fimmtudagur, 22. janúar 2026

Saga mín í Reykjavíkurborg

Ég flutti sextán ára gömul til Reykjavíkur til að hefja skólagöngu við Kvennaskólann í Reykjavík. Við vorum tvær sem leigðum saman herbergi við Flókagötu 1 þar sem við höfðum aðgang að eldhúsi og þvottahúsi ásamt fleiri leigjendum. Mér líkaði vel í höfuðborginni og hef hvergi annars staðar viljað búa allar götur síðan.

Ég var á leigumarkaði mörg fyrstu árin enda var ég með þá sannfæringu að ég ætlaði aldrei að eiga neitt. Ég veit ekki hvaðan þessi sannfæring kom en hún var mjög staðföst og hún varð til í mínu höfði. Þessi skoðun var mjög frábrugðin tíðarandanum og hún var sannarlega ekki í línu við afstöðu foreldra minna – langt í frá.

Við tölum um frumstæðan leigumarkað í Reykjavík núna en á þessum tíma var hann þó mun frumstæðari. Þeir sem leigðu út íbúðir voru tíðum einstaklingar sem sjálfir voru að koma sér fyrir á húsnæðismarkaði og leigðu út íbúðina í eitt ár til að safna fyrir útborgun. Trygging leigjanda var engin og viðhald á leiguíbúðum almennt ákaflega lélegt. Að líta svo á leigjendur hefðu „réttindi“ af einhverjum toga þekktist ekki. Leigjendur voru algjörlega upp á leigusala komnir og áttu engan rétt.

Sennilega hefur það verið 1985 sem ég var svo heppin að fá leigða litla 50 m2 íbúð í Hamrahlíð gegn því að ég þreif efri hæðirnar fyrir eigendurna og borgaði því sanngjarna leigu. Þetta var eins og vinna í happdrætti og þarna bjó ég í sjö ár, eða þar til ég flutti til Akureyrar 1992 vegna slæmrar stöðu leikskólamála í Reykjavík.

Þegar ég hafði búið á fjórum stöðum meðan dóttir mín var enn á leikskólaldri sá ég að við svo búið mátti ekki standa. Ég varð að láta af sérviskunni og kaupa íbúð – dóttur minnar vegna. Með aðstoð foreldra minna og á þeim skilmálum að yngsta systir mín, sem þá var að hefja menntaskólagöngu í Reykjavík, fengi að búa hjá mér, varð það úr að ég keypti íbúð á Laugateigi í Reykjavík og í Laugarneshverfinu bjuggum við mæðgur tæpa tvo áratugi.

Á þessum tíma, fyrstu árin mín í Reykjavík og langt fram eftir, var ég bíllaus. Það var önnur sannfæring sem ég hafði. Ég ætlaði aldrei að eiga bíl. Þetta var líka algjörlega á skjön við tíðarandann og ég hef enn síður hugmynd um hvaðan þessi meining kom. En hún var sterk – mjög sterk.

Ég notaði strætó. Sem á þessum árum var á 15 mínútna fresti á daginn en hálftíma fresti eftir klukkan sjö ef ég man rétt. Síðar, á meðan ég enn tók strætó, var hann á 20 mínútna fresti á daginn.

Þegar ég var enn með dóttur mína á leikskóla – sem nota bene var á leikskóla allan daginn þegar hún loksins fékk leikskólavist þriggja og hálfs árs – hljóp ég iðulega frá Stakkaborg við Bólstaðarhlíð til að ná Strætó niðri á Laugavegi og stundum hinkruðu bílstjórarnir þar eftir mér ef þeir urðu varir við að ég var á harðahlaupum ekki langt undan.

Skemmst er frá því að segja að þessi sannfæring mín um bíllausan lífsstíl  fékk að fjúka líka. Þegar ég loksins fór að keyra bíl í Reykjavík, orðin fertug, tók ég strax upp á því að keyra í vinnuna einhverja 500 m eða svo. Náttúrlega ekki fallegt til afspurnar en sannleikanum samkvæmt. Eftir að ég komst upp á lagið og lærði hversu þægilegt það er að komast á bíl á milli staða hef ég tekið upp þann ósið að keyra stuttar vegalengdir ef mér bíður svo við að horfa.

Þrjú systkina minna hins vegar eru mínar hetjur og fyrirmyndir þar sem þau nota rafhjól sem samgöngutæki allan ársins hring og skilja ekki hvernig fólk nennir að sitja fast í umferðarteppu tímunum saman á hverjum degi.

Ég hef búið í Reykjavík frá því áður en Davíð varð borgarstjóri. Ég var alin upp á mjög pólitísku heimili þar sem faðir minn og bræður hans kusu Framsóknarflokkinn. Ég fékk bullandi pólitískan áhuga í arf og fór að tjá mig um þau mál þegar ég var tíu ára ef mig misminnir ekki.

Fór þó ekki að tjá mig opinberlega um þau mál fyrr en 1992 þegar ég átti ár eftir í þrítugt, þá um leikskólamál. Mér var mjög misboðið yfir stöðu mála og skalf og titraði þegar ég afhenti greinina á Morgunblaðið árið 1991. Hún var reyndar ekki birt fyrr hálfu ári síðar, þegar ég var flutt til Akureyrar – einmitt vegna stöðu leikskólamála í Reykjavík.

Allar götur síðan hef ég tjáð mig um pólitík – hvort heldur munnlega eða með greinaskrifum. Í heimi viðskiptanna voru viðskiptavinir mínir margir hverjir Sjálfstæðismenn og þeir nutu þess að ræða við mig um pólitík.

