föstudagur, 13. febrúar 2004

Speglun samfélagsins eða mótun?

Í Kastljósi kvöldsins kastaði Sigmar fram við viðmælanda sinn þeirri setningu “þú vilt sem sagt að fjölmiðlar endurspegli þann veruleika sem þér þóknast, ekki að fjölmiðlar endurspegli samfélagið eins og það er?”  Merkingin var þessi hvort sem setningin er orðrétt eftir höfð eða ekki.  Umræðuefni þáttarins var fyrirhuguð lýtameðferð á Ruth Reginalds á Stöð 2. 

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég heyri þetta viðhorf frá fjölmiðlamönnum.  Ég held stundum að þeir lifi í allt öðrum heimi heldur en ég a.m.k. ef þeir halda að þeir séu alltaf að “endurspegla samfélagið eins og það er”.  Hvað finnst ykkur?  Hafa fjölmiðlar ekkert vald í samfélaginu?  Hafa fjölmiðlar engin áhrif á samfélagið?  Er sú mynd sem dregin er upp af samfélaginu í fjölmiðlum að sýna samfélagið “eins og það er”? 

Hvernig er samfélagið?  Um hvað fjalla fjölmiðlar?  Að mínu mati ákaflega áhugaverðar spurningar sem svo sannarlega er þörf á að velta út í umræðuna. 

Það er ótrúlegur barnaskapur að mínu mati  eiginlega nánast heimska að láta sem svo að fjölmiðlar hafi engin áhrif á samfélagið – þvílík firra!  Dettur einhverjum okkar í hug að það vægi sem viðskiptalífið fær í fjölmiðlum hafi engin áhrif á okkur eða börnin okkar?  Dettur einhverjum okkar í hug að sú svart-hvíta staðalímynd sem sýnd er í hverjum þættinum á fætur öðrum á Skjá einum og fyrst og fremst er ætlað að höfða til unglinga hafi engin áhrif?  Dettur einhverjum okkar í hug að sífellt sýnilegra ofbeldi í fjölmiðlum hafi engin áhrif?  Dettur einhverjum okkar í hug að fréttamat þar sem hvítir karlar í jakkafötum eru alltaf í aðalhlutverki hafi engin áhrif?

Svari hver fyrir sig – í mínum huga er svarið alveg skýrt.  Auðvitað hafa fjölmiðlar áhrif.  Auðvitað hafa fjölmiðlar vald.  Fjölmiðlar endurspegla ekki samfélagið, þeir móta samfélagið.  Þess vegna er svo mikilvægt að vandað sé til verka á fjölmiðlum.  Þess vegna skiptir það okkur öll sem búum í samfélaginu svo miklu máli hvernig fjölmiðlarnir eru.  Hvaða áherslur þeir viðhafa, hvaða siðferðileg gildi þeir hafa og hvaða málefnum þeir sinna. 

Í mannlegu samfélagi er ákaflega lítið nýtt undir sólinni.  Maðurinn hefur alltaf verið gráðugur, hann hefur alltaf verið hégómagjarn og hann hefur alltaf verið svikull.  Ef við trúum því að “fjölmiðlar endurspegli bara samfélagið eins og það er” lifum við væntanlega í þeirri trú að Clinton sé fyrsti maðurinn sem hefur haldið framhjá.  Við trúum því að maðurinn hafi fyrst og fremst áhuga á peningum.  Við trúum því að maður sem lítur líkamlega vel út “er í formi” sé maður sem hefur sérstaklega mikla stjórn á lífi sínu – er heilbrigður og líður vel.  Við trúum því að líkami kvenna sé fyrst og fremst markaðsvara.  Við trúum því að hvítir karlmenn séu vitsmunarver…urnar.  Þetta er sú mynd sem fjölmiðlarnir sýna okkur.  Það skal ítrekað að hér er ekki einungis átt við fréttir og fréttatengt efni heldur allt efni fjölmiðla.  Er samfélagið svona?  Er Clinton fyrsti maðurinn til að halda framhjá?  Eru peningar það sem maður á dánarbeði hefur fyrst og fremst áhyggjur af?  Eru fyrirsætur af hvoru kyni sem þær eru með líkamann í “góðu formi” besta dæmið um heilbrigðar sálir?  Er kvenlíkaminn fyrst og fremst söluvara?  Er allt gáfulegt og rétt sem hvítir karlmenn segja og gera?

Ég held ekki, hvað heldur þú?

Auðvitað gefa fjölmiðlar tóninn.  Auðvitað móta fjölmiðlar umræðuna.  Fyrirhugaður þáttur á Stöð tvö um allsherjar lýtameðferð á Ruth Reginlands sendir skilaboð.  Eins og 14 ára gömul dóttir mín sagði í kvöld;  “hann gefur þau skilaboð að það sé ekki í lagi að eldast”.   Það er ekkert nýtt við þau skilaboð.  Síðast í dag sat ég í hádeginu og spjallaði við fyrrum samstarfskonu mína.  Hún rifjaði upp fyrir mér þegar hún sat fund með framkvæmdastjóranum á viðkomandi vinnustað eftir að hafa hlustað á heilan fyrirlestur um hversu frábært það væri að vinnustaðurinn hefði “young look”!  Hún var komin yfir fimmtugt!  Hvernig átti hún að taka þessum skilaboðum?  Hún tók þeim auðvitað nákvæmlega eins og þau voru borin á borð.  Hún var óæskileg á vinnustaðnum.  Hún var ekki í liðinu – hún var “old”!

Mannskepnan hefur alltaf haft áhuga á frumhvötum sínum og hún hefur alltaf haft áhuga á kjaftasögum og lágkúru, það hefur ekkert breyst í gegnum aldirnar.  Ef þið eruð ekki viss lesið Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson og skoðið samfélagið í sögunni sérstaklega. 

Fjölmiðlar dagsins í dag eiga val á hverjum degi, hverja klukkustund, hverja mínútu.  Val þeirra mótar samfélag okkar hvern dag, hverja klukkustund, hverja mínútu.  Ef þeir velja þröngsýnt sjónarhorn og leggja áherslu á að höfða til frumhvata mannsins, þá verður samfélagið okkar þröngsýnt og við fyllumst trú á að frumhvatir okkar séu það sem lífið snýst um.  Ef fjölmiðlarnir kjósa að vera víðsýnir og sýna fjölbreytni þá verður samfélagið okkar víðsýnt og fjölbreytt.

Fjölmiðlarnir endurspegla ekki mitt sjónarhorn – hvað með þitt?

                                                                                                        Birt á www.kreml.is 13.02.2004

 

mánudagur, 22. desember 2003

Eru kjósendur heimskir?

