laugardagur, 2. janúar 2021

Haltu kjafti og vertu sæt!

Orðasamband sem er enn í fullu gildi og mig langar til að vekja athygli á á nýju ári 2021. Gleðilegt ár og megum við öll njóta þess að fá að vera þátttakendur í samfélaginu. Við konur sem erum komnar á sextugsaldurinn sem og aðrir þjóðfélagsþegnar.

Mig langar til að vekja athygli á máli sem alla jafna er ekki talað um enda fjallar málið um kellingar sem enginn hefur áhuga á. Kellingar eru konur sem eru orðnar fimmtugar og þaðan af eldri. Komnar úr barneign.

Atvinnurekendur á Íslandi hafa í árafjöld kvartað mjög undan fjölgun öryrkja á Íslandi. Hafa látið í það skína að þar sé ekki allt sem sýnist og þörf sé á að leiðrétta þessa vitleysu. Nú langar mig að upplýsa þá hina sömu um að þeir þurfa kannski aðeins að líta í eigin barm. Þurfa kannski aðeins að hugsa um það hvað þeir vilja gera við okkur sem þeir vilja ekki. Því við erum mörg sem erum á lífi og í fullu fjöri þó við séum komin á sextugsaldurinn. Hvað vilja atvinnurekendur nú eða samfélagið í heild sinni gera við okkur?

Þetta er mjög brýn spurning. Vilja þeir senda okkur úr landi? Skjóta okkur? Hvað vilja þeir gera við okkur? Ekki vilja þeir okkur í vinnu svo mikið er víst. Og ef þeir vilja ekki að við verðum öryrkjar – hvað vilja þeir þá?

Mánudaginn þann 24. júní 2019 kl. hálffimm var bankað í öxlina á mér og ég beðin að koma til viðtals við framkvæmdastjórann. Í ljós kom að ástæðan var að reka mig á staðnum og ég beðin að ganga út og koma ekki meir. Einu og hálfi ári fyrr hafði ég gengið inn á þennan vinnustað brotin mjög – eiginlega í henglum – en þessi vinnustaður bjargaði mér. Eftir mikið niðurbrot reyndist rétt hjá mér að aðferðin til að ná mér strik aftur væri að gera það sem ég kunni best. Eftir nokkra mánuði í starfi fann ég til styrkleika minna aftur, var orðin sjálfri mér lík. Það var góð tilfinning. Ég var í starfi sem ég kunni – að þjónusta fyrirtæki á markaði - og í því er ég betri en margur og veit það.

Það gekk margt á á vinnustaðnum á þessum tíma. Tveir stjórnendur hans hættu störfum með stuttum fyrirvara og þeir nýju komu ekki strax til starfa. Starfsmannavelta var mikil og einhvern veginn fór það svo að á tímabili í brjáluðum umsvifum vorum við tvö í þjónustunni í deildinni þegar fæst var. Einhvern veginn hafðist þetta nú samt allt saman enda ég vön að vinna undir miklu álagi og hafði greinilega engu gleymt þegar á reyndi.

Ég var góð í því sem ég var að gera. Fékk endurgjöf í þá veru og vissi það. Ég var á heimavelli. Samt fór það svo að ég var rekin á staðnum einu ári síðar. Ég leyfi mér að segja að þessi uppsögn segi ekkert um mig en meira um eitthvað annað sem ekki verður skilgreint hér.

Síðan þetta gerðist hef ég sótt um hvert starfið á fætur öðru. Mörg í mánuði og er ekki virt viðlits. Reyndar verður að segjast að íslenskur vinnumarkaður hefur þó skánað örlítið. Ekki sami dónaskapurinn og fyrrum – nú fær maður yfirleitt að vita að maður fái ekki starfið. Sem er mikil framför frá því sem áður var.

