Ég hallast að því að svo sé – að viðskiptafræðin sé kirkja. Kirkja þar sem Mammon er Guðinn.
Í morgun spurði ég Google hvernig við
skilgreinum kirkju. Svarið fékk ég „að kirkjan sé fyrst og fremst samfélag
trúaðra. Að orðið kirkja eigi sér rætur í gríska orðinu ekklesia, sem þýði
„samkoma“ eða „þeir sem kallaðir eru saman“.“
Wikipedia segir að „trúarbrögð séu trú á
yfirnáttúrulegar verur, guði eða dýrlinga ásamt siðfræði, venjum og jafnvel
stofnunum tengdum trúnni.“
Hvað segjum við þá? Er svo fjarri lagi að
segja að viðskiptafræði séu kirkja fremur en vísindi?
Við innleiddum hugmyndafræðina um að peningar
séu æðsta markmið alls í samfélagi manna. Það er eins og rauður þráður í gegnum
allar stjórnunarkenningar viðskiptafræðinnar.
Stjórnendur eiga að vera verðlaunaðir sem guðir.
Sú hugmyndafræði byggir ekki á vísindum. Engar rannsóknir styðja það að sífellt
hærri peningagreiðslur verði til þess að tryggja betri stjórnun. Að gera
stjórnandann að betri stjórnanda. Engar. Samt höldum við áfram að segja að
þetta sé hin eina rétta aðferð við stjórnun.
Þessi hugmynd gegnsýrir allt okkar íslenska
samfélag eins og önnur vestræn samfélög á 21. öld. Þessi hugmynd er grunnurinn
að öllu í samfélagi manna í nútímanum. Það þykir sjálfsagt að taka stjórnendur
út fyrir sviga í samfélagi manna og þeir eru guðir sem á að dýrka sem slíka.
Innleiðing þessarar hugmyndar eyðileggur svo
fyrirtækin okkar og samfélögin okkar. Smátt og smátt gerir hún það. Guðirnir
verða sífellt ríkari, ríkari og ríkari. Skeytingarleysi þeirra og áhugaleysi á
þörfum annarra eykst í réttu hlutfalli. Samanber
birtingarmyndin í norsku sjónvarpsþáttunum Exit. Þar eru aðalsöguhetjurnar
fullkomlega siðlausir, sjálfhverfir hrottar sem er skítsama um allt annað en
sjálfa sig – græðgi sína og greddu. Um það hverfist líf þeirra.
Fyrirtækin eiga sífellt minna til skiptanna
fyrir aðra. Útdeiling auðs sem gengur út á að verðlauna stjórnendur sem guði leiðir
til þess að stjórnunin þróast í þá átt að koma fram við fólkið á gólfinu sem
þræla.
Stjórnunin gengur út á talningar og mælingar.
Ekkert annað. Hvað náði starfsmaðurinn að svara mörgum símtölum? Hvað náði hann
að svara mörgum tölvupóstum/erindum í einhverjum formi? Engin dýpt. Engin
áhersla á hvað starfsmaðurinn sagði í samtölunum. Hvernig hann svaraði
erindunum. Áherslan engin á skilning eða innihald – bara fjölda. Stjórnun
nútímans gengur út á það. Að telja. Og að mæla.
Allir þættir fyrirtækisins eiga að snúast um
þá sem borga mest. Á Mammon. Aðrir þættir
eru mun neðar í forgangsröðinni. Starfsfólkinu er kennt að þannig sé
það. Mammon er guð. Hann er ráðandi afl – grundvallarþáttur sem allt innan
fyrirtækisins tekur mið af.
Smátt og smátt er starfsfólkinu innrætt að það
hefur ekki frelsi til að hafa skoðanir og það að gagnrýna er ekki litið
jákvæðum augum.
Starfsmenn fyrirtækisins „eiga að vera
jákvæðir“ og í því felst m.a. að gagnrýna ekki stjórnunina. Og almennt bara
vera jákvæðir gagnvart öllum hugmyndinum sem koma að ofan. Starfsmenn eiga líka
að láta sitt persónulega líf snúast um að vera jákvæðir í garð fyrirtækisins og
fyrirtækjarekstrar almennt. Þú gengst söfnuðinum á hönd og það er mikilvægt að
þú sért trúr söfnuðinum umfram allt annað.
Við í nútímanum höfum samþykkt ýmsa
samfélagsmiðla þar sem við látum æðstu guðunum – þessum í Kísildalnum í
Bandaríkjunum – eftir allar okkar persónulegu upplýsingar. Okkur finnst það í
fínu lagi. Við samþykkjum að þessar persónulegu upplýsingar okkar og skoðanir
sem við birtum þar, séu meðhöndlaðar af stjórnendum fyrirtækja og stofnana,
eins og þeim komi prófíll okkar við. Við veitum þeim heimild til að meta hæfni
okkar sem starfsmanna í stöður eftir því hvernig persónuleika við höfum sýnt á
þessum opinberu samfélagsmiðlum. Hvaða þætti við höfum „lækað“ o.s.frv. – allt
þetta skiptir máli þegar við erum komin undir mælikerið.