Oft hefur það oft hvarflað að mér að það sá álit margra þeirra sem á Alþingi sitja, a.m.k. ef marka má hvernig þeir koma fram við kjósendur sína. Kannski er það alveg rétt hjá þeim. Kannski erum við kjósendur upp til hópa einfaldlega heimsk og einföld og ekki þess verð að tekið sé tillit til okkar nema í mesta lagi í nokkra daga fyrir kosningar.

Þeir sem hafa haft áhuga á að fylgjast með því hafa ekki farið í grafgötur með að álit mitt á stjórnmálum á Íslandi er ekki mikið. Ég skil ekki og hef ekki skilið lengi um hvað stjórnmál á Íslandi snúast og ekki er það skýrara fyrir mér nú eftir síðustu kosningar eða í kjölfar þeirra.

Eins og við öll fylgdumst með sem á annað borð reynum enn að sýna áhuga á stjórnmálum þá fjallaði kosningabarátta flokkanna fyrir síðustu kosningar fyrst og fremst um skattalækkanir. Við allur almenningur í þessu landi höfðum það nú svo ósköp gott að það eina sem gat höfðað til okkar var þetta atriði. Meiri peningar í budduna fyrir okkur hvert og eitt. Það þarf ekki að orðlengja það að flokkarnir reyndust hafa rétt fyrir sér. Kjósendur leyfðu þeim að gera skattalækkanir að máli málanna. Það var það sem hæst bar í umræðunni - fyrir jú utan enn eina fyrirferðarmikla umræðu um kvótakerfið sem ekkert hefur skilið eftir sig annað en fjóra þingmenn Frjálslynda flokksins á þingi. Hvort að þeir þingmenn eiga eftir að skilja eftir sig eitthvað sem skiptir okkur öll máli getur tíminn einn leitt í ljós.

Hvað gerðist í kosningunum? Við almenningur fengum yfir okkur þá stjórn sem við báðum um - áframhaldandi stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Reyndar má segja ef maður er fullkomlega raunsær þá var líklega enginn annar kostur í spilunum. Sorgleg staða en sönn.

Þegar ég horfði á fréttirnar í fyrrakvöld þá datt mér fyrst í hug að ég væri orðin þátttakandi í skáldsögu George Orwell Animal farm - ég er viss um að svo hefur verið með marga. Þetta getur ekki verið að gerast hugsaði ég - eru mennirnir endanlega gengnir af göflunum? Hvernig í ósköpunum getur það verið að mönnunum detti þetta í hug - á þessum tímapunkti af öllum? Eru stjórnmálamenn á Íslandi svo gjörsamlega á skjön við allan raunveruleika að þeir hafi enga tilfinningu fyrir því hvað er að gerast í kringum þá? Hvernig geta þeir leyft sér og það án þess að blikna að koma fram með frumvarp um breytingar á eigin launakjörum tveimur dögum fyrir frestun þings? Og það í kjölfarið á þeirri háværu umræðu að nauðsynlegt sé að almenningur taki á sig allar byrðarnar við aðhaldið í ríkisfjármálum? Hvernig getur það gerst að þingmenn úr öllum- ég endurtek - öllum stjórnmálaflokkum geta orðið sammála um að leggja slíkt frumvarp fram á slíkum tímapunkti? Láir mér það einhver að mér hafi dottið í hug Animal farm eftir George Orwell?

Í ljósi þeirra tilfinninga sem þarna helltust yfir mig skil ég viðbrögð verkalýðsforingjanna fullkomlega. Þeir hafa á undanförnum vikum og mánuðum lagt sig fram um að vera ábyrgir í umræðunni. Þeir hafa talað á varfærnum nótum og lagt sig í líma við að sýna okkur almenningi að þeir væru traustsins verðir. Þeir hefðu hug á að læra af mistökum fyrri tíma og halda áfram á þeirri braut sem þeir hafa markað á undanförnum árum. Að leita eftir samningum til lengri tíma með hóflegum launahækkunum. Það gekk meira að segja svo langt að það var nánast eins og það að setjast að samningaborðið væri óþarft. Þannig heyrði ég ekki betur en Ari Edwald framkvæmdastjóri viðsemjenda þeirra léti hafa eftir sér að honum litist vel á kröfugerðina eða alla vega ekki illa.

Þessi ábyrga umræða verkalýðsforingjanna og viðsemjenda þeirra hefur skipt okkur öll máli. Umræða á slíkum nótum vekur nefnilega traust okkar almennings. Við almenningur á Íslandi sem mörg hver höfum upplifað tíma óðaverðbólgu og mestan part ófrið á vinnumarkaði vitum hvers virði stöðugleikinn er. Við vitum líka hvers virði friðurinn er. Ég ætla að leyfa mér að fullyrða (að sjálfsögðu af fullkomnu ábyrgðarleysi) að meirihluti þjóðarinnar vill ekki ófrið eða óvissu á vinnumarkaði. Á tímum eins og undanfarna mánuði þegar stjórnvöld hafa hent hverri sprengjunni á fætur annarri í andlit launafólks þá hafa það verið fyrst og fremst verið hagsmunasamtök vinnumarkaðarins sem hafa alið með okkur traust á framtíðinni. Einmitt þess vegna er svo gjörsamlega ómögulegt að skilja þessa gjörð stjórnmálamannanna. Það eru jú einu sinni þeir sem eiga að vekja með okkur traust og öryggi. Þeir hafa ekki það hlutverk að kasta sprengjum inn í þjóðlífið en hvað hafa þeir gert annað á undanförnum mánuðum? Hvaða samfélagslegu ábyrgð hafa þeir sýnt okkur almenningi á undanförnum mánuðum og vikum? Hvaða hugmyndir hafa stjórnvöld haft í frammi til að hemja ríkisútgjöld á næstu misserum? Hverjar hafa efndirnar verið á kosningaloforðunum?

Hækkun bensíngjalds
Lækkun vaxtabóta
Niðurfelling greiðslu bóta fyrir 3 fyrstu daga atvinnuleysis
Frekari niðurskurður í heilbrigðiskerfinu
Samningsrof við öryrkja

Í gær heyrði ég í fréttum að verðbólga síðustu þriggja mánaða hefði mælst 4% miðað við heilt ár. Ástæðan fyrst og fremst hækkun bensíngjaldsins. Ekki í fyrsta skipti á undanförnum misserum sem ákvarðanir ríkisstjórnarinnar hafa áhrif til hækkunar vísitölunnar eða hvað með hækkun þeirra á áfengi og tóbaki um mitt ár 2001 þegar verðbólgan var farin úr böndum og allur almenningur hafði miklar áhyggjur af. Ríkisstjórnin hlustaði ekki á þær áhyggjur þjóðar sinnar þá og gerir það ekki fremur nú.