Ég sit hér 1. janúar 2021 og velti fyrir mér hvað ég hafi gert af mér sem orsaki þessa meðferð. Af hverju er ég 57 ára gömul í þessari stöðu að fá hvergi einu sinni áheyrn? Ég segi þetta kinnroðalaust því ég hef ekkert til að skammast mín fyrir. Ég veit að ég hef verið afburða starfsmaður víðast þar sem ég hef starfað og það sem meira er í flestum tilfellum hefur það verið í þágu íslenskra atvinnurekenda. Ég hef verið í þjónustu við þá og þeir hafa aldeilis kunnað að meta þjónustu mína og ég hef ósjaldan fengið að vita það. Þeir vissu að í höndunum á mér voru þeir í höndum sem þeir treystu. Meðfram höfðu þeir oft líka gaman að því að tala við mig um pólitík. Seinni árin gerði ég þó minna af því eða nánast ekki neitt enda búið að kenna mér að það væri betra að halda þeim þætti út af fyrir mig.

Alltaf hef ég fengið að vita að ég væri ekki eins og ég ætti að vera. Að ástríða mín og eldmóður væri ekki við hæfi. Eftir að ég fór að láta pólitískar skoðanir mínar í ljós kemur ókunnugt fólk fram við mig eins og það viti allt um mig. Ég hef fengið á mig stimpil. Þessi stimpill segir „hún kýs Samfylkinguna“ og það á að segja allt um mig. Það með öðrum orðum skilgreinir mig og setur mig í flokk. Stórmerkilegt að upplifa skal ég segja ykkur og oft ekkert sérstaklega skemmtilegt. Það er þreytandi að hlusta á algjörlega ókunnugt fólk komið í stöðu á sama vinnustað og þú og talar til þín eins og það viti hvað þú hugsar eða þér finnst um hin og þessi málefni. En það er einfaldlega eitt af því sem þú lærir að þola. Til að lifa af verðurðu að gera það. Þú verður að láta sem þetta allt saman rétt og satt og spila með. Annars lifurðu einfaldlega ekki af.

En einu get ég aldrei gefið afslátt af og það er því að berjast fyrir að veita viðskiptavinunum mínum bestu mögulegu þjónustu. Það er einfaldlega í æðum mínum og því verður ekki breytt. Ég fylgi málum eftir og ég fer alla leið til þess. Það hef ég alltaf gert og það er ég. Það vita allir sem ég hef starfað með. Ég á það til að láta heyrast hærra í mér þegar ég er ekki ánægð með þau svör sem ég fæ og þannig verður það. Alltaf. Ég á auðvelt með að biðjast afsökunar ef mér verður það á að fara framúr mér í hita augnabliksins. Ég lít á það sem mannlegt og get ómögulega litið svo á að það sé eitthvað sem ég þurfi að skammast mín fyrir. En skv. því sem ég hef lært er það þar sem hnífurinn stendur í kúnni.

Ég er manneskja með skap. Og ég er líka manneskja með tilfinningar. Það má ekki. Í það minnsta ekki ef þú ert af kvenkyni. Ef þú ert kvenkyns skaltu viðhafa það sem er í fyrirsögn þessarar greinar „haltu kjafti og vertu sæt“. Það er ekki sagt í neinni kaldhæðni heldur er það alveg kýrskýr lærdómur. Viljirðu eiga möguleika á að lifa af á íslenskum vinnumarkaði og eldast þar.

föstudagur, 18. september 2020

Siðmenning eða geðþótti?

 

„Mannlegt líf í sameiningu verður þá fyrst mögulegt, þegar saman er kominn meirihluti, sem er sterkari en nokkur einn einstaklingur og sem stendur saman gegn öllum einstaklingum. Vald þessa samfélags er þá sett fram sem „réttur“ andstætt valdi einstaklingsins, sem er fordæmt sem „hrátt ofbeldi“. Þessi flutningur á valdi einstaklings yfir á vald samfélagsins er stór skref í átt til siðmenningar…“ „Fyrsta krafa siðmenningar er því krafan um réttlæti, þ.e.a.s. trygging fyrir því að lög, sem sett hafa verið, verði ekki brotin í þágu einhvers einstaklings.“