Æðsti presturinn í þessari kirkju forheimskunnar
var gerður að æðsta forystumanni hins vestræna heims í upphafi árs 2025. Við
vígslu í embætti var hann með æðstu prestana í Kísildalnum við hlið sér – þessa
sem stjórna öllu okkar daglega lífi og eru núna í því að endurforrita æskuna
þar sem þeir ætla mannkyninu að verða að meðfærilegum maurum – vinnudýrum í
maurabúi.
Við eigum öll að læra að stjórnast af þeirra
hugmyndum. Elon Musk, Jeff Bezos, Mark Zuckerberg. Þrír af ríkustu mönnum
heims. Þeir telja sig vera með svörin. Leiðandi einstaklingar í
tæknibyltingunni – samruna manns og vélar. Þeir létu ekki staðar numið þar –
þeir eru að leggja pólitíkina undir sig líka. Pólitík heimsins.
Og við látum okkur vel líka. Höldum áfram að
senda æskuna í skóla Mammons. Engin grein hefur notið viðlíka áhuga á Íslandi
síðustu áratugi og viðskiptafræðin. Hún er fagið með ákveðnum greini. Fagið sem
við öll berum óendanlega virðingu fyrir. Fagið sem við óskum börnunum okkar að
ganga til liðs við umfram allt annað.
Karlar í jakkafötum og nú eru konurnar að verða
jakkafötunum að bráð líka. Við sjáum sífellt fleiri konur kjósa að ganga í
þessum einkennisfatnaði kirkjunnar. Viðskiptafræði kirkjunnar.
Hvenær verður kominn tími á byltingu? Og þá
meina ég ekki kommúníska byltingu. Við höfum enga þörf fyrir úreltar,
heimskulegar útópíur sem fyrir löngu hefur sýnt sig að virka ekki í samfélagi
manna.
Hvenær verður komið að því að við sjáum
ljósið? Að það er ekki gott í samfélagi manna að ganga Mammoni á hönd. Það hefur
aldrei verið gott. Við þörfnumst hugsunarinnar. Við þörfnumst viskunnar. Við
þörfnumst hugrekkisins.
Við þörfnumst einstaklinga í þessum heimi sem
standa upp fyrir mennskuna. Hugsunina. Viskuna. Heimspekina. Peningar eru
verkfæri. Nauðsynlegt verkfæri í samfélagi manna en þeir eru ekki upphaf og
endir alls – hafa aldrei verið og eiga ekki að vera. Peningar næra ekki
manninn. Þeir eru kjörið verkfæri til að búa til svarthol endalausrar græðgi
sem ekkert fær fullnægt. Samanber fulltrúa forheimskunnar í forsæti æðsta
prestsins í Bandaríkjunum núna. Manns sem er fullkomlega heillum horfinn í
persónulegri græðgi sinni.
Við þörfnumst radda í almannarýmið sem
gagnrýna þessa kirkju. Radda sem segja okkur að það á að vera bil á milli
lýðræðisins og starfs á vinnumarkaði. Radda sem segja okkur að það er gott að
gagnrýna. Að það er hollt fyrir allar stofnanir – hvort heldur sem þær eru
opinberar eða einka. Að gagnrýni á samfélagið og forystumenn þess er holl.
Við þörfnumst radda sem tala fyrir aðgreiningu
viðskipta og stjórnmála. Það er forgangsmál. Þeir sem eru klárir í viðskiptum
eru ekki fólkið sem við eigum að upphefja í stöður stjórnmála. Það að hafa náð
árangri með hugmynd og gert hana að verðmætri vöru sem þú nærð að selja fyrir
formúu gerir þig ekki að æðsta presti sem allt veist. Aldeilis ekki. Þar liggur
villan.
Leyfum Elon Musk, Jeff Bezos og Mark
Zuckerberg að leika sér áfram í því sem þeir eru góðir í en verum þess meðvituð
að þeir eru ekki forystumenn mannkyns og eiga ekki að vera forystumenn
mannkyns. Trump ekki heldur. Sá síðastnefndi var upphafinn og gerður að
kandídat í embætti æðsta prests – af hverjum nákvæmlega? Hverjir voru það sem
fyrstir komu fram með hugmyndina og nærðu hana svo árum saman þar til hún varð
að veruleika?
Mannkynið þarf að átta sig á því að við höfum
enn einu sinni valið leið trúarbragðanna. Eins og við höfum alltaf gert. Það er
kominn tími til að beygja af leið.
Ekki með því að brjóta niður allt það sem við
höfum áunnið í gegnum aldirnar, heldur með því að nota það sem við eigum og
höfum alltaf átt – sjálfstæða gagnrýna hugsun. Við þurfum að brjótast undan
kirkjunni og trúarbrögðum hennar.
Þá mun okkur vel farnast. Við þurfum ekki
annað en taka upp þráðinn þar sem frá var horfið. Henda á haugana hugmyndinni um
að Mammon geti verið upphaf og endir alls í mannlegu samfélagi. Það er rangt og
við höfum alltaf vitað að það er rangt.