Í Viðskiptaháskólanum á Bifröst fór ég tjá mig opinberlega með því að birta greinar árið 2002 – fyrst á Bifrastarvefnum og í kjölfarið á vef sem svokallaðir „kremlverjar“ stóðu fyrir – hópur hægri krata sem áttu það sameiginlegt að hafa áhuga á að Íslendingar skoðuðu aðild að Evrópusambandinu. Í þessum hópi voru m.a. Aðalsteinn Leifsson, meðframbjóðandi minn til forystu í prófkjöri, og Svanborg Sigmarsdóttir framkvæmdastjóri Viðreisnar.

Í framhaldi af því tjáði ég mig af og til á síðum blaðanna um hin ýmsu mál. Nokkrar þessara greina hef ég nú tekið saman í myndaalbúm á Fésbókarsíðu minni sem allir geta kynnt sér . Sömu greinar og miklu, miklu fleiri er svo að finna á bloggsíðu minni https://signysigurdar.blogspot.com/ en ég stofnaði hana einhvern tíma á síðasta áratug til að taka saman allar mínar greinar á einum stað.

Ég byrjaði að blogga haustið 2008 þegar hrunið reið yfir og ég var dugleg að tjá mig allt árið 2009 og fram á árið 2010. Það ár missti ég starfið sem ég hafði sinnt af ástríðufullum áhuga um fjögurra ára skeið sem forstöðumaður flutningasviðs SVÞ. Ég er enn í dag stolt af framlagi mínu til samgöngumálaflokksins þessi fjögur ár og veit að þar vann ég mikið gagn.

Síðan eru liðin fimmtán ár. Á þeim árum hef ég séð um rekstur ShopUSA, unnið hjá Smyril Line Cargo við sölu á flutningum, ferðast ein til Asíu, starfað við launaútreikninga hjá Reykjavíkurborg og nú síðast er ég sölumaður á hugbúnaði hjá Reglu.

Síðustu ár hef ég verið mjög upptekin af því að sjá um aldraða foreldra mína, og þekki orðið vel  það umhverfi sem aldraðir og fjölskykldur þeirra búa við. Ég er jafn pólitísk og ég hef alltaf verið – það breytist ekkert.

Með framboði mínu er ég að bjóða ykkur valkost. Get sagt að ég er forkur dugleg og ég vinn af heilindum að hverju því sem ég tek mér fyrir hendur. Ég á erindi.

Í stöfum mínum hef ég nálgast mál með því að kynna mér þau í þaula og leita lausna. Sakbendingar hafa aldrei vakið áhuga minn. Ég nálgast ekki mál með því að vera með eða á móti. Ég er ekki talsmaður töfralausna. Ég held að töfralausnir séu ekki til í mannlegu samfélagi.

Af hverju er ég að segja ykkur þetta? Af því að ég held að  okkur sé hollt að líta til baka. Það er hollt fyrir mig sem frambjóðanda að rifja upp hvernig það var að vera ung manneskja að koma undir sig fótunum. Ég man mjög vel hvað ég strax á þessum árum þráði greiðar almenningssamgöngur, að mér stæði til boða leiguhúsnæði þar sem ég greiddi sanngjarna leigu og gæti verið eins og lengi og mig lysti.Hvað ég þráði leikskólapláss fyrir dóttur mína allan daginn. Hvað ég þráði að geta haft áhrif til breytinga í þessari borg!

Tímarnir nú eru vissulega aðrir – en það sem breytist ekki í grundvallaratriðum eru þarfirnar. Fólk á mismunandi aldri hefur mismunandi þarfir.

Afstaða mín í grundvallaratriðum hefur ekki breyst. Ég vil enn að fólk hafi valkosti í húsnæðismálum, ég vil að fólki standi  greiðar almenningssamgöngur til boða og ég vil að ungum foreldrum gefist kostur á heilsdags leikskólaplássi. Þetta eru grunnstefin mín. Ég vil líka að farið sé vel með opinbert fé og geðþótti í stjórnsýsluákvörðunum og fílabeinsturnar eru eitur í mínum beinum.

Ég vil leggja mitt af mörkum í þágu borgarbúa.

 

sunnudagur, 18. janúar 2026

Hvað er ég að vilja upp á dekk?

Mér er engin launung á því að málefnið sem ýtir mér af stað í þessa vegferð eru leikskólamálin. Ég er komin fram á völlinn til að halda uppi skýrri afstöðu til hlutverks Reykjavíkurborgar í málefnum leikskóla og það er í grunninn ástæðan fyrir að ég er komin hingað. Í framboð til forystu Viðreisnar í Reykjavík.

Leikskólar eru ekki einasta vinnustaðir leikskólastjóra og leikskólakennara. Þeir eru umönnunarstofnanir barna frá því fæðingarorlofi lýkur og þar til grunnskólaganga hefst. Leikskólar hafa gríðarlegu hlutverki að gegna í lífi foreldra – hlutverki þar sem jafnrétti kynjanna er í forgrunni. Reykjavíkurborg  á, sem höfuðborg landsins, að hafa metnað til að standa undir því hlutverki af ábyrgð.

Það þarf enginn að velkjast í vafa um að fyrir mér  er þetta grundvallarmál. Í mínum huga er óboðlegt að Reykjavíkurborg líti svo á að það sé hennar hlutverk að búa til hvata til styttingar veru barna á leikskólum. Það er ekki hennar hlutverk og er einungis til þess fallið að senda mæðrum skömmina af því að hafa þarfir sem henta ekki stjórnendum leikskólans.

Ég geri mér fulla grein fyrir því að það er ekki til vinsælda fallið hjá leikskólakennurum og -stjórum að halda fram öðrum skoðunum en þeim hentar – en það verður þá bara að hafa það. Leikskólar eru ekki einkamál stjórnenda þeirra eða kennara. Leikskólar eru meðal grundvallarstofnana samfélagsins og eiga að skoðast í því ljósi.