Freud, S. (1997). Undir oki siðmenningar. (Sigurjón Björnsson, Þýð.) Reykjavík: Hið íslenzka bókmenntafélag. (Bls. 39)

„Fyrsta krafa siðmenningar er því krafan um réttlæti, þ.e.a.s. trygging fyrir því að lög, sem sett hafa verið, verði ekki brotin í þágu einhvers einstaklings.“

Merkilegt. Siðmenning, réttlæti talið tryggt með því að lög verði ekki brotin í þágu einstaklings. „Allir skulu jafnir fyrir lögunum.“ Er það ekki þannig sem það á að virka? Er það ekki grundvöllur góðrar löggjafar?

Ég sá ástæðu til að leita þessi orð uppi í ljósi upphlaups á samfélagsmiðlum þessa dagana. Enn einu sinni er hrópað á stjórnvöld og þess krafist að þau beiti sér í þágu einstaklings. Forystumenn stjórnvalda, helst konur, eru sagðar illgjarnar, vondar manneskjur og fleira í sama dúr. Hvers vegna? Vegna þess að þær vilja ekki beita sér í þágu einnar fjölskyldu sem fjöldinn heimtar að þær beiti sér fyrir.

Ég skil þetta ekki. Ég skil ekki hvers konar samfélag það er sem fólk heimtar. Ég skil ekki hvernig á að vera hægt að lifa í slíku samfélagi. Þar sem engar almennar reglur ríkja. Þar sem stjórnvöld hlaupa alltaf til og gera ráðstafanir í þágu þeirra sem hrópa hæst.

Tek það fram að ég hef ímugust á ofstæki íslenskrar stjórnsýslu. Hef tjáð mig um það ótal sinnum að fátt tel ég brýnna en að gera mannúð og meðalhóf að forgangsatriði íslenskrar stjórnsýslu í öllum sínum störfum. Kerfislægt ofbeldi er skelfilegt og við eigum ekki að leyfa því að líðast. Ekki í Útlendingastofnun né Vinnumálastofnun, Tryggingastofnun, Tollstjóra eða Lánasjóði íslenskra námsmanna.

Það getur meira en verið - og mér þykir það alls ekki ólíklegt - að egypska fjölskyldan eigi að fá að vera á Íslandi. En hvernig á ég að geta vitað það? Hvernig get ég haft það á hreinu að nákvæmlega þessi fjölskylda umfram aðrar sem hafa komið hingað í sömu erindagjörðum eigi að fá að vera? Hvers konar stjórnarfar erum við að kalla yfir okkur með því að heimta að þessi fjölskylda fái að vera hér umfram aðrar?

Eiga stjórnvöld að taka fram fyrir hendur kerfisins í hverju því máli sem við krefumst þess að þau geri það? Hvað með önnur mál sama eðlis?

Hvers konar stjórnarfar viljum við?
Er það gamli góði geðþóttinn sem hér á að vera við völd?
Hvers konar samfélag verður það?

mánudagur, 11. mars 2019

Geymsla og vettvangur

Enn einu sinni er ég að færa skrif mín til.
Opnaði bloggsíðu haustið 2008 þegar hrunið varð í íslensku samfélagi og birti þar í bland nýjar greinar og gamlar allt fram til ársins 2013. Árið 2016 var þeirri bloggsíðu www.bloggar.is lokað og þá færði ég allt efnið yfir á opinbera síðu sem ég átti á Facebook frá framboði mínu til stjórnlagaþings. Ég hefði allt eins getað hent efninu þar sem Facebook er ekki rétti miðillinn til að halda utan um greinaskrif af þessum toga.

Hef lengi ætlað mér að færa efnið til að eiga það aðgengilegt einhvers staðar og geri nú loksins alvöru úr því og flyt það hingað á bloggsíðu Google. Geri það í trausti þess að þar geti þetta efni fengið að vera til frambúðar. Jafnframt verður þessi síða kannski vettvangur fyrir frekari skrif. Hver veit.