Lækkun vaxtabóta er bein skerðing tekna til framfærlslu. Ríkið ætlar að greiða tilteknum hópi minna til baka af því leiðir bein skattahækkun.

Ríkisstjórnin ætlaði sér allt þar til í gær að skerða greiðslur til atvinnulausra með því að hætta að greiða fyrir 3 fyrstu dagana í atvinnuleysi. Hún bakkaði með þá ákvörðun á síðustu stundu eftir miklar yfirlýsingar um hið gagnstæða. Ég sem kjósandi hef enn ekki heyrt rökin að baki þessari áætlun. Ég hef ekki heyrt af því að atvinnulausir ríði feitum hesti hér á landi og raunar eru atvinnuleysisbætur svo fáránlega lágar að mér er gjörsamlega hulið hvernig það fólk fer eiginlega að því að lifa í þessu samfélagi. En atvinnulausir eru eins og aðrir sem minna mega sín í þessu fyrirmyndarþjóðfélagi okkar "óhreinu börnin hennar Evu" sem enginn vill vita af.

Niðurskurður í heilbrigðiskerfinu. Gerð var úttekt á því að samruni stóru sjúkrahúsanna Landsspítalans og Borgarspítalans hefði kostað milljarð. Þar að auki kom í ljós að samruninn hafði engu skilað til lækkunar á kostnaði sem þó var meginmarkmiðið. Ríkisstjórnin gerði ekki ráð fyrir neinum kostnaði vegna samruna þessara stofnana á fjárlögum! Af því leiðir milljarður sá sem sameiningin kostaði var greiddur með fjármunum sem ætlaðir voru til reksturs heilbrigðiskerfisins. Hvar kemur niðurskurðurinn niður? Á almenningi. Almenningur skal sem fyrr fá að taka á sig vitlausa ákvarðanatöku stjórnvalda. Þeir sjá enga ástæðu til að horfast í augu við afleiðingar eigin ákvarðana og bera ábyrgð á þeim.

Það skal tekið fram að til lengri tíma getur vel verið að samruni spítalanna leiði til góðs. Ég ætla mér ekki sem leikmanni að hafa hundsvit á því. Ég ætlast aftur á móti til þess og finnst það raunar svo sjálfsagt að það þarf vart að ræða - að stjórnvöld geri ráð fyrir að slíkar stórákvarðanir sem hér um ræðir kosti peninga. Það getur ekki verið rétt að stjórnvöld geti leitt slíkar breytingar án þess að kosta til þess nokkrum fjármunum - það hreinlega gengur ekki upp.

Og þá er það framkoman við öryrkjana. Það er mál sem ég sem þegn í þessu landi skammast mín fyrir að eiga óbeint aðild að. Ég get ekki skilið hvernig stjórnvöld geta talið það sérstakt hlutverk sitt að vera í stríði við þá sem erfiðast eiga í samfélaginu. Hvorki fyrri eða seinni öryrkjadómurinn hefði átt að verða að dómsmáli hvað þá að það sé okkur samboðið að þriðja öryrkjamálið sé á leiðinni fyrir dóm. Þetta mál er stjórnvöldum til svo háborinnar skammar að það tekur ekki nokkru tali. Á sama tíma og þrír forstjórar ríkisfyrirtækja hafa gengið út með 140 milljónir fyrir það eitt að hafa hætt störfum sínum telja stjórnvöld sér það samboðið að standa í illvígum deilum við alla öryrkja á þessu landi út af 500 milljónum? Hvar er samhengi hlutanna hér? Um hvað fjallar þessi deila annað en karlmenn sem ekki þola að tapa?

Hver getur verið hissa á reiði og tilfinningahita verkalýðsforingja og almennings í landinu þegar í kjölfarið á slíkri umræðu taka þingmenn allra stjórnmálaflokka landsins sig saman um að lagfæra eigin kjör? (Mér er alveg sama þó sú lagfæring eigi einungis við hluta þeirra). Og það án þess að slíkt mál eigi að fá nokkra umræðu á þingi? Án þess að nokkrir útreikningar liggi að baki, ... si svona? Það sem skiptir máli er tímasetningin og hrokinn sem í þessari hugmynd felst. Þess vegna eru viðbrögðin svona sterk og þau eiga svo sannarlega fullan rétt á sér. Þessi hugmynd lyktar ekki af neinu öðru en því að þeir stjórnmálamenn sem eiga í hlut trúa því og treysta sem fram kemur í fyrirsögninni hér að ofan að ... kjósendur séu heimskir ... Þeir leggja þetta fram án nokkurrar kynningar eða umræðu til samþykktar ... si svona - í trausti þess að kjósendur verði jú hneykslaðir í skamma stund en verði svo fljótir að gleyma. Þannig hefur það jú alltaf verið ...

mánudagur, 15. desember 2003

Kvenna… eitthvað…

Grein upphaflega birt á www.kreml.is fyrir jólin 2003 - endurbirt á bloggi 7. nóvember 2009

Það er hræðilegt að eignast tengdætur en það er yndislegt að eignast tengdasyni. Þetta sagði kona sem ég gekk fram hjá í Kringlunni áðan. Viðhorf sem margir kannast við úr eigin lífi eða hvað?

Biblíusögurnar túlkuðu guðspjöllin sem skrifuð voru af Jóhannesi, Lúkasi, Mattheusi, Pétri, Páli o.fl. Íslandssaga Jónar frá Hriflu sagði okkur frá Garðari Svavarssyni, Hrafna-Flóka, Ingólfi Arnarsyni, Hjörleifi o.fl. "hetjum" fyrri tíma. Allt sem var þess virði að vita allar götur frá því ég hóf skólagöngu var túlkað af körlum um karla.

Uppáhaldssaga mín "Veröld sem var" eftir Stefan Zweig fjallar um karla, minnist vart á konur. Fjölmiðlar alla daga allt mitt líf fjalla um sjónarmið og túlkanir karla á því sem er. Við förum í leikhús, horfum á bíómyndir, lesum bækur og blöð þar sem fjallað er um samfélagið frá sjónarhóli karla. Viðhorf karla til lífsins og samfélagsins er viðhorfið. Það sem er samþykkt, það sem við öll göngumst við.

