Ég er farin að hafa verulegar efasemdir um það. 15. maí nk., eftir rúmar tvær vikur verða sveitarstjórnakosningar í samfélaginu sem ég bý í. Hvar sér þess stað? Hvar eru upplýsingarnar um þessar kosningar? Hvar eru frambjóðendurnir kynntir? Hvar eru umræðurnar?
Ár hvert er mér boðið upp á ítarlega umræðu á Ríkisútvarpinu
um Eurovision-söngvakeppnina. Umræðan um hana byrjar strax janúar og stendur
óslitið fram í lok maí. Boðið er upp á kynningarþætti á lögunum í sjónvarpi á
besta tíma og umræðu um keppnina er haldið lifandi í marga mánuði með þeim
hætti að fyrir manneskju eins og mig, sem hefur nákvæmlega engan áhuga á
þessari keppni, er gjörsamlega ómögulegt að komast hjá því að vera mjög vel
meðvituð um að hún sé í gangi. Ekki bara það, heldur er umræðu um þessa keppni
haldið svo hátt á lofti að það er ómögulegt annað en halda að þessi viðburður
sé mál málanna í íslensku samfélagi ár eftir ár eftir ár.
Og þá að íþróttunum. Haldin eru heimsmeistaramót, Evrópumót,
Ólympíuleikar og alls kyns landsmót og önnur mót sem talið er lífsnauðsynlegt
að bjóða mér upp á í dagskrá sjónvarps allra landsmanna á besta tíma. Ég, sem
hef nákvæmlega engan áhuga á íþróttum, á ekki val um að losna undan þessari
áþján. Eða svo það sé skýrt orðað: Það er algjörlega ómögulegt fyrir mig að
komast hjá því að vita að þessi mót séu í gangi. Dagskrá sjónvarpsins er ár
eftir ár eftir ár eftir ár yfirtekin af íþróttamótum og það þykir eðlilegt og
sjálfsagt að bjóða mér upp á það. Það eru ekki bara íþróttamótin sem mér er
boðið upp á, heldur þykir nauðsynlegt að bjóða upp á umræðuþætti á hverjum degi
þar sem menn liggja yfir úrslitum og viðburðum dagsins á viðkomandi móti.
Og þá aftur að kosningum í landinu. Þær standa fyrir dyrum
eftir hálfan mánuð og þess sér hvergi stað. Ekki hefur enn verið boðið upp á einn
einasta þátt á besta tíma í sjónvarpi um þessar kosningar. Hvað þá að boðið
hafi verið upp á kynningu á málefnum eða frambjóðendum. Jú, sagt hefur verið
frá því í fréttum RÚV hvaða mál hver flokkur ætlar að hafa í öndvegi í
Reykjavík og þar með er það upptalið.
Í gær ákvað ég að fara að leita að kosningaefni þar sem það
virtist augljóst að það yrði ekki á vegi mínum öðruvísi. Fór inn á
kosningavef RÚV til að leita að því hvaða
efni stæði þar til boða um kosningarnar framundan. Jú, þar var að finna hlaðvarpsþætti.
Fjóra hlaðvarpsþætti þar sem talað er við ritstjóra (mestmegnis karlkyns)
héraðsfréttablaða um hvað þeir teldu að væru helstu kosningamálin í kjördæmunum,
auk þess sem hringt var í einstaklinga af handahófi (langflesta karlkyns) til
að spyrja þess sama.
Ég er ekki komin lengra í hlustuninni en í miðjan annan þátt
af fjórum en ég spyr mig: Á þetta að vera svona? Þykir þetta í lagi í
lýðræðisríki? Að lýðræðislegar kosningar í öllum sveitarfélögum landsins séu
afgreiddar með þessum hætti? Á sama tíma og Eurovisio-keppnin yfirtekur sama
fjölmiðil mánuðum saman?
Mér finnst þetta stórmerkilegt. Hlýtur þetta ekki að þýða að
nú megi ég biðja RÚV um að hafa umræðuna um Eurovision í hlaðvarpsformi
framvegis? Umræðuþættina um íþróttirnar? Má ég vinsamlegast biðja um þeir verði
færðir yfir í hlaðvarp?
Nú er það svo að RÚV hefur skýrt hlutverk í lögum. Það er
beinlíns lögbundin skylda Ríkisútvarpsins að stuðla að lýðræðislegri umræðu í
samfélaginu. Það er líka lögbundin skylda þeirra að kynna framboð til almennra
kosninga, helstu stefnumál framboða, frambjóðenda og fylkinga eftir atvikum og
það skal gefa fylkingum jafnt tækifæri til að kynna stefnumál sín „… í hefðbundnum
dagskrártíma í sjónvarpi …“
Þetta hlutverk RÚV er mjög mikilvægt og það er ekki síst
mikilvægt vegna þess að því er ætlað að tryggja nauðsynlega kynningu og
undirstöður fyrir lýðræðislega umræðu í aðdraganda kosninga.
Það getur vel verið að ungu fólki á RÚV og öðrum miðlum þyki
línuleg dagskrá hallærisleg og hafi þær hugmyndir að hún sé úrelt. Það breytir
ekki því að hún hefur enn mikið gildi og skiptir miklu máli í aðdraganda
kosninga. Ríkisfjölmiðill sem bregst hlutverki sínu á þessu sviði á sér engar
málsbætur. Þessi skylda um hlutverk RÚV er alveg skýr. Í raun og sann, ásamt
öryggishlutverkinu, sterkustu rökin fyrir því að halda almannaútvarpi gangandi.
Mér þykir vænt um RÚV og geri kröfur til þeirrar stofnunar um að standa sig í stykkinu hvað þessi mál varðar. Þetta er ekki boðlegt.
Birt á Kjarnanum 1. maí 2022
Engin ummæli:
Skrifa ummæli