þriðjudagur, 19. febrúar 2019

Sannleikur nútímamannsins?

        Birti þessa grein í dag 1. nóv. 2025 en hún er skrifuð 19.02.2019. Hef sennilega ekki þorað að birta hana eða hvað veit              ég... man það ekki. Veit bara það að núna að hausti 2025 langar mig að hún sé  til hér í safninu mínu svo ég geng frá því. 

Ef marka má fréttir gærkvöldsins er betra að fólk sé hamingjusamt í vinnunni. Rannsóknir sýna þennan mikla sannleika að hamingjusamt fólk í vinnunni afkastar meiru og það beinlínis borgar sig, borgar sig í beinhörðum peningum, fyrir stjórnendur að sýna starfsmönnum sínum umhyggju. 

Nú þykir mér týra… Er þetta ekki stórmerkilegt? Að það sé í alvörunnni betra að starfsfólki líði betur í vinnunni?

Verð að játa að nálgun viðfangsefna nútímamannsins gerir mig oft gjörsamlega bit. Sumt þykir mér einfaldlega svo sjálfsagt mál að það þarf ekki að segja mér það. Þetta er eitt af því. Það að mér líði vel í vinnunni er auðvitað miklu líklegra til að ég verði góður starfsmaður, það er eitthvað svo augljóst. 

Nú verð ég að láta fylgja með að ég er ekki að gera lítið úr viðfangsefninu sem þessi ráðstefna fjallaði um. Hvarflar ekki að mér að rengja að stóru viðfangsefnin okkar nútímamanna í vestrænu samfélagi sé ekki síst aukin streita og kulnun. Hef kynnst því vel af eigin raun og lesið mér aðeins til um stöðuna í þessum málaflokki og það er sömu söguna að segja alls staðar í hinum vestræna heimi. Aukin streita og kulnun eru raunveruleg viðfangsefni sem valda raunverulegum vanda sem eykst sífellt. Auðvitað eigum við að vekja athygli á því og fjalla um það og vonandi mun það leiða til að við gerum ráðstafanir til að snúa þessu við.
Einhvern tíma. 

Það sem vekur áhuga minn er hvað við gerum ekki. Af hverju heyri ég aldrei um að verið sé að taka þennan punkt sem sem hér er birtur af Alfie Kohn í Harvard Business Review 1993? Hvað gerðist innan fyrirtækjanna á 10 áratugnum? Hvaða afleiðingar hafði sú breytta hugmyndafræði á heiminn? 

Í Bandaríkjunum einum? Á litla landinu okkar Íslandi? Hverju lýsa bíómyndirnar Inside Job og Smartest Guys in the Room? Heilbrigðu samfélagi? Eru þær dæmi um þroska og vit okkar samtíma? Erum við stolt af þeim heimi? Viljum við hafa hann eins áfram?

Efnahagshrunið sem varð í heiminum haustið 2008. Var það einangrað fyrirbæri? Ekkert sem þarfnast endurskoðunar við? 

Er víst að Frederick Winslow Taylor og Milton Friedman séu bestu hugmyndafræðingarnir sem við eigum að byggja hugmyndafræði heimsins á? 

Þarf ekkert að endurskoða Viðskiptafræði háskóla heimsins?

Eru stjórnunaraðferðirnar sem þar eru kenndar hver á fætur annarri sem ”sannleikur” kannski ekki sannleikur eftir allt saman? Hvað heita þær nú allar saman? LEAN, SIX SIGMA o.s.frv., o.s.frv. Eru þetta ”fræði” sem byggja á vísindum? Vísindum þar sem mannlegir eiginleikar eru teknir með í myndina? Eru þær kannski slæmar og til þess fallnar að auka streitu og kulnun? Gæti það verið?

Kulnun og streita. Getur verið að þetta tvennt séu afleiðingar af kolvitlausri þróun við stjórnun  fyrirtækja sem aftur er til orðin vegna ”sannleika” sem kenndur er í viðskiptafræði háskólanna?