Um jólin komu út margar bækur sem fjalla um karlmenn. Ævisögur, skáldsögur, fræðirit og eflaust fleiri tegundir bóka. Halldór, Valtýr Stefánsson, Jón Sigurðsson, Þráinn Bertelsson - bækur um og eftir þessa menn komu allar út um þessi jól skrifaðar af körlum um karla.

Í Kastljósi í gærkvöldi talaði Svanhildur kynsystir mín og umsjónarmaður þáttarins um þrjár bækur sem komu út núna fyrir jólin og allar áttu það sameiginlegt að hafa fjallað um konur. Þetta voru bækurnar Ambáttin, Dætur Kína, þriðju bókina nafngreindi hún ekki en það mátti skilja það svo að þar talaði hún um Lindu. Hún spurði viðmælanda sinn Auði Haralds um hvað hún héldi að orsakaði að svo margar bækur kæmu út af þessu tagi.

Falla þessar þrjár bækur undir sama hatt af því einu að þær fjalla um konur? Er það eitt nægilegt að aðalpersónur bóka séu konur til að fjallað sé um þær sem sérstakan flokk bóka? Hefur einhver ykkar heyrt talað um bækurnar um Halldór, Valtý Stefánsson, Jón Sigurðsson Þráin Bertelsson og fleiri góða menn sem karlabækur? Hvað gefur þetta orðkvenna... eitthvað til kynna? Felast ákveðin skilaboð í þessu formerki kvenna...?

Ég elska jólin ekki síst vegna þess að um jól leggst ég í bækur. Á jólunum fyllist ég þessum yndislega innri friði og fæ útrás fyrir þetta gamla áhugamál mitt að lifa mig inn í líf annarra persóna á þennan hátt. Ekkert jafnast á við það að lesa góðar bækur. Á unga aldri lærði ég þessa aðferð til að komast úr sveitinni, firðinum, landinu og inn í annan heim langt í burtu. Þessi stóri heimur var ótrúlega spennandi og á tímum vildi ég helst ekkert annað gera. Að lesa um Kötlu Ragnheiðar Jónsdóttur, Casanova, Tove Ditlevsen, Heim skurðlæknanna, Undir gunnfána, ástir, örlög, líf, dauða, kynhvatir, græðgi, grimmd, hatur, örbirgð, ríkidæmi, allt milli himins og jarðar gaf mér breiðari sýn á heiminn en ég hefði annars.

Ég var ung að árum farin að rífast við pabba minn um jafnrétti allra til sama lífs hvernig sem þeir væru á litinn, af hvaða kyni sem þeir væru eða hvaða kynhneigð þeir hefðu. Ég gat ekki skilið það að inn í þennan heim væru einhverjir fæddir óæðri en aðrir. Fyrir mér var allt þetta fólk sem ég las um, mannfólk. Mjög ung varð ég öskureið þegar ég heyrði talað um "konur og menn"! Ég skildi þetta aldrei og var þá þegar farin að halda heilu fyrirlestrana um að konur væru menn! Ef þær væru ekki menn hvað væru þær þá - dýr?

Ég er enn þessarar sömu skoðunar að konur séu menn. Í því að vera maður felst m.a. það að vera ófullkominn og síbreytilegur. Menn hafa tilfinningar, skynjanir, hvatir, hver og einn á sinn persónulega hátt. Ekki er hægt að ganga að neinu vísu, einum og sama manninum finnst eitt í dag og annað á morgun, hann er óútreiknanlegur. Einmitt sú staðreynd gerir hann svo áhugaverðan.

Umhverfið mótar manninn, það hvort að maðurinn er kona eða karl, svartur eða hvítur, fæddur á Indlandi eða á Íslandi mótar hann. Það hvernig við erum á litinn eða af hvaða kyni við erum hefur líka áhrif á möguleika okkar, þannig hefur það alltaf verið og þannig er það enn.

Ég er ekki vel að mér í sögu mannkynsins en ég veit þó eins og við vitum flest að í gegnum veraldarsöguna hafa ákveðnir hópar manna á jörðinni talað sig æðri öðrum hópum. Hvítir menn vesturlanda hafa síðustu árhundruðin talið sig öllum öðrum æðri og gera enn. Menn sem voru öðruvísi á litinn voru þrælar þeirra, gengu kaupum og sölum og áttu engan rétt í heimi hinna hvítu. Það er ekki langt síðan þrælahald af þessum toga var afnumið með lögum í flestum ríkjum heims.

Fyrir okkur sem fæddumst á Íslandi upp úr miðri síðustu öld er þrælahald fjarlægt vandamál fyrri kynslóða fyrri alda - kemur okkur ekki við. Viðfangsefni okkar eru önnur. Okkar umhugsunarefni eru hvort við eigum að kaupa hlutabréf í De Code í dag eða Eimskip á morgun, hvort við eigum að kaupa stærri íbúð eða bíl eða hvort við eigum að fara í líkamsrækt ..... Þetta er veröldin okkar. Í eyrum okkar daglangt glymja fréttir af hungursneyð, stríði, hryðjuverkum og glæpum annars fólks annars staðar í veröldinni. Við kippum okkur ekki upp við þessar fréttir - erum fyrir löngu, löngu síðan orðin samdauna þeim og skynfæri okkar algjörlega dauð fyrir því að það sé verið að fjalla um fólk, manneskjur eins og mig og þig með langanir, þarfir, hvatir, tilfinningar. Í öllu þessu flóði frétta sem fyrir löngu eru hættar að vera fréttir í þeim skilningi að þær komi við okkur koma enn út ...

bækur - Guði sé lof og dýrð fyrir það. Bækur sem víkka út sjóndeildarhringinn. Bækur sem gefa okkur innsýn inn í veröld annarra manna annars staðar í veröldinni.

Bækur eins og Guð hins smáa sem fjallar um hina ósnertanlegu á Indlandi. Menn sem fæðast inn í þennan heim sem óæðri verur en dýr, menn sem eiga sér ekki viðreisnar von í samfélagi sínu frá fæðingu. Bækur eins og Eyðimerkurblómið og Eyðimerkurdögun sem fjallar um líf konu sem fæðist inn í hirðingjafjölskyldu í Sómalíu og flýr þaðan 13 ára gömul þegar á að fara að gifta hana. Stúlku sem er misþyrmt með umskurði eins og öðrum stúlkum af sama kynþætti á barnsaldri á þann hátt að maður verður ekki samur eftir að hafa lesið um það. Bækur eins og Ambáttin sem fjallar um líf ungrar stúlku í Súdan sem er tekin er til fanga og hneppt í þrælahald í nútímanum. Þrælahaldið á sér ekki einungis stað í fjarlægu landi heldur færist það í næsta nágrenni við okkur og heldur áfram þar. Bækur eins og Dætur Kína þar sem fjallað er um ofbeldi og kúgun kvenna í Kína sem byggir á árþúsundagamalli hefð. Kúgun sem vekur manni viðbjóð, reiði og ólýsanlega réttlætiskennd.