Leikskólar eru ekki bara „skólar“ og fráleitt að halda því fram að svo sé. Leikskólar eru umönnunarstofnanir og það hlutverk skiptir ungar mæður öllu máli.

Frá upphafi kvennabaráttunnar var alveg ljóst að eitt helsta baráttumál hennar var heilsdagsvistun fyrir börn á leikskólum. Konur voru ekki feimnar við að halda þessari baráttu hátt á lofti og eiga ekki að vera það núna.

Reykjavíkurborg ber skyldur umfram önnur sveitarfélög og umræða í þá veru að borgin beri engar skyldur aðrar en gagnvart starfsfólkinu bendir til þess að stjórnendur borgarinnar hafi villst af leið. Stjórnendur borgarinnar bera ábyrgð gagnvart borgarbúum fyrst og fremst. Heilsdagsvistun fyrir börn á leikskólum er þjónusta sem Reykjavíkurborg á skilyrðislaust að bjóða upp á og hún þarf því að finna leiðir til þess að geta veitt þá þjónustu.

Ég býð mig fram til forystu í borginni fyrir stjórnmálaflokkinn Viðreisn til þess að tryggja að þessi máflutningur heyrist.

Að síðustu ætla ég að segja – og ég veit að leikskólakennarar og -stjórar vita það – að ég ber mikla virðingu fyrir þeim og þeirra sérfræðiþekkingu. Um það snýst málið ekki. Ég er sannfærð um að leikskólar Reykjavíkurborgar eru upp til hópa fyrirmyndarstofnanir og það sama á við um stjórnendur þeirra og starfsfólk. Það sem mér hugnast ekki er að leikskólakennarar sem stétt ætli sér að brjóta niður þessar stofnanir og gera störf sín sambærileg við störf grunnskólakennara. Það er kolröng afstaða og mun einungis leiða til þess að eyðileggja leikskólann sem stofnun og mun hafa alvarlegar afleiðingar fyrir jafnrétti kynjanna á Íslandi.

Borgin er risastór rekstrareining sem ber mikla ábyrgð gagnvart fjölda fólks. Hún er höfuðborgin okkar og á sem slík að hafa metnað til að vera í forystu um svo margt sem snertir okkur beint.

Ég geri leikskólamálin að umfjöllunarefni hér af því ég lít svo á að þau séu grundvallarmál sem borgin á að standa vörð um. Málefni sem hefur staðið hjarta mínu nærri alla tíð – mál sem varðar sjálfan grundvöllinn að því að ungar konur standi jafnfætis körlum á vinnumarkaði eftir fæðingu barns.

Sem frambjóðandi í kosningabaráttu um forystusæti í prófkjöri stjórnmálaflokks þarf ég að taka skýra afstöðu í mörgum málaflokkum en því verða ekki gerð skil í einni blaðagrein.

Ég er ekki frambjóðandi sem þykist hafa svör á reiðum höndum um hvaðeina. Því fer fjarri. Ég viðurkenni heilshugar að í málefnum sveitarfélagsins Reykjavíkurborgar á ég margt ólært. Ég á mér hinsvegar hugðarefni. Svið sem eru mér hugleiknari en önnur. Hér að ofan hef ég minnst eitt þeirra en þau eru miklu fleiri. Borg á stærð við Reykjavík er auðvitað samfélag – samfélag manna þar sem takast þarf á við allt sem við er að glíma í mannlegu samfélagi. Fólk, umferð, mannvirki, skipulag, samgöngur, velferð, stjórnsýslu og síðast en ekki síst samskipti við ríkisvaldið.

Ég býð mig fram og er hugleikið að fara sem best með peninga og mannafla borgarinnar. Að nálgast viðfangsefnin alltaf frá sjónarhóli notandans – borgarbúans. Ekki kerfisins. Í mínum huga á það að vera leiðarljós borgarfulltrúans. Það er mitt leiðarljós. Eins og málið með leikskólana horfir við mér hafa borgaryfirvöld kosið að gerast varðhundar kerfisins – ekki borgarbúa – og það hugnast mér ekki.

laugardagur, 17. janúar 2026

Að fara í framboð

Mig langar að vera í forystu framboðslista Viðreisnar til sveitarstjórnarkosninga í Reykjavík vorið 2026!

Að taka ákvörðun um að fara í framboð í forystu stjórnmálaflokks er ekki sjálfsagt. Ég lýg því ekki þegar ég segi að ákvörðunin um að gera það var tekin klukkan tvær mínútur í tólf á hádegi í gær, föstudaginn 16. janúar 2026. Það var eins og undirmeðvitundin tæki af mér ráðin og ýtti á „send“ á lyklaborðinu. Ég trúði því varla sjálf að ég hefði gert það – en ég gerði það og tilfinningin síðan er sú að ég er glöð með þá ákvörðun.

Síðan fyrir síðustu alþingiskosningar hefur búið um sig í mér þessi löngun til að láta slag standa og verða þátttakandi, í stað þess að vera alltaf á hliðarlínunni. Þrátt fyrir gríðarmikinn stjórnmálaáhuga var ég aldrei á þeim buxunum að verða beinn þátttakandi. Viðskiptalífið var minn staður – hélt ég.

Svo gerist eitthvað – eitthvað sem verður til þess að sá fræi í hausnum á manni í þá veru að kannski eigi maður heima á vettvangi. Á stjórnmálavettvangi. Og sú tilfinning ágerist og vex innra með manni. Ég hef samt ekki gert mikið af því að deila þeirri tilfinningu með öðrum, heldur haldið því fyrir sjálfa mig.

Alþingiskosningarnar síðasta haust fóru fram í lok nóvember og aðdragandinn var stuttur. Ég hafði lofað dóttur minni að passa dótturdæturnar – lífsblómin mín tvö – í síðustu viku nóvember og var því fjarri góðu gamni á lokasprettinum.