Mér er mikið niðri fyrir. Ég verð að leyfa mér að spyrja.

Mér finnst kominn tími til að við beygjum af leið. 

Að við göngumst við að vera manneskjur. Að við hættum að láta eins og sjálfsagðir hlutir komi okkur á óvart. Að við höldum áfram að vera viti bornar verur. Myndirnar sem ég nota sem dæmi til að lýsa því samfélagi við erum hluti af lýsa ekki samfélagi viti borinna vera. Þar er heimskan höfð í hávegum. Upphafning heimskunnar. Er ekki kominn tími til að beygja af leið?


föstudagur, 6. október 2017

Lærdómur 20. aldar

Sat Bókmenntahátíð á dögunum. Eins og alltaf áður fékk maður góðan skammt af andlegri næringu. Svo óendanlega gott að vera umvafinn húmanisma, víðsýni og mannelsku í nokkra daga.

Einn þeirra sem talaði til hjarta míns á hátíðinni var Timothy Snyder sagnfræðiprófessor við Yale háskóla. Þar fór maður sem talaði tæpitungulaust. Hann hræddist ekki að tala um hvað kjör Donald Trump í embætti forseta Bandaríkjanna þýddi í raun og hann hræddist ekki að setja það sem er að gerast í heiminum í dag í samhengi við söguna. Hann hræddist ekki að krefja okkur um að sýna ábyrgð. Hvert og eitt okkar. Það væri það eina sem við gætum gert í stöðunni; að taka ábyrgð.

Til að verjast þróun fasismans á 21. öldinni verðum við að taka ábyrgð. Núna.

Í bók sinni um tuttugu atriði sem læra má af 20. öldinni hvetur hann okkur til að trúa á sannleikann. Yfirlætislaust og sjálfsögð hvatning en um leið svo full af merkingu.

Hvað þýðir það að vera hvattur til að trúa á sannleikann?

Að trúa ekki lygi?

Hvaða erindi gæti það átt við okkur á Íslandi á 21. öldinni?

Hann hvetur okkur til að vera ekki auðtrúa. Dvelja ekki um of á internetinu heldur eyða meiri tíma í raunverulegum samskiptum við fólk. Hann biður okkur um að passa upp á tölvurnar okkar, reikningana okkar, passa upp á að verða ekki hökkuð. Hann hvetur okkur til að láta ekki afvegaleiða okkur. Fara í að horfa á persónulegt líf fólks í staðinn fyrir að horfa á aðalatriðin. Það sem skiptir máli.

Hann talar tæpitungulaust um lygina sem verkfæri þeirra sem vilja ná völdum. Að við þurfum að vera á varðbergi og láta ekki villa okkur sýn.

Ég fékk gæsahúð að hlusta á hann. Aftur og aftur og aftur. Hef beðið lengi eftir að hlusta á einhvern segja nákvæmlega það sem hann sagði. Hættum að vera meðvirk með bullinu. Stöndum upp fyrir sannleikann. Raunveruleikann. Og munum að hafa athyglina á því sem skiptir máli.

Í hönd fara kosningar á Íslandi í annað sinn á einu ári. Eins og síðast kosningar sem skipta verulega miklu máli. Kosningar sem munu segja til um hvert við ætlum að fara næstu árin.

Í kosningabaráttunni sem í hönd fer skiptir meira máli en flest annað að við höfum athyglina á því sem skiptir máli. Að við pössum upp á sannleikann. Að við látum ekki afvegaleiða okkur.

þriðjudagur, 14. mars 2017

Spennan magnast...

Íslenska krónan hefur verið gefin frjáls. Í meginatriðum. Tilraunastarfsemin með íslenska krónu í alþjóðlegum heimi viðskipta fær annan snúning. Fjármálaráðherra og fyrrum forsætisráðherra komnir í pissukeppni. Báðir vilja sýna okkur hvað þeir eru klárir businessmenn.

