sunnudagur, 20. september 2026

Hann sætti sig ekki við heim sem var ekkert nema efnið …

Orð sem Andri Snær Magnason notaði til að lýsa Ísak Harðarsyni í minningargrein um hann vorið 2023. Orð sem snertu mig. Snertu mig djúpt.

Ég á þetta nefnilega sameiginlegt með Ísak Harðarsyni – ég á erfitt með að sætta mig við heim sem er ekkert nema efnið. Undarlegt áreiðanlega, í ljósi þess hver starfsvettvangur minn hefur verið en samt svo satt.

Haustið 1999 hóf ég nám í Viðskiptaháskólanum á Bifröst. Í frumgreinadeild þó ég væri með einkunnir nálægt 9 í meðaleinkunn á stúdentsprófi og 11 ára reynslu af alþjóðlegum viðskiptum. Ég var auðvitað kjáni að gefa yfirleitt færi á því en þegar mann skortir sjálfstraust þá gerir maður ýmislegt undarlegt.

Orðið nokkuð síðan ég áttaði mig á hversu óskaplega vitlaust nám ég valdi mér og hversu afdrifarík sú ákvörðun var. Það lá eitthvað svo beint við. Fyrst ég hafði valið að starfa í viðskiptum var eitthvað svo augljóst að fara í nám í viðskiptafræði. Þvílík vitleysa! Þvílík sóun á árum sem hefðu getað verið nýtt í eitthvað gagnlegt. Eitthvað uppbyggilegt. Eitthvað sem skipti einhverju máli. Í þess stað fór ég í nám þar sem ég engdist sundur og saman því hausinn á mér var að þorna upp af völdum tæknináms sem þóttist hafa svörin við ölluðum sköpuðum hlutum. Sem betur fer og til að gæta allrar sanngirni með undantekningum – vissulega. Annars hefði ég ekki lifað af.

Já, ég get játað það hér að mér fannst viðskiptafræðinám á Bifröst heilt yfir ekki skemmtilegt nám – eiginlega fjarri því. Og það gaf mér heldur ekki næringu. Eiginlega miklu fremur hið gagnstæða. Ég man eftir dögum þar sem ég fór á bókasafnið að leita að bókum um heimspeki eftir Pál Skúlason eða Sigurð Nordal … bara eitthvað til að losna undan þessu materíalska … sem var að gera mig brjálaða.

Og reyndar fór það svo að í lok þriðju annar fékk ég taugaáfall. Ég brann yfir í bókstaflegri merkingu. Ég bara gat ekki meir … fékk andnauð einhverja nóttina og hélt ég væri að deyja – nú væri komið að því! Ég fékk skólabróður minn úr næsta bústað til að fara með mig til læknis í Borgarnesi (enn bíllaus og bjó í sumarbústað fyrir ofan skólasvæðið) sem sendi mig heim með þær fréttir að það væri allt í lagi með mig. Ég hefði leyft streitunni að ná tökum á mér og ofandað sem væri vel þekkt fyrirbæri – nú þyrfti ég bara að slaka á.  Vörn misserisverkefnis var framundan – verkefnið um mismunandi færslur gengismunar í bókhaldi íslenskra stórfyrirtækja – verkefni sem ég hafði unnið hörðum höndum að því að klára – og tókst það. Man að ég stóð upp og svaraði spurningum fyrirspyrjenda af miklu öryggi þennan dag. Þeir gáfu okkur samt bara 7. Létu það fylgja að ef við breyttum einu tilteknu atriði í lokaskilum gætum við mögulega fengið 8. Ég settist við tölvuna og hugðist reyna að verða við því … en það reyndist ómögulegt. Bara að setjast við tölvuna var eins og ég var væri sjálf komin í beint samband við rafmagn. Ég gat það ekki. Var komin á stað sem ég varð að játa mig sigraða og taka mér frí til að hlaða batteríin að nýju.