Í þeim kosningum bauð ég mig fram á lista í NV-kjördæmi – ef það væri eftirspurn lét ég vita af því að mig langaði til að vera með. Það var í fyrsta skipti sem ég gerði það – raunverulega, ekki bara til uppfyllingar. Í það skipti voru margir um hituna og eftirspurnin meiri en framboðið. Viðreisn fékk góða kosningu – kjörinn þingmann í hvert kjördæmi sem gladdi mig mjög.

Í haust, þegar Viðreisn bauð upp á fundi til að ákvarða hvernig skyldi raðað á lista, var ég eindreginn stuðningsmaður uppstillingar í öll sæti og talaði fyrir því á fundinum þar sem þau mál voru til umræðu. Niðurstaðan varð önnur. Niðurstaðan varð að bjóða upp á prófkjör í oddvitasæti.

Ég gældi strax við þá ákvörðun þá að gera þetta sem ég tók ákvörðun um í gær – að láta slag standa og gefa sjálfri mér þetta tækifæri. Ég ræddi það samt ekki við neinn, eins undarlega og það hljómar. Veit ekki af hverju.

Ég á fjölskyldu sem er öll mjög pólitísk og ég veit að ég get sótt til hennar stuðning. Þau komu mörg inn á Facebook í gær til að veita mér stuðning og mér þykir óendanlega vænt um það. Þegar ég tala um „fjölskyldu“ er ég að tala um Melafólkið – fjölskyldur 3ja bræðra sem bjuggu saman á Melum í Hrútafirði í mínum uppvexti – fólk sem er mér einstaklega kært og mér þykir svo undurvænt um.

Og svo er það auðvitað mín nánasta fjölskylda – bestu vinir mínir – systkini mín öll – maki minn og dóttir. Ég ræddi þessa ákvörðun ekki einu sinni við þau áður en hún var tekin. Ég veit það hljómar furðulega og það er stórundarlegt en þannig er það. Þetta var eitthvað sem ég þurfti að eiga við sjálfa mig og engan annan. Ég lét maka minn, dóttur og fjölskyldu vita fyrst í gær.

Það er áreiðanlega ekki besta veganestið þegar maður leggur í svona vegferð – að vera ekki búinn að undirbúa neitt eða gera neinar ráðstafanir um hvernig maður ætlar að fara að þessu – en það er samt svo í mínu tilfelli. Ég þurfti að gera þetta og ég þurfti að eiga ákvörðunina við sjálfa mig.

Hvernig ég ætla að fara að því að fá ykkur – fólk þarna úti – til að kjósa mig til forystu í 1. sæti Viðreisnar í Reykjavík – því um það snýst málið – á eftir að koma í ljós. Málið snýst um að ég er manneskja sem býð mig fram til forystu í stjórnmálaflokki sem mörg ykkar eru ekki einu sinni aðilar að.

Og ég er ekki enn farin að segja ykkur fyrir hvað ég stend. Af hverju ég vil upp á dekk í borgarmálunum.

Læt staðar numið hér – að sinni. Vildi  bara segja ykkur hvernig þessi ákvörðun var tekin. Það verður að duga í bili.

Minn innri maður tók af mér ráðin í gær og leiddi mig af stað í þessa vegferð. Hún verður stutt – einungis tvær vikur. Ég mun ekki leggja út í nein fjárútlát eða auglýsingaherferðir.

Ég þigg alla þá aðstoð sem hver og einn mögulega vill leggja fram í þágu míns framboðs. Ef þið hafið trú á mér og viljið leggja mér lið, megið þið svo gjarna gera það – ekki með peningum en með því að segja frá mér – þið sem þekkið til. Ef þið hafið trú á mér í þetta hlutverk megið þið hjálpa mér þannig að ná kosningu. Það er ekkert sem bannar það og ekkert hættulegt við það.

Málið snýst um að eftir tvær vikur – þann 31. janúar 2026 – munu félagsmenn í stjórnmálaflokknum Viðreisn kjósa sér forystumann til borgarstjórnar í Reykjavík í rafrænni kosningu. Við verðum fjögur, frambjóðendurnir í þeim kosningum, og eitt okkar mun sigra. Eitt okkar fjögurra mun standa uppi sem forystumaður Viðreisnar í Reykjavík að þeim kosningum loknum.

Ég geri mér engar grillur en löngunin er til staðar og ég er glöð með að hafa stigið þetta skref. Það er gott að standa með sjálfri sér.

föstudagur, 16. janúar 2026

Tilkynning um framboð í forystusæti Viðreisnar 31. jan. 2026

Ég, Signý Sigurðardóttir, býð mig fram í forystusæti Viðreisnar í Reykjavík í komandi sveitarstjórnarkosningum. Ég geri það vegna þess að mér finnst ég eiga erindi.

Ég hef brunnið fyrir stjórnmál í 50 ár. Að taka skýra afstöðu til mála hefur verið mín sérstaða alla tíð og mér segir svo hugur að það geti verið ágætt innlegg inn í pólitíska umræðu núna í aðdraganda sveitarstjórnakosninga árið 2026.

Ég er viðskiptafræðingur að mennt –  bóndadóttir alin upp í íslenskri sveit. Hef starfað í flutningum og í þjónustu við út- og innflytjendur meira og minna. Var beinn þátttakandi í þeim gríðarmiklu breytingum sem urðu á íslensku hagkerfi á tíunda áratug síðustu aldar og í upphafi þessarar. Fylgdist í forundran með gullæðinu í byrjun aldarinnar og síðan hruninu í kjölfarið. Hef alltaf haft gríðarlegan áhuga á stjórnmálum – ekki síst efnahagsmálum – og aldrei skilið almennilega að við Íslendingar teldum að við ættum umfram allt að halda í óbreytta stöðu. Hef verið sannfærður Evrópusambandssinni í a.m.k. 30 ár og byggi þá sannfæringu  á reynslu minni af alþjóðaviðskiptum.