Guði sé lof að enn koma út slíkar bækur. Bækur sem fjalla um neyð og kúgun manna á öðrum mönnum. Kúgun sem kemur okkur öllum við og við skyldum aldrei gerast svo hrokafull að afneita - jafnvel þó um sé að ræða konur.

Er til of mikils mælst að við sýnum þessum bókmenntum virðingu - jafnvel þó að aðalsöguhetjurnar séu konur? Eða eigum við að fara langt inn í tuttugustu og fyrstu öldina með þann farangur að allt kvenna... eitthvað sé kjaftæði?

"Fimm þúsund ára heimsstjórn karlmannsins er vörðuð styrjöldum og misrétti... ...Sjónarmið kvenna hafa oftar en ekki verið sett til hliðar og afgreidd sem "kerlingakjaftæði". ...Guðrún gengur inn í hin helgu vé karlmanna; skoðar mýtuna, goðsöguna frá nýjum sjónarhól; - bein í baki. Niðurstaða hennar er skýr; goðsögur á öllum tímum eru skrifaðar af karlmönnum, fyrir karlmenn til þess að viðhalda veldi karlmanna... ...Kjarninn í fornum sögum er að karlmenn séu herrar jarðarinnar, sem hefji sig upp til guðs í hæstu hæðum; - himinguðir, máttugir og alvitrir... ...Hann er guð, herra jarðar, herra konunnar. Þarna liggja dýpstu rætur misréttis. Þetta sér og skilur Guðrún; - hin nýja kona sem lætur ekki skipa sér til sætis. Hún tekur sér sæti."

Úr inngangi Halls Hallssonar
Gunnar Dal. Í dag varð ég kona. Bókaútgáfan Vöxtur 1997. Bls. 7 -9.

fimmtudagur, 16. október 2003

“Ég er algjörlega ópólitísk – ég kýs bara Sjálfstæðisflokkinn!”

Þessi grein birtist á vefnum www.kreml.is 16. október 2003

Þessi orð koma mér í hug í kjölfar uppákomu dagsins. Ég veit ekki eftir hverjum þau eru höfð eða hvort einhver hefur látið þessa setningu orðrétta út úr sér. Hvað um það meiningin í þessum orðum er það sem skiptir máli hér. "Ég er algjörlega ópólitísk - ég kýs bara Sjálfstæðisflokkinn!" Í þessa veruna virðist manni að ákveðnum mönnum þessa lands virðist eðlilegt að við hugsum. Á Íslandi er lýðræði í hávegum haft - það er okkur sagt og því eigum við að trúa. Hvort svo er þegar grannt er skoðað skiptir ekki máli, okkur er sagt að þannig sé það og þá er það þannig.

Eitt af grundvallaratriðum lýðræðisins er að þegnarnir hafa rétt til að láta í ljós skoðun sína... það stendur hvergi skráð svo ég viti að sú skoðun þurfi að vera rétt. Í lýðræðisríkinu Íslandi virðist það nú samt skipta öllu máli. Þú hefur ekki heimild til að láta í ljós eða viðra aðrar skoðanir en þær sem þóknast valdhöfunum. Það sem meira er þú hefur ekki leyfi til að gagnrýna málefni nema að þú gagnrýnir þau rétt.

Í nokkurn tíma hefur mér orðið tíðrétt um þann frábæra fréttaskýringarþátt Spegilinn sem er á dagskrá Rásar 2 að loknum fréttum síðdegis. Ég hef ekki átt orð til að lýsa ánægju minni yfir þessum þætti sem að mínu áliti hefur einkennst af gagnrýni og sjálfstæðum vinnubrögðum fréttamanna. Umsjónarmenn Spegilsins hafa skorið sig úr í annars mjög einsleitri umræðu. Þeir hafa spurt sig spurninga og leitað svara - hafa ekki gengið aðeinu svari gefnu.

Spegillinn er eini þátturinn þar sem fréttamenn kjósa ekki að taka það málefni sem hæst ber í umræðunni sömu tökum og allir hinir - heldur láta frumleikann ráða för. Þeir hafa verið duglegir að velta upp fleiri hliðum í umræðunni - fá okkur áheyrendur til að hugsa hlutina ekki bara á einn veg. Það er nefnilega svo skrítið að flestir hlutir eru ekki bara svartir eða hvítir, þeir eru líka brúnir, gulir og rauðir og jafnvel bleikir. Það eru ekki bara ein eða tvær hliðar á málum eins og manni virðist oft í umræðunni heldur eru þær miklu, miklu fleiri. Og Guði sé lof - það hefur verið til einn fréttaskýringarþáttur í þessu landi þar sem umsjónarmenn hafa áttað sig á þessu, einn! Ég hef a.m.k. ekki tekið eftir að þeir séu mikið fleiri. Af uppákomu dagsins að dæma þá er það einum of mikið. Við þegnar þessa lands eigum ekki fá nema eitt rétt sjónarhorn. Sú gagnrýni og það viðhorf sem heyrist í Speglinum er nefnilega "vinstri slagsíða" og slík viðhorf eru engum holl og skulu ekki líðast.

"Vinstri slagsíða" - hvað skyldi samhengi þessara orða þýða? Geta Björn Bjarnason eða Markús Örn Antonsson verið svo vinsamlegir að upplýsa okkur óupplýstann lýðinn um það? Er "vinstri slagsíða" einfaldlega það að velta upp öðrum hliðum í einsleitri umræðunni? Hvernig skilja þessir menn lýðræði?

Í sumar las ég viðtal við hjón í Morgunblaðinu, ef ég man rétt frá Slóveníu sem hafa búið hér á landi um nokkurt skeið. Ég hjó sérstaklega eftir einu sem konan (sem ég því miður man ekki hvað heitir) hafði á orði í þessu viðtali en það var hversu mjög hún saknaði pólitískrar umræðu hér á landi. Að hennar mati var algjör skortur á því hér að farið væri ofan í pólitíkina og hún rædd frá mörgum hliðum. Að hennar mati (og ég verð að deila þeirri skoðun með henni) er allt meira og minna pólitískt í umhverfinu.