Þetta taugaáfall var fullkomlega eðlilegt viðbragð við fullkomlega óeðlilegu ástandi. Ég hafði komið í þennan skóla með útbrunninn batterí – þennan skóla af öllum – skóla sem byggði á því verklagi að krefjast verkefnaskila í hverju fagi í hverri viku. Oftar en ekki hópverkefnum. Skóli sem gaf engin færi á því að lesa, hvað þá að hugsa. Allt gekk út á að framleiða. Framleiða og framleiða meira og meira af lausnum. Jesús minn hvað þetta var þreytandi og hvað þetta hentaði mér illa. En auðvitað svaraði ég þessu kalli. Metnaðurinn var ekki slökknaður enn og ég barðist til síðasta blóðdropa að fá eins háar einkunnir og mögulegt var.

Í ákvörðuninni – að fara í nám á Bifröst – fólst mikil uppgjöf, því ég hafði alltaf ætlað í háskólanám erlendis. En það var flókið að vera einstæð móðir með engan höfuðstól og ég hreinlega guggnaði á því að gera annað en vera hér heima. Að fara í viðskiptafræði lá einhvern veginn beint við því það var greinin sem ég starfaði í.

Hugsunin þá var að fara í „stutt“ praktískt nám (sem það varð auðvitað ekki í ljósi frumgreinadeildarinnar) var ekkert fráleit hugsun þegar ákvörðunin var tekin – en hins vegar var hún algjörlega fráleit þegar ég útskrifaðist. Það er ótrúlegt til þess að hugsa hvað gerðist þessi ár – hvaða breytingar urðu á samfélaginu. Að koma úr háskóla með diplomagráðu vorið 2002 var nákvæmlega einskis virði.

Ég man það enn eins og það hafi gerst í gær að einhvern tíma áður en ég fór upp á Bifröst leitaði ég til „heilara“ í Kópavoginum. Eins og ég sagði frá í síðustu grein, hafði ég tapað orkunni og var á þeim stað að vilja reyna allt til að fá hana aftur,. Að fara til heilara var eitt af því. Ég man enn hvað ég var gjörsamlega orkulaus og búin á því og hvað þessi tími reyndist því miður gjörsamlega gagnslaus. Ég fór í einhverja handayfirlagningu sem skilaði engu.

Þetta var staðan á mér þegar ég hóf nám í þessum skóla sem ég hafði svo miklar væntingar til.

Viðskiptaháskólinn á Bifröst var ekki staður þar sem mér leið vel. Ég vil ekki vera grimm, því auðvitað kynntist ég yndislegu fólki þar – ekki síst í frumgreinadeildinni – sem mér þykir undurvænt um og mun alltaf þykja og kennurum ekki síður, en því miður verður að segjast að þessi skóli var ekki stofnun sem byggði undir sjálfstraust mitt nema síður væri og mér leið einfaldlega aldrei vel þar.

Ég lagði af stað 36 ára með miklar væntingar um námið sem slíkt. Það sem ég kynntist var vertíðarstemning. Í stað þess að fá okkur nemendur til þess að hugsa gekk allt út á „afurðir“. Við áttum að skila verkefni í hverju einasta fagi í hverri viku. Álagið var brjálæðislegt. Hópstarf mjög vinsælt án þess nokkurn tíma að gerð væri tilraun til að skýra út fyrir okkur hverju það ætti að skila – öðru en því „að það átti að gera okkur svo gott þegar við kæmum út á vinnumarkaðinn“.

Eins og flestir vita sem taka þátt í endalausu hópastarfi án skilgreiningar þá endar slíkt oft með því að einn eða tveir einstaklingar vinna megnið af vinnunni. Þannig var það oft á Bifröst. Ef þú hafðir metnað til að fá góðar einkunnir var oft látið með það eins og það væri neikvætt. Ég ætla ekki að þreyta ykkur með löngum lýsingum á þessum skóla. Aðeins að segja að það var svo margt í viðskiptafræðinni sem mér fannst illþolanlegt og andlaust og ég var oft gjörsamlega við það að bilast af innrætingu á „selfölfeligheder“ eins og einn samnemandi minn orðaði það einhvern tíma.