Um fjögurra ára skeið, í aðdraganda og eftirmála hrunsins, var ég í forystu fyrir flutningagreinina á Íslandi sem forstöðumaður flutningasviðs SVÞ og átti mikil samskipti við ráðuneytin, stjórnsýslustofnanir og Alþingi. Þar barðist ég fyrir samgöngumálaflokkinn með oddi og egg og mér er til efs að sá málaflokkur hafi í annan tíma fengið aðra eins athygli.

Ég er forkur dugleg og kraftmikill einstaklingur sem læt til mín taka á hverjum þeim vettvangi sem ég starfa á og langar að gera það á vettvangi borgarmála. Fólk sem hefur starfað með mér veit að ég get flutt fjöll, ef það er það sem ég hyggst gera.

Líf mitt hefur ekki verið samfelld sigurganga – ég hef átt mín erfiðu tímabil sem ég lít nú svo á að styrki mig frekar en hitt.

Ég er áhugamaður um manneskjuna og manneskjuna í samfélaginu. Mér er annt um fólk og ég brenn fyrir stjórnmál. Ég veit að stjórnmál skipta máli. Ég trúi að skýr afstaða skipti máli og ég þori, get og vil!

miðvikudagur, 24. desember 2025

Hugleiðing á jólum

Á dögunum horfði ég á myndina The Boat That Rocked á RÚV. Ég elska þessa mynd – hún gerir mig alltaf svo glaða. Tíminn sem hún lýsir er svo ólíkur tímanum sem við lifum á nú og ég kann svo rosalega miklu betur við hann en þennan ferkantaða nútíma. Það er mín trú að við hefðum rosalega gott af svolitlu rokki núna. Svolítilli óhlýðni. Óþekkt. Ég væri til í að unga fólkið okkar væri óhlýðnara, óþekkara. Í stað þess að samsama sig hægri öfgamönnum væri ég til í hippa. Fleiri sem gæfu skít í að leggja allt sitt í að vera sætir á samfélagsmiðlum. Mikið rosalega held ég að það myndi gera okkar tímum gott. Okkur öllum. 

Hér í Svíþjóð þar sem ég er stödd með dóttur, tengdasyni og dótturdætrum horfði ég á dögunum á jóladagatalið um Randalín og Munda – dásamlegt sjónvarpsefni sem á það sammerkt með bíómyndinni sem ég nefndi hér að ofan að vera undursamlega fyndin. Fullorðna fólkið allt saman fullkomlega sjálfhverft með hausinn uppi í eigin rassi – svolítið eins og við erum í nútímanum. 

Að síðustu horfði ég á jóladagatalið um Snæholt – fyrstu útgáfuna. Dásamleg áminning um hvað það er sem skiptir máli. Við vitum það í raun öll innst inni. Við vitum að það er gott að vera þar sem við megum vera þau sem við erum. Að það er frelsi til þess að vera sá sem maður er sem býr til gott samfélag. Samfélag gleði þar sem okkur líður vel. 

Við vitum það öll að kærleikurinn er það eina sem skiptir máli og að stjórnlyndi er vont. 

Samfélag þar sem við erum rænd gleðinni er vont samfélag þar sem illt er að eiga heima. Gleði er mælikvarði á líðan mannsins.

Í lok síðasta árs las ég tvær bækur sem höfðu mikil áhrif á mig – bækur sem ég setti í jólapakka til margra sem mér þykir vænt um: Mennska eftir Bjarna Snæbjörnsson og Konan sem í mér býr eftir Britney Spears. 

Sú fyrri, Mennska, fjallar um samfélag sem kennir ungum manni frá fyrstu tíð að hann sé ekki eins og hann eigi að vera. Sögumaður er næmur einstaklingur sem nemur sterkt þau skilaboð sem hann fær frá barnæsku og það hefur gríðarleg áhrif á hann. Þau áhrif að hann þróar með sér sjálfshatur sem hann áttar sig ekki á fyrr en hann er orðinn fullorðinn. Á sama tíma er hann einstaklega ástríkur einstaklingur sem þykir vænt um allt og alla – það skynjar maður sterkt frá hverri blaðsíðu. Þessa bók mundi ég vilja að við fengjum ungt í skólum landsins til að lesa og ræða. Einstök bók sem lýsir með skýrum hætti andlegri baráttu einstaklings sem er öðruvísi gerður en þorpið þar sem hann býr í samþykkir. Hann veit það þó ekki sjálfur. Hefur ekki hugmynd um að hann sé öðruvísi – áttar sig ekki á því fyrr en hann er kominn á fullorðinsár – svo sterk áhrif hafði þorpið á hann. Þorpið þar sem hann á heima gæti verið hvar sem er í heiminum. Í Rússlandi. Bandaríkjunum. Þýskalandi. Litháen. Albaníu. Ítalíu. Hvar sem er.  

Hin bókin, Konan sem í mér býr, eftir Britney Spears, lýsir þeirri hræðilegu reynslu þegar stjórnun sjálfsins er fullkomlega yfirtekin af öðrum einstaklingi. Þessi hæfileikaríka og klára unga kona þurfti að þola helvíti af hálfu föður síns í vel á annan áratug áður en hún losnaði undan valdstjórnun hans. 

Þetta gerist í Bandaríkjunum – ríkinu sem við höfum lært að tengja við einstaklingsfrelsið. Það sviptir þessa heimsfrægu og hæfileikaríku ungu konu sjálfræði og veitir föður hennar valdið yfir henni. Skelfileg en holl lesning sem fyllir mann ólýsanlegri reiði og réttlætiskennd. 

