sunnudagur, 8. febrúar 2026

Hugleiðing um kynni mín af leikskólum og leikskólastarfi

Uppeldislegt gildi dagvistarstofnana hefur verið mér hugleikið síðan ég var ung. Í Kvennaskólanum haustið 1982 skrifaði ég ritgerð um það efni og birti hér til gamans. Það er áhugavert að sjá hversu djúpar skoðanir ég hef á efninu þegar ég var bara 19 ára.

Það sem m.a. lá að baki var að ég hafði þá þegar starfað á leikskóla og haft aðstæður til að mynda mér skoðanir. Það segir líka þá sögu að ég var sem ung manneskja mjög samfélagslega þenkjandi og leitaðist við að sjá samhengi hlutanna. Ég var frá barnsaldri heitur jafnréttissinni og áttaði mig á því fyrir tvítugt hversu skýr tengsl eru á milli sjálfstæðis kvenna um eigið líf og dagvistunar barna.

Ég veit ekki hvers vegna en í huganum tengi ég alltaf leikskóla við reynslu mína í æsku af því að hafa tvisvar sinnum dvalið í vikutíma á Barnaspítala Hringsins. Ég var alin upp í sveit þar sem voru engir leikskólar en ég var mikil félagsvera og það var einhvers konar leikpláss á spítalanum sem mér fannst svo spennandi – þar sem margir krakkar voru saman komnir, ýmist að föndra eitthvað eða leika sér. Ég var bergnumin yfir þessu rými og fannst það svo eftirsóknarvert – það var eitthvað við þessar aðstæður sem heillaði mig upp úr skónum og ég tengi þá tilfinningu við leikskóla. Það var eitthvað þarna sem hreif mig og fylgdi mér og varð til þess að ég sá leikskóla alltaf í hillingum.

Fyrstu raunverulegu kynni mín af  af leikskólum voru samt þegar ég tók mér hlé frá menntaskóla 18 ára gömul og fór á stúfana að leita mér að starfi. Niðurstaðan varð að ég réði mig á Leikskólann Hólaborg þar sem starfræktar voru þrjár deildir og ég var á þeirri með elstu börnin, fimm til sex ára.

Þar starfaði ég níu mánuði og þarna var yndislegt að vera. Ég kynntist hópi kvenna á öllum aldri sem sýndu mér kærleika og hlýju og leiðbeindu mér í starfi. Við áttum fjörugar umræður um pólitík á kaffistofunni og ég féll inn í hópinn eins og flís við rass. Þær voru mér góðar – ég elskaði þær og ekki síður elskaði ég börnin. Ég varð strax heilluð af starfsemi leikskólans og varð þarna einarður talsmaður leikskólavistunar fyrir börn, átján ára gömul – það er ég enn.

Það var líf og fjör og gleði alla daga. Það skal tekið fram að um var að ræða leikskóla þar sem börnin fengu bara að dvelja hálfan daginn og við tókum á móti einum hópi snemma á morgnana og öðrum eftir hádegið. Auðvitað þurftum við að takast á við alls konar hluti. Þar sem mörg börn eru saman komin liggur það í hlutarins eðli. Börn eru eins eðlisólík hvert öðru og við þessi fullorðnu. Sum eru hæglát og vilja rólegheit – önnur fjörug og vilja læti.

Það sem ég minnist fyrst og fremst frá þessum tíma er gleði. Það var gaman og það var gleði og fjör. Ég heillaðist af starfsemi leikskólans eins og fram kemur í ritgerðinni sem ég birti hér og það viðhorf hefur fylgt mér alla tíð síðan. Ég ber mikla virðingu fyrir leikskólum og starfseminni sem þar fer fram og mér þykir afar vænt um þessar stofnanir.

Síðar þetta sama ár, þegar ég var átján ára, fór ég sem au pair til Svíþjóðar. Þar kynntist ég lítillega starfsemi frístundaheimilis því barnið sem ég bar ábyrgð á var orðið sjö ára. Sú starfsemi heillaði mig einnig upp úr skónum. Mér fannst mikið til koma og hugsaði um hvað mér fyndist við Íslendingar standa Svíum langt að baki.