Í stað þess að fá mig til þess að hugsa var sífellt látið að því liggja að ég væri með „hið eina sanna svar“ í höndunum. Og mér var gefin uppskrift að þessu svari með eilífum langlokum þar sem greinilegt var að gengið var út frá að ég væri ekki vitsmunavera sem kynni deili á nokkrum sköpuðum hlut. Mér fannst þetta ótrúlega þreytandi og velti því upp þegar tækifæri gafst til að benda á þetta. Hvort það gæti verið að það væri eitthvað rangt við þennan hugsunarhátt – þessa endalausu leit „að einu réttu svari“?

Ég var að byrja að lesa bókina hans Bergs Ebba í gærkvöld. Öld ímyndunaraflsins heitir hún. Á fyrstu síðunum gerir hann mér grein fyrir að gervigreindin byggir á þessu módeli. Gervigreindin gefur okkur „eitt rétt svar“ við því sem við spyrjum um.

Frederick Winslow Taylor. Maðurinn sem leit svo á að það væri til eitt rétt svar við öllum hlutum. Hugmyndafræðingur tæknihyggjunnar í Kísildal par excellence? Set spurningarmerki því ég hef ekki hugmynd um það. Hef ekkert kafað ofan í það, en einhvern veginn virðist það blasa við af öllu sem ég upplifi. Ég er umlukin hugmyndafræði sem gengur út á að telja og mæla allt í mannlegri hegðan. Viðskiptafræðiskólinn orðinn SANNLEIKURINN með stórum staf þar sem allt sem kennt er þar er prjónað inn í samfélagið sem ég lifi í. Menn tala – stjórnmálamenn og aðrir forystumenn – eins og allt samfélagið eigi að vera undirorpið þeirri hugmyndafræði sem kennd er í viðskiptafræði. Hún sé boðberi sannleikans!

Þetta er svo mikil firra að það nær ekki nokkurri átt. Það er kominn tími til að beygja af leið og það fyrir löngu síðan.

Maðurinn er heimspekileg vera. Það að vera forvitinn og spyrja spurninga er það mikilvægasta af öllu í mannlegum heimi. Tæknihyggja sem heldur að allir hlutir lúti „einu réttu svari“ ber dauðann í sér.

Árið 2002, eftir að hafa klárað frumgreinadeild og tvö ár á Bifröst, var komið gott. Ég útskrifaðist með diplomagráðu og það var ekki nokkur möguleiki að halda áfram og klára BS-gráðu. Ég var einstæð móðir og hafði fyrir barni að sjá og skammtímaskuldir (námslánin dugðu engan veginn) komnar í þær upphæðir að ég varð að fara aftur að vinna. Auk þess sem það var ekki arða af vilja í mér til að halda áfram. Ég var gjörsamlega niðurbrotin eftir þrjú ár í þessum skóla sem ég hafði farið í til að byggja mig upp og nú var komið gott.

Misskiljið mig samt ekki. Það var ekki vegna þess að mér hefði ekki gengið vel. Einkunnir mínar voru fínar og með þeim hæstu þetta vor ,en ég var einfaldlega búin á því og varð að halda áfram. Niðurrifstímabilið hafði hafist 1997 og ég var bara í fyrsta fasanum.

Foreldrar mínir seldu jörðina þar sem ég hafði alist upp hinum megin við heiðina við Bifröst og þau fluttu til Reykjavíkur þetta vor – í sömu götu og ég bjó – Laugateig í Reykjavík.

Þegar ég kom út voru allir stjórnendur á Íslandi meira og minna orðnir að guðum. Komnir með laun sem gáfu þau skýru skilaboð að þetta fólk átti ekkert sameiginlegt með fólkinu á gólfinu. Á grundvelli sömu hugmyndafræði og ég hafði numið í skólanum. Hugmyndafræðin um frammistöðutengd launakerfi hafði í bókstaflegri merkingu heltekið íslenskt samfélag eins og það lagði sig. Stjórnendur lítilla fyrirtækja og samtaka jafnt sem stórra.