Af hverju er ég að segja frá þessu hér? Á Þorláksmessu árið 2025. Ég er að því vegna þess að ég hræðist þá þróun sem á sér stað í samfélaginu sem ég bý í. Í heiminum allt um kring. Ég hræðist það að fólk aðhyllist stjórnlynda brjálæðinga sem vilja ráða því hverjir mega vera til og hverjir ekki. Brjálæðinga sem vilja að konur séu sætar heimavinnandi húsmæður og karlar snyrtilega klipptir í jakkafötum. Brjálæðinga sem vilja færa heiminn aftur á bak í öllu tilliti þangað sem hvíti karlinn er við stjórnvölinn. 

Mig langar ekki þangað. Charlie Kirk og Snorri Másson voru ekki og eru ekki handhafar kærleikans og þar með ekki boðskapar Jesú Krists þótt þeir stæri sig af því að standa vörð um „kristileg gildi“. 

Mig langar í heim þar sem við fáum öll að vera eins og við erum. Heim eins og íslenska kirkjan auglýsir núna. Heim eins og Jesús Kristur boðaði. Heim þar sem við erum öll jöfn. Heim umburðarlyndis. Heim kærleika. 

Fæðingarhátíð frelsarans – hátíð ljóssins – fer í hönd. Jesús Kristur hefur alltaf verið boðberi kærleikans í mínum huga og verður alltaf. 

Gleðileg jól og hafið það sem allra best yfir hátíðarnar og á nýju ári!


sunnudagur, 14. desember 2025

Testósterón og þjóðernisrembingur

Testósterón og þjóðernisrembingur er einhver versta blanda sem ég veit. Íslensk stjórnmál í mínum uppvexti voru uppfull af hvoru tveggja. Testósteróni og þjóðernisrembingi. Það var alveg sama hvort stjórnmálakarlarnir voru vinstra eða hægra megin í pólitík – þeir voru uppfullir af rembu alla daga. Það var eitt það fyrsta sem ég lærði um stjórnmál að fá óbeit á þessum þætti í fari íslenskra stjórnmálakarla. Þannig er ég enn.

Fátt á ég erfiðara með að þola en þennan rembing – stöðuga rembing þar sem íslenskir karlar halda að þeir séu miklu betur gerðir til allra hluta en karlar annars staðar. Sömu menn halda því á lofti að Íslendingar séu svo miklu klárari og betri en aðrir. Þetta er svo óskaplega þreytandi viðhorf. Yfirlæti og sjálfsupphafning.

Íslendingar geta verið ágætir en þeir geta líka verið gjörsamlega óþolandi á stundum og við mættum svo gjarna við smáskammti af auðmýkt og lítillæti alla jafna. Það mundi gera okkur gott.

Ég hef oft velt því fyrir mér hverju þetta sæti. Hvernig stendur á því að Íslendingar sem voru bláfátækir fyrir aðeins 100 árum, láta alltaf eins og þeir séu vitrari og klárari en allir aðrir? Hvaðan kemur þessi oflátungsháttur? Svarið hef ég auðvitað ekki en líklega liggur það í því hvað þjóðin er ung - að Íslendingar séu eins og unglingar, oft – með lítið sjálfstraust undir niðri en temji sér oflátungshátt út á við.

Því geri ég þessa þætti að umfjöllunarefni dagsins að mér sýnist sem þetta tvennt sé að yfirtaka heiminn – testósterón og þjóðernisrembingur – og það er vont. Vont fyrir okkur öll sem byggjum þennan heim. Oflátungsháttur.

Donald Trump og hans kónar. Nigel Farage sem ég les núna að sé kominn í forystu fyrir stærsta stjórnmálaflokki Bretlands, Sigmundur Davíð. Allt eru þetta karlar fullir af rembingi. Rembingi sem segir að þeir séu svo miklu betri en annan fólk. Þeirra húðlitur, þeirra kyn, þeirra þjóðir eru svo miklu betur gerðar en allar aðrar. Það er ekki þannig. Bandaríkjamenn, Bretar eða Íslendingar eru ekki best gefna fólk sem uppi hefur verið. Það hefur hins vegar aldrei verið skortur á yfirlæti hjá þessum þjóðum. Rembingi.

Ég var 25 ára þegar ég hóf störf í alþjóðlegum viðskiptum. Ég lærði fljótt að Íslendingar voru ekki sérfræðingar á neinu þeirra sviða sem ég starfaði innan. Samt létu þeir alltaf þannig. Karlarnir. Þeir létu eins og þeir vissu allt best.

Íslendingar þróuðu viðskipti í fullkomlega spilltu umhverfi. Helmingaskiptum Sambandsins og íhaldssins. Við sem ólumst upp á síðari hluta tuttugustu aldar á Íslandi vissum öll að viðskipti byggðu miklu fremur á stjórnmáskoðunum fólks en nokkru öðru. Aðild Íslands að evrópska efnahagssvæðinu árið 1994 gjörbreytti öllu. Og stofnun Bónuss í lok níunda áratugarins.

Að vera þátttakandi í þeim gríðarlegu breytingum sem urðu á alþjóðlegu viðskiptaumhverfi á tíunda áratug síðustu aldar og í byrjun þessarar með upptöku innri markaðarins í Evrópu 1. janúar 1993, evrópska efnahagssvæðinu 1. janúar 1994 og síðast en ekki síst upptöku evrunnar, gerði mig að sannfærðum Evrópusambandssinna sem ekkert fær haggað.

Í störfum mínum átti ég í viðskiptum við Evrópska markaðinn áður en innri markaðurinn tók gildi. Ég upplifði breytinguna. Þessa gríðarlega breytingu sem varð við að markaðurinn varð einn í stað tólf. Síðar einn í stað 15, 25 og að lokum 27 eins og hann er samsettur nú.