Pólitík er að hafa skoðanir og taka afstöðu. En því er ekki þannig farið á Íslandi. Pólitík er eitthvað vont - það að hafa pólitískar skoðanir er eitthvað sem þú átt að skammast þín fyrir og helst að fela nema aðeins að þú sért sammála þeim flokki sem hér hefur leikið aðalhlutverkið alla öldina - Sjálfstæðisflokknum. Ef þú fylgir honum er í lagi að þú hafir skoðanir og þú mátt láta þær uppi opinberlega eins oft og lengi og þú vilt. Það eru réttar skoðanir og til þess eins fallnar að hjálpa þér að komast áfram í lífinu.

Hversu oft rekum við okkur ekki á þetta viðhorf?

Það þykir t.d. sjálfsagt hér á landi að fulltrúar ráðningaþjónusta komi fram opinberlega með fyrirlestra og láti þess getið að pólitískar skoðanir og áhugi umsækjenda í pólitík sé litinn hornauga. Oftar en einu sinni og oftar en tvisvar hef ég verið áheyrandi að því frá starfsfólki þessara fyrirtækja að það sé neikvætt fyrir umsækjendur að láta í ljós pólitískan áhuga! Þessir annars ágætu einstaklingar hafa þó aldrei gengið svo langt að segja að það að hafa aðrar skoðanir en þær sem eru þóknanlegar Sjálfstæðisflokknum séu neikvæðar. Þess hefur heldur ekki þurft það vitum við öll sem búum í þessu landi. Það þvælist ekki beinlínis fyrir ungum karlmönnum í Sjálfstæðisflokknum að komast í góðar stöður, þeim eru beinlínis boðnar þær. Það að vera trúr og dyggur Sjálfstæðisflokknum er eitthvað það besta veganesti sem þú getur haft í gegnum lífið.

Eða hvað? Hvað áttu áttu á hættu ef þú vogar þér að hafa sjálfstæðar skoðanir? Hvað með Egil Helgason? Hvað með Þorfinn Ómarsson? Hvað með Eirík Tómasson?

Vertu algjörlega ópólitískur og kjóstu Sjálfstæðisflokkinn - og þér mun vel farnast!

Munum það gott fólk og umfram allt - munum að halda kjafti um allt sem fallið getur undir "vinstri slagsíðu" og NOTA BENE það innifelur allt sem heitir gagnrýni á réttviðhorf - gleymum því ekki!

Signý Sigurðardóttir

Áhugamaður um stjórnmálaumræðuna

...og stuðningsmaður allra þeirra sem taka áhættuna á því að leyfa sér að gagnrýna það sem er ... hvort heldur það er Ólafur Teitur Guðnason, Hannes Hólmsteinn Gissurarson eða Guðmundur Steingrímsson.

mánudagur, 30. júní 2003

Gerendur eða þolendur?

Gunnar Smári Egilsson ristjóri Fréttablaðsins skrifar óvenju athyglisverða leiðara þrjá daga í röð í síðustu viku um jafnréttismál.  Ég verð að játa að það er langt síðan ég hef séð jafn skemmtilega umfjöllun um þessi mál - hafi höfundur sérstakar þakkir fyrir.  Það sem ekki síst vakti athygli mína og áhuga er að þessir leiðarar eru skrifaðir af virðingu fyrir málefninu.  Þetta eru ekki skrif lituð af hroka og lítilsvirðingu við konur heldur miklu fremur innlegg í baráttu þeirra – ábendingar til okkar kvenna um að líta í eigin barm.  Það getur ekki talist glæpur – ætti miklu fremur að vera okkur konum gleðiefni að ritstjóri dagblaðs með mikla dreifinu telji ástæðu til að skrifa um jafnréttismál þrjá daga í röð!  Er ekki ástæða til að fagna því einu og sér? 

Sá athyglisverðasti af þessum þremur verður að teljast sá síðasti skrifaður 27. júní undir fyrirsögninni “Jafnrétti eftir jafnréttið”.  Þar vitnar höfundur á sannfærandi hátt til Halldórs Laxness og áhrifa hans á sjálfsmynd íslensku þjóðarinnar á 20. öldinni.  Það er ekki hægt að misskilja Gunnar Smára – hann ráðleggur okkur konum að breyta áherslum okkar í jafnréttisbaráttunni – í leit að fyrirmynd þurfum við ekki að líta lengra en til þeirra gríðarlegu breytinga sem orðið hafa á sjálfsmynd þeirrar þjóðar sem við tilheyrum á tiltölulega stuttum tíma.  Að mínu mati er þessi hugmynd Gunnars Smára allrar athygli verð og ástæða til að skoða hana nánar.

Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að “fórnarlambshlutverkið” hafi ekki verið okkur konum til framdráttar í jafnréttisbaráttunni og raunar er ég sannfærð um hið gagnstæða.  Ég t.d. velti því fyrir mér hvort að áherslur nýstofnaðs Feminstafélags Íslands séu örugglega hinni “venjulegu” konu til framdráttar eða til þess fallnar að hjálpa henni í baráttunni við að öðlast jafnan rétt.  Ég er ekki svo viss um sú sé raunin.  Á sama tíma og ég gleðst mjög yfir stofnun þessa félags og því að jafnréttismál eru þar með komin aftur á dagskrá – það var svo sannarlega kominn tími til – þá hef ég orðið fyrir miklum vonbrigðum með árherslur þeirra.  Það að leggja svo mikla áherslu á “aumingjahlutverkið” –  konur sem fórnarlömb er ekki sérstaklega til þess fallið að efla okkur og styrkja í baráttunni.  

Það hvarflar ekki að mér að gera lítið úr nauðsyn þess að berjast gegn misrétti og ofbeldi í heiminum – sú barátta er gríðarlega mikilvæg og kannski aldrei fremur en nú þegar mansal virðist í miklum blóma.  En á þessi barátta endilega samleið með jafnréttisbaráttu hinnar “venjulegu” konu sem berst fyrir tilvist sinni jafnfætis körlum í veröldinni?  Eða svo við smækkum myndina aðeins – hér á Íslandi?  Ég er ekki svo viss um það.  Ég er þess raunar fullviss að þessi “aumingjastimpill” sem konur höldum svo óskaplega mikið upp á vinni beinlínis gegn okkur ekki með okkur.  

Ég held að barátta mín fyrir því að sitja við sama borð og karlar þegar kemur að launum eða því að eiga sömu möguleika til starfs við hæfi eigi ekki mikið skylt við réttleysi kvenna sem ganga kaupum og sölum á kynlífsmarkaði dagsins í dag.  Ég held að hér séu tveir ólíkir hlutir á ferðinni sem ber mikla nauðsyn til að aðskilja.  Hvor um sig á rétt á sér – en það á ekki að blanda þessu tvennu saman.  Ég hef ekki nokkra trú á barátta okkar gegn þrælahaldi kynlífsmarkaðarins komi nokkurn tíma til með að hafa áhrif í þá veru að ég eða konan í næsta húsi fáum betri laun eða betri stöður.  Hér er grundvallarmisskilningur á ferðinni sem nauðsynlegt er að gera sér grein fyrir.    