Næsta reynsla mín af leikskóla var svo ekki fyrr en ég eignaðist barn sjálf, barn sem ég þurfti að fá vistun fyrir á leikskóla. Grein sem ég skrifaði 1991 og birt var í Morgunblaðinu hálfu ári síðar hefur verið og er í dreifingu. Sú grein var skrifuð í miklum hugaræsingi móður sem þurfti á dagvistarplássi að halda fyrir barnið sitt allan daginn en Reykjavíkurborg gat ekki svarað þeirri þörf. Það atriði réð úrslitum um að ég ákvað að flytja til Akureyrar vorið 1992 en þar var útlit fyrir að ég þyrfti ekki bíða lengi eftir heilsdagsvistun fyrir dóttur mína á leikskóla.

Skemmst er frá því að segja að dagvistarúrræði Akureyrarbæjar, þarna árið 1992, voru til fyrirmyndar og ég var alsæl með þann þátt frá upphafi. Fyrst komst dóttir mín í hendur einstakrar dagmóður með frábæra aðstöðu og þar eignaðist hún strax góðan vin. Eftir nokkra mánuði var hún svo komin með pláss á nýjum leikskóla sem hét Klappir, stofnuðum í heimahúsi að Brekkugötu 1. Þetta var yndislegur leikskóli og mér fannst ég hafa himin höndum tekið. Þarna var áhersla lögð á góð samskipti við foreldra og starfsfólkið allt varð vinir mínir. Ég elskaði þennan leikskóla og verður enn hlýtt um hjartarætur þegar ég hugsa um hann.

Dagvistarúrræðin voru það sem stóð uppúr í þessari Akureyrardvöl minni. Ég fór aftur til Reykjavíkur eftir að fyrirtækið sem ég kom til að starfa hjá fór á hausinn eftir 45 ára starfsemi.

Nú var dóttir mín orðin nógu gömul til að fá leikskólapláss í Reykjavík, þriggja og hálfs árs, og hún fór á Stakkaborg. Þar kynntist ég líka yndislegu starfsfólki – yndislegum leikskólastjóra, leikskólakennurum og almennu starfsfólki sem var hvert öðru betra. Ég kann ekki að lýsa því hvað það skipti mig miklu máli en ég veit að það sama á við um aðra foreldra, þá og nú. Að treysta leikskólanum fyrir barninu sínu, því dýrmætasta af öllu í veröldinni, er ekki eitthvað sem við eigum að tala um af léttúð. Það eru ómetanleg verðmæti í því falin að bera fullkomið traust til leikskólans.

Ég þarf ekki að orðlengja það að auðvitað var dóttir mín í „umsjá“ leikskólastarfsmanna og leikskólastarfsfólkið bar auðvitað ábyrgð á „umönnun“ hennar í þennan tíma sem hún dvaldi þar á hverjum virkum degi á milli klukkan átta og korter yfir fimm. Auðvitað fór þar fram einhver kennsla og leikskólinn starfaði eftir starfsáætlun sem ég bar mikla virðingu fyrir en grundvöllurinn var auðvitað umönnun.

Ef foreldrar geta ekki treyst því að barnið sé í umönnun leikskólastarfsmanna hafa börnin ekkert inn á leikskóla að gera – það hlýtur öllum að vera ljóst. Börn undir sex ára aldri eru ekki sett inn á stofnanir til að dvelja þar daglangt, nema stofnuninni sé treystandi fyrir þeim. Fyrir umönnun þeirra. Að veita þeim ástúð og öryggi.
Þetta segi ég með vísan til þess að leikskólastjórar vilja ekki kannast við að hlutverk leikskóla sé umönnun og gæsla. Auðvitað er hlutverk leikskóla umönnun og gæsla – um það þarf ekkert að ræða. Hlutverkið er auðvitað meira en það – það á ekki að vera geymsla, enginn vill það – ekki foreldrar eða aðrir – en það er ekki eingöngu „kennsla“ – það er beinlínis rangt að halda því fram.

Ég elska börn meira en allt og mun alltaf gera. Börn eru góðar manneskjur. Þau eru einlæg og þau eru heiðarleg. Þau eru bara eins og þau eru og það engin gríma eða leikrit þar á ferðinni.  Því miður markar lífið okkur smám saman og okkur gengur, sem fullorðnum manneskjum, misvel að viðhalda þessum eiginleikum sem við öll fæðumst með. Jesú vissi þetta því hann sagði: „Leyfið börnunum að koma til mín, því slíkra er Guðs ríki.“ Það þarf ekki að hafa um þetta fleiri orð. Þessi tilvitnun segir allt sem segja þarf um börn og mannlegt samfélag.

Ég veit að á Íslandi hefur alla þessa öld verið látið eins og það eina sem skipti máli séu peningar. Sem er svo kolrangt. Það eina sem skiptir máli þegar við deyjum er kærleikurinn sem við skiljum eftir okkur. Það hvernig við búum að börnum skiptir öllu máli. Hefur alltaf gert, gerir það núna og mun alltaf gera.

