsdagar í leikskólum á ári. Þá daga er lokað fyrir börnin en væntanlega mæta starfsmenn þá daga til að undirbúa starfið framundan. 

Þetta gera 182 vinnudaga fyrir starfsfólk leikskóla á ári ef starfsdagar og skráningardagar eru ekki taldir með. 

Hvernig ætli fjöldi orlofsdaga þeirra sem nota þessa þjónustu sé?
Hver ætli fjöldi vinnudaga sé hjá þeim á ári?
Hvert ætli álagið sé á þeim? 


Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Ævintýri tíunda áratugarins

Hjá ZIMSEN og síðar TVG-ZIMSEN tók ég þátt í mörgum ævintýrum Íslendinga á viðskiptasviðinu. Fyrst man ég eftir stóru verkefni þar sem íslen...