Þegar “sjálfstæðar konur” urðu til horfði ég til þeirra með velþóknun, fyrir það fyrsta fannst mér yfirbragðið – nafnið eitt sérlega áhugavert.  Það er að vera “sjálfstæður” er svo miklu eftirsóknarverðara og uppbyggilegra en að vera “fórnarlamb” – eða hvað finnst ykkur? Því miður varð þessi hrifning mín skammvinn því málflutningur þessara kynsystra minna allar götur síðan hefur miklu fremur verið í þá átt að vinna gegn jafnrétti en að stuðla að því.  Þannig hafa þær talið það sérstakt hlutverk sitt að berjast með öllum ráðum gegn konum sem ekki aðhyllast sömu pólitísku skoðanir og þær sjálfar og gengið svo langt að tala til þeirra með niðrandi hætti, allt að því fyrirlitningu æ ofan í æ eins og gleggst má sjá kosningabaráttunni sem nú nýlega er afstaðin. Það er að sjálfsögðu til of mikils mælst að við konur séum allaf sammála sem hópur.  Það erum við og verðum einfaldlega aldrei vegna þess að við erum eins ólíkar og við erum margar.  Væri samt ekki eftirsóknarvert að við lærðum að bera virðingu hver fyrir annarri og að við gerðum það að sérstöku markmiði að standa saman í baráttunni fyrir raunverulegu jafnrétti hvar svo sem við erum staddar í hinu pólitíska litrófi?  

Hugmyndin um “sjálfstæðar konur” – án þess að staðsetja þær í hinu flokkspólitíska litrófi er þó enn athyglisverð og full ástæða til að halda henni á lofti.  Ég skil skrif Gunnars Smára Egilssonar á þann hátt að hann sé að efla okkur konur til dáða.  Örva okkur til þess að vera hnarreystar og kröfuharðar – gerendur – í eigin lífi í stað þess að vera - þiggjendur.  Ég gæti ekki verið meira sammála honum hvað það varðar, það er svo sannarlega fyrir löngu síðan komin ástæða til að við konur förum í naflaskoðun og lítum markvisst á það hver ábyrgð okkar er í jafnréttisbaráttunni.  Þar er heilmikið starf óunnið.  Það er jafnan svo að það er sjaldnast öðrum að kenna þegar tveir deila það sama á við í baráttu kvenna fyrir jafnrétti.  Málið er flóknara en svo að við leysum það með því að benda á eitthvað eitt eða segja að ástandið sé körlum að kenna, enda held ég að flestir hafi nú þegar gert sér grein fyrir því.  Aftur á móti er ég ekki svo viss um að meirihluti kvenna sé þess meðvitaður hversu mikla ábyrgð við berum sjálfar á því að við náum meiri árangri.  Það er svo miklu auðveldara í þessu máli – sem og öllum öðrum að benda á sökudólga en að líta í eigin barm.  

Nú efa ég ekki að margur lesandinn bregðist hvumsa við – hvað varð um jafnréttissinnann Signýju Sigurðardóttur sem nú nýverið skrifaði grein hér á vefinn í tilefni af 19. júní – er hún ekki komin hér í algjöra mótsögn við sjálfa sig?  Það held ég ekki.  Þær skoðanir sem hér eru settar fram hafa lengi verið mér sérstakt áhugamál.  Það að vera “jafnréttissinni” er ekki endilega það sama og sættast á að vera “fórnarlamb” þar er langur vegur á milli.  Með þeim orðum gengst ég ekki við því að ábyrgðin á ójafnréttinu sé eingöngu okkar kvenna, engan veginn.  Við eigum hlut í því að ná fram leiðréttingu en ábyrgðin er margra – raunar allra sem búa í samfélaginu.  Krafan um breytingar hlýtur að koma frá okkur – það er okkar að koma umræðunni um jafnréttismál á það plan að sem flestir hlýði á okkur.  Það er okkar að benda á og koma með rök fyrir ójafnréttinu á málefnalegan hátt.  Við eigum beinlínis að gera miklar kröfur – til atvinnulífsins, stjórnmálaflokka, fjölmiðla og annarra sem málið varðar en við eigum ekki síður að gera kröfur til okkar sjálfra.  

Að síðustu ætla að ég að kasta fram þeirri ósk að umræddir leiðarar Fréttablaðsins verði til þess að koma af stað öflugri umræðu um jafnréttismál.  Hvaða atriði eru það sem eru efst á baugi í dag?  Hvaða málefni eru það sem ég og þú og konan í næsta húsi eigum fyrst og fremst við að stríða í dag?  Getur verið að það séu önnur atriði mikilvægari en barátta okkar gegn notkun kvenlíkamans í auglýsingum?  Getur verið að það sé kominn tími til að breyta áherslum í stað þess að hjakka alltaf í sama farinu?  Getur verið við séum á kolrangri braut?  Getur verið að okkur líki vel að vera  fórnarlömb?  Getur verið að það sé okkar að koma umræðunni á annað plan?  Ég ætla að varpa fram þeirri áskorun til kynsystra minna – verum ekki hræddar við gagnrýni á okkar þátt í ójafnréttinu – heldur tökumst á við það á málefnalegan hátt!

                                                                        Birt á pallborði www.kreml.is 30.06.2003


þriðjudagur, 3. júní 2003

Samfélagið okkar

Einhver skyldi ætla að eftir allt offorsið fyrir kosningarnar hlyti mér að vera mál að fjalla um úrslitin og það sem gerst hefur í kjölfar þeirra en svo er ekki. Mér er annað málefni meira hugleikið þessa dagana. Atburðir þeir sem komið hafa upp í viðskiptalífi landans undanfarnar vikur eru mér ofar í huga og eru tilefni þeirra hugleiðinga sem hér fara á eftir.

Ég hef lengi velt því fyrir mér hvar við Íslendingar almennt erum staddir í siðferðilegu tilliti í samanburði við aðrar þjóðir, í viðskiptalífi sem annars staðar. Viðskiptalífið er ekkert annað en ein mynd af samfélaginu sem við búum í og ég held að íslenskt viðskiptalíf endurspegli ekkert annað en okkur sjálf. Getur það verið að siðferði Íslendinga sé á fremur lágu plani? Hvað er siðferði og í framhaldi af því - hvað er viðskiptasiðferði?

