mánudagur, 11. mars 2019

Geymsla og vettvangur

Enn einu sinni er ég að færa skrif mín til.
Opnaði bloggsíðu haustið 2008 þegar hrunið varð í íslensku samfélagi og birti þar í bland nýjar greinar og gamlar allt fram til ársins 2013. Árið 2016 var þeirri bloggsíðu www.bloggar.is lokað og þá færði ég allt efnið yfir á opinbera síðu sem ég átti á Facebook frá framboði mínu til stjórnlagaþings. Ég hefði allt eins getað hent efninu þar sem Facebook er ekki rétti miðillinn til að halda utan um greinaskrif af þessum toga.

Hef lengi ætlað mér að færa efnið til að eiga það aðgengilegt einhvers staðar og geri nú loksins alvöru úr því og flyt það hingað á bloggsíðu Google. Geri það í trausti þess að þar geti þetta efni fengið að vera til frambúðar. Jafnframt verður þessi síða kannski vettvangur fyrir frekari skrif. Hver veit.

Ævintýri tíunda áratugarins

Hjá ZIMSEN og síðar TVG-ZIMSEN tók ég þátt í mörgum ævintýrum Íslendinga á viðskiptasviðinu. Fyrst man ég eftir stóru verkefni þar sem íslen...