Grunnurinn að aðlinum hafði verið lagður.
Árið var 2002 og enn sex ár í hrunið.
É
g var 39 ára.

laugardagur, 19. september 2026

Að velja fótspor forheimskunnar

Ef marka má grein Sönnu Magdalenu Mörtudóttur í vikunni þá lét borgarstjórinn okkar núverandi Hildur Björnsdóttir út úr sér samhengi hlutanna sem mig langar að tala út frá hér.

Hún talaði um tekjulægstu hópa borgarinnar sem fólk „sem gæti ekki staðið undir sér“ og mikilvægi þess að borgin laðaði að „tekjuhærri hópa“, sem að hennar mati „halda skattkerfinu okkar uppi“.

Áður en lengra er haldið verður að viðurkennast að ég varð kjaftstopp að lesa þetta. Er þetta í alvörunni viðhorf manneskjunnar sem er í forystu í Reykjavíkurborg? Borgarstjóra Reykjavíkur árið 2026?

Er það sérstakt markmið borgarinnar sem ég bý í að laða til sín Exitgæja og hvað ætlar hún svo að gera við þær sem verða fórnarlömb ofbeldis þeirra? Lóga þeim?

Ég sturlast næstum að lesa svona viðhorf til fólks. Þessi orð lýsa svo mikilli heimsku og skilningsleysi á stöðu manneskjunnar og samfélagsins að það er ófyrirgefanlegt að manneskja í stöðu borgarstjóra Reykjavíkurborgar tali með þessum hætti.

Það þarf ekkert að fara í grafgötur með í smiðju hverra hún leitar – hún fer lóðbeint í smiðju forheimskunnar – til Trump og þeirra líka.

Það þarf svo sem ekki að koma á óvart. Stórnarhættirnir strax í upphafi voru augljóslega sóttir til forskriftar viðskiptaskóla Bandaríkjanna. Setja fram lista um atriði sem átti að vera búið að framkvæma fyrstu 100 dagana í embætti. Byrja á því að reka svo og svo stóran hóp fólks og sýna okkur þannig hversu rosalega ábyrgur og flottur stjórnandi meirihlutinn ætlar að vera. Ég hef ekki treyst mér til að tala um þá hluti enda langt því frá sérfræðingur um málefni Reykjavíkurborgar – hef látið öðrum það eftir en vinnubrögðin minna augljóslega á „Apprentice“ og fulltrúa forheimskunnar pr excellence Donald Trump forseta Bandaríkjanna.

Ég ætla að upplýsa Hildi Björnsdóttur um það að fólk lendir í alls konar vandræðum í lífinu. Það lendir í ríkum gæjum sem beita stöðugu grófu andlegu og líkamlegu ofbeldi eins og gæjarnir í Exit beittu stöðugt. Einstaklingar sem lenda í slíku ofbeldi þurfa hjálp við að komast á fætur og það er hreint ekki víst að þeir einstalingar „standi undir sér“ á meðan.

Það er líka þannig að elítan sem henni er svo umhugað um borgar ekki öllum starfsmönnum sínum svimandi há laun fyrir störf sín. Það fólk á margt hvert „erfitt með að standa undir sér“.

Elítan á sama tíma er ekkert sérstaklega fyrir það að greiða háa skatta. Margir sem tilheyra þeim hópi vilja helst alls ekki greiða neina skatta og gera allt til að komast undan því.

Hvers konar flokkun er þetta annars í alvöru talað á manneskjum? Að tala annars vegar um „manneskjur sem hafa háar tekjur“ og hins vegar „manneskjur sem standa ekki undir sér“?

Er þetta viðhorf sem við íslenskur almenningur styður og tekur undir? Erum við Reykvíkingar yfir okkur hrifin af þeirri hugmynd að meirihlutinn í borginni hyggist „laða að sér hátekjuhópa“? Og hvað þá – losa sig sem mest við „þá sem standa ekki undir sér“?