Upptaka evrunnar var samt enn meiri breyting. Að þurfa ekki lengur að umreikna í þýsk mörk, franska og belgíska franka, ítalskar lírur, spænska peseta, hollensk gyllini o.s.frv., o.s.frv. var bylting – ekkert minna.

Mér varð strax ljóst hversu byltingarkennd breyting þetta var fyrir viðskipti í álfunni. Markaður með einn gjaldmiðil í stað fjölda tryggði gagnsæi. Það varð strax svo augljóst að þjónusta og vörur til sölu í mismunandi löndum álfunnar myndu leita samræmis. Einfaldlega vegna þess að kaupandinn átti auðveldara með samanburðinn. Það gat til lengri tíma ekki verið neitt eðlilegt við að ein tegund þjónustu væri miklu dýrari í einu landi en öðru. Og hér verð ég að leggja áherslu á þetta orðasamband – til lengri tíma. Það varð mér ljóst strax að breytingin mundi taka  langan tíma.

Á sama tíma bjó ég í landi þar sem alltaf var hið sama uppi á teningnum hvað efnahagsástandið varðaði. Gjörsamlega óþolandi hagsveiflur endalaust. Fyrst og síðast gengi íslensku krónunnar sem stöðugt sveiflaðist og hafði þannig grundvallaráhrif á efnahagslega stöðu mína sem íslensks borgara. Verðbólga og vextir í tveggja stafa tölu viðvarandi ástand, meira og minna.

Þegar ég hóf störf á íslenskum vinnumarkaði 1983 fór verðbólgan yfir 100%. Þannig lærði ég strax í upphafi starfsævinnar að það eina sem skipti máli væri að eyða peningum sem fyrst. Í kjölfarið tóku svo við stöðugar gengisfellingar og uppsveiflur til skiptis þar sem við  – hinn almenni borgari – hafði nákvæmlega enga stjórn á eigin afkomu. Það eina sem skipti máli var að reyna að komast yfir húsnæði og geta haldið því – átt það með bankanum ævina á enda – þar sem ljóst varð strax í upphafi að með verðtryggða íslenska krónu mundi aldrei takast að eignast neitt. Hlutskiptið væri í besta falli að geta átt eignina með bankanum ævina á enda.

Blessað hrunið og eftirmálar þess – blessaðir vogunarsjóðirnir og erlendi túristinn hafa leitt til þess að gengissveiflurnar eru nú að mestu úr sögunni að því er virðist. Seðlabankinn hefur á að skipa góðum gjaldeyrisvaraforða svo fátt virðist fá haggað stöðugleika krónunnar. Það breytir miklu fyrir hag íslenskra launþega en verðbólgan er viðvarandi áfram og vextir þar af leiðandi háir.

Ég er komin á þann aldur að styttist í starfslok. Ekki mörg ár í það. Og þetta er enn staðan. Gjörsamlega óþolandi staða efnahagsmála. Ég var ein hinna heppnu sem ekki missti allt sem ég hafði áunnið í hruninu en það var fyrir einskæra heppni. Ég mun væntanlega eiga íbúðina sem ég á hlut í með bankanum ævina á enda. Þykist þó góð að vera laus undan verðtryggingunni – gerðist loksins núna þegar ég er komin á sjötugsaldurinn.

Þetta eru efnahagsmálin sem remburnar í landinu eru svo stoltar af og vilja umfram allt fá að viðhalda. Þær vilja fá að halda áfram að leika sér með hag fólksins í landinu eins og alla mína starfsævi. Vilja halda áfram að búa í haginn fyrir þá sem hafa orðið forríkir í þessu umhverfi síðustu áratugi. Menn eins og Sigmundur Davíð og hans kónar.

Til þess að geta gert það – til þess að hafa fullkomið frelsi til þess –  þurfa þeir að hafa tækin. Íslenska krónan er þar í forystusæti. Hún er gríðarlega mikilvægt tæki til misskiptingar auðs. Að loka íslenska markaðnum fyrir útlendingum er annað tæki. Gríðarlega mikilvægt tæki. Að tryggja að íslensku hrægammarnir einir hafi opinn aðgang að markaðnum. Það er grundvallarmál.

Ég vil losna undan þessum kónum. Losna undan þessu testósteróni og þjóðernisrembingi. Og það er mín sannfæring að til að svo megi verða þurfum við að horfa annað en til nýlenduherranna í Bretlandi eða forríkra, gjörspilltra karla í vestri.

Það er kominn tími til að Íslendingar sýni sjálfstraust til að standa á eigin fótum og gangi með opin augun til samstarfs við Evrópuþjóðir þar sem við eigum heima.

laugardagur, 6. desember 2025

Þankar að loknum lestri Hlöðunnar eftir Bergsvein Birgisson

Vorið 2015 gekk ég í björg – ég hrundi saman með þeim hætti að ég hefði aldrei ímyndað mér fyrirfram að slíkt ætti fyrir mér að liggja. Að upplifa slíkt er lífsreynsla – lífsreynsla sem aldrei verður frá manni tekin.

Því sem gerðist verður best lýst með því að segja að það var eins og sjálfið væri ekki lengur til. Það hefði verið yfirtekið af harðstjóra sem var til staðar í þessu sama höfði og hafði tekist ætlunarverkið að berja niður sjálfið sem fyrir var í mél. Þessi harðstjóri hafði verið lengi að verki og hann átti eftir að vera lengur að áður en hann gaf eftir.

Það sem kom mér aftur af stað í bata var lítið appelsínugult kver sem heitir Servant as leader. Ég hafði sem betur fer haft krafta til þess að ákveða að nota tímann til að gera eitthvað sem mögulega gæti verið mér til gagns. Að tillögu dóttur minnar ákvað ég að klára BS gráðu í viðskiptafræði og Sigurður Ragnarsson, þá forstöðumaður viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst, var svo indæll að leyfa mér það þótt diploman mín væri orðin 14 ára.