Hagkerfið er á blússandi siglingu. Hagvöxtur síðasta árs 7,2%. Styrkur krónunnar slíkur að útflutningsatvinnuvegirnir eiga í vanda. Danski sérfræðingurinn sem tekinn var í guðatölu eftir illa meðferð í síðasta góðæri segir Seðlabankann eiga að hækka vexti. Þrír framkvæmdastjórar samtaka útflytjenda kalla eftir lækkun vaxta. Hvaða ákvörðun Seðlabankinn tekur fáum við að vita á morgun.

Í dag er fyrsti dagur „frelsisins“. Fylgst er grannt með hvað gerist. Veikist krónan enn? Veikist hún verulega? Fáum við verðbólguskot? Óvissan algjör. Spennan magnast. Sérfræðingar segja okkur þó að vera róleg. Seðlabankinn hafi á að skipa góðum gjaldeyrisforða og allar hagtölur segja okkur að við séum í góðum málum. Engin ástæða sé til ótta.

Baksviðs berast fregnir af mögulegum málshöfðunum. Menn deila um verðið á krónunni sem lokuð var inni við hrun síðasta góðæris. Hvað er rétt verð? Hvað er sanngjarnt verð? Á hvaða tíma? Fyrir hálfu ári? Núna? Karlarnir sem hagsmuna eiga að gæta eru þess umkomnir að segja okkur hvað er rétt og hvað er rangt. Þeir vita það. Sbr. fyrrum forsætisráðherrann og fjármálaráðherrann. Báðir góðir hagsmunagæslumenn.

Fyrrum forsætisráðherrann ítrekar tal sitt um „vondu vogunarsjóðina“. Ber á borð málflutning í þá veru að Íslendingar sem versla með peninga séu „góðir“ og útlendingar sem gera slíkt hið sama séu „vondir“. Fordæmið hefur hann frá forvera sínum sem var góður í því að segja okkur hverjir væru góðir og hverjir væru vondir.

Íslenska krónan er gjaldmiðillinn okkar. Gengi hennar hefur bein áhrif á stöðu okkar til lengri og skemmri tíma. Eignastöðu okkar. Kaupmátt okkar. Stöðu verðtryggðu lánanna okkar. Verðlag vörunnar sem við kaupum. Verðlag þjónustunnar sem við kaupum. Allt umhverfi okkar stjórnast af því hver staða krónunnar er.

Hver hugsar um þann hag?

þriðjudagur, 7. mars 2017

Spilapeningur eða alvöru gjaldmiðill?

Við hrunið 2008 var þjóðerniskennd það sem sem spilað var á. Við áttum að vera heima. Prjóna og búa til slátur.

Sjálfstæði að hætti Bjarts í Sumarhúsum varð forgangsmál. Íslenska krónan varð m.a. fulltrúi þessa sjálfstæðis. Þrjúhundruð og þrjátíu þúsund manneskjur í einu landi eru þess fullvissar að tilvist íslensku krónunnar sem sjálfstæðs gjaldmiðils sé forsenda sjálfstæðis þjóðarinnar. Íslenska krónan í alþjóðlegum heimi viðskipta.

Forystumenn í íslensku viðskiptalífi voru fremstir í flokki þeirrar baráttu að tryggja Ísland áfram sem eyland í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi. Sjálfstætt að hætti Bjarts í Sumarhúsum. Þessa dagana upplifa þeir afrakstur þeirrar baráttu. Sterka krónu. Svo sterka að Ísland er nú orðið dýrasta land í heimi.

Í hverjum fréttatímum á eftir öðrum birtast þeir. Og í aðsendum greinum blaðanna. Vandamálið borið á borð eins og það hafi aldrei nokkurn tíma gerst áður. Sterk króna er fordæmalaus og vandamálið alveg nýtt. Helst á samhenginu að skilja að Seðlabankanum sé um að kenna.

Fyrsti áratugur aldarinnar var áratugur hækkana á verði hlutfjár fyrirtækja í Kauphöllinni. Hækkanir voru normið. Man ekki hvað kannski svona 60-70% hækkun á virði hlutabréfanna árlega. Er það svo fjarri lagi?