Ég veit að við búum núna í fjölmenningarsamfélagi, sem við gerðum ekki þegar ég eignaðist dóttur 1989. Ég veit að landsmönnum hefur fjölgað heil ósköp síðan þá vegna þess að við höfum flutt inn vinnuafl í stórum stíl. Ég veit að stjórnmálamenn hafa tekið misgáfulegar ákvarðanir um að lengja menntun leikskólakennara í fimm ár, sameina leyfisbréf leikskólakennara, grunnskólakennara og framhaldsskólakennara, stytta vinnutíma alls starfsfólks hins opinbera. Það breytir ekki því að stjórnmálamönnum ber áfram skylda til að veita foreldrum þjónustu – ungum mæðrum sérstaklega.

Framboð á leikskóla allan daginn er einfaldlega grundvallarþáttur hvað varðar jafnan rétt kynjanna til starfa á vinnumarkaði. Um leið og þrengt er að þessum þætti er þrengt að rétti kvenna til eigin lífs. Þannig var það árið 1975 og þannig er það árið 2026. Þannig verður það alltaf.

Það er skylda sveitarfélaga að bjóða ungum mæðrum – foreldrum – upp á leikskóla fyrir barnið á viðráðanlegu verði allan daginn. Leikskólar eru ekki sams konar stofnanir og grunnskólar – hafa aldrei verið og eiga ekki að vera. Það væri réttast að afturkalla breytinguna um sameiginleg leyfisbréf strax.

Við höfum ekkert með leikskólakennara að gera sem vilja ekki annast umönnun barna á leikskólum. Börn á aldrinum eins til sex ára þurfa fyrst og fremst á ást og umhyggju að halda. „Kennsla“ er auðvitað mikilvæg að ákveðnu marki en hún er algjört aukaatriði í heildarsamhenginu. Það gerir starf leikskólakennara ekki ómerkilegra. Starf leikskólakennara verður ekki merkilegra fyrir það að heita „kennsla“. Starf leikskólakennara er merkilegt og verður merkilegt af því að við treystum þeim fyrir því dýrmætasta af öllu í veröldinni. Börnunum okkar. Leikurinn er aðalatriði í lífi barns. Leikurinn er það sem öllu máli skiptir og við eigum að viðhalda og byggja undir á þessum fyrstu árum barnsins.

Það er þungt að eiga í opinberum deilum við fagstéttir um hlutverk þeirra, eins og raunin er hvað varðar leikskólakennara og leikskólastjóra – stéttir sem ég ber mikla virðingu fyrir  – en það er nauðsynlegt. Ein besta vinkona mín er leikskólakennari og fyrrum mágkona mín hefur starfað sem leikskólastjóri alla sína starfsævi. Þessi stétt hefur verið yfir og allt um kring í mínu persónulega lífi. Ég segi samt og segi það hreint út og meina það frá innstu hjartarótum að ef leikskólakennarar halda að starf þeirra snúist ekki um umönnun barna þá eiga þeir að starfa við eitthvað annað.

Það er ófyrirgefanlegt að leikskólakennarar kjósi að tala leikskólann niður með þeim hætti sem raunin er. Langflestir foreldrar elska leikskóla barna sinna og sú staðreynd skiptir miklu máli – er verðmæti.

Það er sjálfsagt að leikskólastjórnendur geri kröfur til sveitarfélagsins þar sem þeir starfa – eiga að gera það og ég skal styðja þá í því. Það er hins vegar ekkert eðlilegt við það að stjórnendur leikskóla geri kröfu um enn frekari styttingu dvalar barna á leikskólum borgarinnar. Það er frekleg aðför að foreldrum – sérstaklega ungum mæðrum – og það er ófyrirgefanlegt.

Leikskólastjórar eiga við stjórnunarvanda að etja. Vegna þess að samfélagið hefur breyst. Það er úrlausnarefni. Úrlausnarefni sveitarfélaga og stjórnenda leikskólanna. Það mál hefur margar hliðar og stytting þjónustunnar á einfaldlega ekki að vera valkostur á því borði.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Hugleiðing um kynni mín af leikskólum og leikskólastarfi

Uppeldislegt gildi dagvistarstofnana hefur verið mér hugleikið síðan ég var ung. Í Kvennaskólanum haustið 1982 skrifaði ég ritgerð um það ef...