Það reyndist gera mér gott að setjast aftur á skólabekk – þó það verði að viðurkennast að viðskiptafræði var ekki fagið sem ég brann fyrir. Þar inn á milli reyndust þó sem betur fer fög sem gáfu manni færi á að hugsa og það voru þau sem héldu í mér lífi. Og það var einmitt þar sem ég fann þetta litla appelsínugula kver sem fyrr er getið.

Það er ástæða þess að ég rita þessar línur í dag. Ég var að ljúka lestri bókarinnar Hlaðan – þankar til framtíðar eftir Bergsvein Birgisson. Fyrir mér var lesturinn sérstök upplifun sem mig langar að gera grein fyrir hér.

Bergsteinn Birgisson fjallar í þessari bók um hluti sem eru nákskyldir þeim ég upplifði og gerði að umtalsefni í BS-ritgerð minni í viðskiptafræði það sama ár – árið 2016 – árið sem Trump var kjörinn forseti Bandaríkjanna fyrra sinni.

Lestur þessa appelsínugula kvers vorið 2016 snart mig eins og vitrun. Það gerðist eitthvað stórmerkilegt í höfðinu á mér sem ég upplifði með þeim hætti að það var eins og ég hefði endurheimt sjálfið sem ég hafði tapað. Það var eins og sjálf mitt væri aftur „heilt“ án þess að ég hefði hugmynd um af hverju. Þessi reynsla varð til þess að ég varð að kafa ofan í hvað eiginlega gerðist. Ég henti BS ritgerðarefni sem ég hafði fyrir löngu ákveðið að vinna að og leitaði til kennara að þeim áfanga sem kenndi þetta litla kver  þetta vor „þjónandi forystu“ og fékk hann til að samþykkja að verða leiðbeinandi minn. Verkefnið var að  kafa ofan í hvað gerðist  í hausnum á mér – án þess að hafa hugmynd um hvernig ég færi að því. Vissi bara að ég ætlaði að gera það!

Það er skemmst frá því að segja að þessi hugmynd átti eftir að leiða mig inn á braut sem var ólýsanlega gaman að upplifa eftir það sem á undan var gengið. Sjálfið var í ham þetta sumar árið 2016. Ástríðan sem alltaf hafði verið mitt aðalsmerki kviknaði svo um munaði. Ég var að tapa mér, það var svo gaman. Ég las heimspeki og ég las Freud. Ég las Pál Skúlason og ég las Sókrates, Nietzsche, Kirkegaard og Schiller. Ég las og las og las og ég var á lífi – guð hvað það var gott að vera aftur á lífi! Það var undursamlegt – verður eiginlega ekki lýst þannig að aðrir sem ekki hafa upplifað það sama geti skilið.

Ég varð fyrir mörgum uppljómunum þetta sumar sem ekki er hægt að gera grein fyrir í einni stuttri umfjöllun á laugardagsmorgni í desember 2025. En aðalmálinu get ég gert grein fyrir – því sem ég er enn algjörlega sannfærð um að var það sem bjargaði sjálfi mínu þetta sumar – það var heimspeki. Það var heimspekin sem „heilaði“ sjálf mitt þetta sumar. Heimspekin í kverinu Servant as leader. Það var hún sem bjargaði mér og að halda áfram að kafa ofan í hana var það sem kom mér á réttan kjöl. Ég er ekki í vafa. Ekki eitt augnablik. Þið hin getið ekki vitað þetta, því ekkert ykkar var inni í höfðinu á mér. Ég veit það og mun alltaf vita það.

Það fór svo að ég skrifaði tvær BS ritgerðir – þeirri fyrri var hafnað af leiðbeinandanum – enda ekki nema von – hún var óreiðan ein – ástríðufullur persónulegur óður um það sem gerðist í sjálfi höfundar þetta vor og sumar. Ég varð fyrir áfalli þegar það gerðist en gaf mig ekki því ég vissi upp á hár hvernig ég ætlaði að klára ritgerðina og mér tókst það.

Ég kláraði ritgerð í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst sem byggir á kveri Roberts K. Greenleaf Servant as leader, Sigmund Freud, heimspeki Páls Skúlasonar, Sókratesar og Nietzsche. Það var mikil spenna yfir jólin 2016 um hvort ritgerðin yrði samþykkt enda var hún algjörlega mín afurð frá A-Ö – leiðbeinandinn hafði ekkert fengið um hana að segja annað en að samþykkja hvernig ég ætlaði að taka á efninu í annarri tilraun. Tímaþröngin var slík að ég skilaði ritgerðinni inn óyfirlesinni og þannig er hún enn á vef Háskóla Íslands með orða- og stafsetningarvillum – en hún er þar. Mér tókst að útskrifast sem viðskiptafræðingur með BS gráðu með einkunnina 7 fyrir ritgerðina og þóttist góð. Það hafðist.

Því er ég að segja frá þessu hér að þessi saga mín fjallar um sama efni og Bergsveinn Birgisson gerir að umtalsefni í bók sinni Hlaðan – þankar til framtíðar. Hún fjallar um að maðurinn er heimspekileg vera. Ég skrifaði grein á dögunum þar sem ég fjallaði um sama efni. Um mikilvægi hug- og félagsvísinda fyrir heill mannsins.

Ég hef fundið það á eigin skinni að hug- og félagsvísindi eru mér lífsnauðsynleg. Ég get ekki lifað þar sem greiningin og mælingin ein ræður ríkjum. Fyrir mér boðar hugmyndafræði Trump og hans kóna – tæknirisa Bandaríkjanna – dauða mennskunnar.

Er viðskiptafræðin kirkja?

Ég hallast að því að svo sé – að viðskiptafræðin sé kirkja. Kirkja þar sem Mammon er Guðinn. Í morgun spurði ég Google hvernig við skilgre...