Það endaði með skelli. Skelli þar sem hlutafjárverð í Kauphöllinni féll saman um 85% haustið 2008. Eitt stærsta gjaldþrot heimssögunnar þar sem samdrátturinn í hagkerfinu var án fordæma alþjóðlegra hagkerfa var staðreynd.

75% stóru fyrirtækjanna í það minnsta fóru í endurskipulagningu. Þar sem blessaðir Lífeyrissjóðirnir voru til bjargar. Lífeyrissjóðirnir. Þessir sjóðir sem við höfum greitt í frá því við hófum störf og eru til þess ætlaðir að vera eftirlaunasjóðir okkar í ellinni. Björgunarsjóðir ábyrgðarleysisins par excellence. Hefur sýnt sig allar götur síðan.

Fékk Morgunblaðið borið heim til mín í kápu Icelandair einn daginn og kápu Símans hinn daginn í boði Lífeyrissjóðanna einhverja daga á meðan þetta allt saman gekk yfir. Athugasemdin er skrifuð í dagbókina 3. apríl 2011, kannski gerðist það þó 2009 eða 2010 man það ekki.

Kauphöllinni í dag er haldið uppi af Lífeyrissjóðunum. Lífeyrissjóðirnir eru ráðandi aðilar í öllum fyrirtækjum í Kauphöllinni og henni hefði líklega verið lokað fyrir löngu ef þessir lukkupeningar hefðu ekki verið til staðar þegar spilapeningarnir voru búnir. Núna vilja þeir fara að byggja vegi með þessum peningum. Gott ef ekki íbúðir. Já Lífeyrissjóðirnir eiga að halda vélinni gangandi.

Íslendingar eru 330.000. Hvaða takmörk setur sú staðreynd ein og sér íslenskri krónu? Vilja íslenskir athafnamenn fara aftur til 20. aldar í viðskiptum sínum á alþjóðavettvangi? Viljum við vera á stórtæk í alþjóðlegum viðskiptum áfram eins og við höfum verið alla þessa öld? Ætlum við samt að halda í íslenska krónu?

Hér bið ég forsvarsmenn viðskiptalífsins að svara. Hvort vilja þeir? Íslenska krónu? Eða ekki? Ætla þeir að lifa með krónu eða ætla þeir það ekki? Ef þeir ætla að lifa með henni má ég þá biðja þá um tala af ábyrgð? Ábyrgð þar sem gengið út frá því að það sem fer upp fer líka niður. Það sem veikist, styrkist líka.

Það sem gerðist í Kauphöll Íslands á árunum 2003-2008 var ekki gagnleg reynsla. Sú reynsla lifir kannski enn í minninu. Menn halda kannski að það sé bara til ein leið – upp. Það er ekki svo. Það sem fer upp fer líka niður. Það sem veikist, styrkist líka.

Kannski til of mikils mælst – en má ég líka biðja þá um að muna að við erum til. Venjulegt fólk sem höfum hugsað okkur að lifa í þessu landi með þeim. Til þess að það sé hægt verða þeir að læra ábyrgð.

Aukning landsframleiðslunnar af þeim toga sem við kynntumst svo vel á 1. áratug aldarinnar er einskis virði. Þúsundir manna fóru illa út úr þeim efnahagslegu hamförum. Einhverjir misstu allt sitt, einhverjir heilsuna og enn aðrir gleðina. Sumir misstu þetta allt aleiguna, heilsuna og gleðina.

Má ég því biðja samtök atvinnulífsins á Íslandi að sýna mér ábyrgð. Ábyrgð á því að íslenska krónan er ekki þeirra spilapeningur, þeir geta ekki ákveðið gengi hennar eftir því hvað hentar þeim best í leiknum.

Er viðskiptafræðin kirkja?

Ég hallast að því að svo sé – að viðskiptafræðin sé kirkja. Kirkja þar sem Mammon er Guðinn. Í morgun spurði ég Google hvernig við skilgre...