Það verður ekki leitast við að skilgreina það í þessari stuttu grein. Flest okkar höfum ákveðnar hugmyndir um það hvað telst "siðlegt" og hvað ekki. Þáttur eins og heiðarleiki í orði og á borði er væntanlega þar ofarlega á blaði. Vitað er að menning þjóða er mikill áhrifavaldur hvað varðar afstöðu til siðferðis, það sem telst siðlegt og sjálfsagt í einu landi telst langt frá því siðlegt í öðru. Rannsóknir á þessu sviði eru allrar athygli verðar og það er vissulega ástæða til fyrir okkur Íslendinga að velta því fyrir okkur hvað við teljum "siðlegt" og hvað ekki. Hvers konar samfélag hvers konar þegna við viljum skapa. Hvers konar siðferði viljum sem þjóð endurspegla?

Sumt sem að mínu mati er algjörlega ósiðlegt þykir orðið svo sjálfsagður hlutur hér á landi að meira að segja prestar taka málið upp á sína arma og tala um það sem "vandamál". Til hvers er ég að vísa hér? Ég er vísa til þess hversu sjálfsagt það þykir hér á landi að ræða það opinberlega að það borgi sig ekki að skrá sig í sambúð eða gifta sig því maður tapar svo mikið á því peningalega! Umræða af þessu tagi hefur lengi verið viðloðandi í umræðunni og enginn gerir neinar athugasemdir við það. En hvað er verið að fara með yfirlýsingum eins og þessum? Það er verið að vísa til þess að það sé sjálfsagt að pör í sambúð nýti sér lagaramma sem settur var til stuðnings einstæðum foreldrum og var eingöngu hugsaður til þess að gera þeim lífið bærilegra. Hugsunin með lögunum var aldrei sú að það væri sjálfsagt að svindla á þeim. Er það sjálfsagt og eðlilegt að við fjöllum um þau á þann hátt? Hér tek ég einungis eitt borðliggjandi dæmi en dæmin eru mörg ef grannt er skoðað og flest okkar þekkjum þau vel. Þykir okkur ekki sjálfsagt að svíkja undan skatti, ef við mögulega komumst upp með það?

Í Viðskiptaháskólanum á Bifröst lagði einn kennarinn fyrir okkur nemendur litla könnun þar sem við áttum að svara því hvernig við myndum bregðast við eftirfarandi;

"Þú ert farþegi í bíl náins vinar. Hann keyrir á gangandi vegfaranda. Þú veist að hann keyrði á a.m.k. 60 km hraða í hverfi þar sem er 30 km hámarkshraði. Það eru engin vitni að atburðinum. Lögfræðingur vinar þíns segir að ef þú berð eiðsvarið vitni um það að hann hafi verið á 30 km hraða þá gæti það bjargað honum frá alvarlegum afleiðingum.

Hvaða rétt hefur vinur þinn á því að þú verndir hann?

1a) Vinur minn á fullan rétt á því að búast við því að ég sem vinur hans beri vitni fyrir hann um lægri hraðann.
1b) Hann á nokkurn rétt á því sem vinur minn að búast við því að ég beri vitni fyrir hann um lægri hraðann.
1c) Hann á engan rétt á því að ég sem vinur hans beri vitni um lægri hraðann.

Hvað heldur þú að þú myndir gera í þessu tilfelli?

1d) Bera vitni um að hann hafi keyrt á 30 km hraða.
1e) Segja sannleikann.

Niðurstaða þessarar litlu könnunar sem lögð var fyrir í tíma og engan veginn getur fallið undir vísindalega rannsókn var sú að 61% okkar nemenda Viðskiptaháskólans á Bifröst völdum 1b eða 1c og 1e. Þessi niðurstaða flokkaði okkur með þjóðum eins og Grikkjum (61%), Indónesum (57%) og Mexíkóum (64%). Aðrar þjóðir sem við viljum oftast meina að við eigum meira sameiginlegt með eins og Þjóðverjar, Hollendingar, Bretar og Bandaríkjamenn sýndu mun meiri svörun við þessa liði eða frá 87 upp í 93%. (Það skal tekið fram að spurningarnar sem lagðar voru fyrir voru að fyrirmynd alþjóðlegrar könnunar sem sýndi ofangreindar niðurstöður.)

Það hvort að þessi litla könnun sem lögð var fyrir á Bifröst endurspegli Íslendinga sem þjóð skal ósagt látið eða eins og kennarinn sem lagði fyrir okkur verkefni í kjölfarið sagði "Hvað segir þetta okkur um Íslendinga, segir þetta okkur kannski meira um nemendur Viðskiptaháskólans á Bifröst?" Þeirri spurningu er augljóslega ósvarað hér og nú en er ekki full ástæða til að við veltum fyrir okkur spurningum eins og þessum? Er ekki full ástæða til að við Íslendingar tökum upp umræðu um hluti sem þessa? Að við veltum því upp af og til hvað er rétt og hvað er rangt? Í viðskiptalífi okkar sem annars staðar?

Fyrir hvaða gildi viljum við standa? Hvaða þættir eru það sem við leggjum áherslu á í uppeldi barnanna okkar? Hvaða þættir eru það sem við teljum að skipti mestu máli í samfélagi okkar manna hér á jörð? Um hvað fjalla fjölmiðlar okkar Íslendinga? Hvað má lesa út úr umræðunni að sé okkar helsta og heitasta áhugamál? Er það í lagi og hið besta mál að jafnvel umræða um mannslíf snúist upp í umræðu um peninga? (Eins og gerst hefur æ ofan í æ þegar hjálparsveitir leitast við að bjarga mannslífum á fjöllum.) Getur verið að það sé eitthvað að í íslenskri þjóðarsál sem við ættum að leitast við að laga? Eða erum við kannski sannfærð um að við séum æðisleg og frábær og miklar fyrirmyndir annarra að við þurfum ekkert að ræða annað?

Getur verið að eltingarleikur við gullkálfinn sé ekki besta uppeldisaðferðin? Getur verið að það sé eitthvað að "fyrirmyndunum"?

Spyr sá sem ekki veit... en svarið brennur!

Sjá; Trompenaars, F. et. Al.. Riding the Waves of Culture. McGraw/Hill, 1998, bls. 35.

                                                                                Birt á pallborði www.kreml.is 3. júní 2003

Er viðskiptafræðin kirkja?

Ég hallast að því að svo sé – að viðskiptafræðin sé kirkja. Kirkja þar sem Mammon er Guðinn. Í morgun spurði ég Google hvernig við skilgre...