Er hægt að flokka okkur almennt í þessa tvo hópa? Erum við manneskjurnar í Reykjavíkurborg þessar tvær tegundir hópa?

Hildur Björnsdóttir, Björg Magnúsdóttir og Einar Þorsteinsson eru væntanlega í „eftirsóknarverða hópnum“? Þessum tekjuháa?

Við hin mörg væntanlega í hinum hópnum „þessum sem stendur ekki undir sér“.
Hvað skal gera við okkur?

Þessi viðhorf borgarstjórans gera ekkert annað en sannfæra mig í þúsundasta skipti að við eigum að henda viðskiptafræðiskóla Bandaríkjanna á haugana eins og hann er kenndur. Við horfumst í augu við afleiðingar þeirrar hugmyndafræði í Bandaríkjunum núna.

Við þörfnumst heimspeki í almannarýmið. Við þörfnumst móður – einkynja fræðin eru að drepa okkur. Þessi viðhorf borgarstjórans eru ekki boðleg. Við erum ekki manneskjur annars vegar sem „stöndum ekki undir okkur“ og hins vegar manneskjur „með háar tekjur“. Við erum manneskjur. Punktur. Manneskjur í þessari stöðu í dag og hinni stöðunni á morgun. Manneskjur sem þurfum að takast á við alls kyns óendanlega hluti í veröldinni frá degi til dags. Persónulega og með öðrum. Við erum á einum stað í tilverunni í dag og við erum á öðrum stað á morgun.

Má ég vinsamlegast biðja um að borgarstjórinn í Reykjavík og meirihlutinn sem með honum starfar sýni okkur öllum virðingu. Fólkinu sem er með lágar tekjur í dag en getur haft svimandi háar tekjur á morgun. Fólkinu sem er á götunni vegna þess að það hefur lent á vegg í lífinu. Fólkinu sem er að takast á við sitt líf og hefur ekki orku til að takast á við heimsku stjórnmálamanna sem heldur að veröldin sé tvívíð.

laugardagur, 12. september 2026

Trúarbrögðin og afleiðingar þeirra

Ég held að fyrrverandi svila mínum hafi aldrei dottið í hug að hann hefði höndlað sannleikann, eða að hann vissi betur en aðrir um gangverk lífsins. Hann var menntaður í Háskóla Íslands með fjögurra ára Cand Mag. gráðu í viðskiptafræði. Hann var sér þess vel meðvitaður að nám hans veitti honum sérfræðiþekkingu á tilteknu sviði viðskiptafræða – en ekkert umfram það.

Á tíunda áratugnum fór að bera á því að menn létu eins og „svörin“ væri að finna í viðskiptafræði og það átti eftir að ágerast mjög á þeirri öld sem við nú lifum. Páll Skúlason var duglegur að benda okkur á að hún væri undarleg þessi árátta sem við værum umlukin alla daga, að svörin við öllu milli himins og jarðar væri að finna í markaðsfræðum. Við létum okkur samt ekki segjast og vorum og erum dugleg við að innleiða og upphefja þessi trúarbrögð. Þau trúarbrögð að viðskiptaheimurinn og viðskiptaháskólarnir haldi á sannleikanum og hafi svörin við öllum sköpuðum hlutum.

Mig hefur lengi langað til að skrifa þennan formála að grein og læt nú loksins verða af því.

Árið 1997 voru innleiddar miklar skipulagsbreytingar hjá aðaleiganda TVG-ZIMSEN – Eimskipafélaginu – skipulagsbreytingar sem áttu eftir að hafa afgerandi áhrif á mitt líf. Skipulagsbreytingar sem rekja mátti til þessara nýju trúarbragða sem heimurinn var í þann veginn að lyfta í hæstu hæðir.

Framkvæmdastjóri TVG-ZIMSEN var ungur, metnaðarfullur maður, tiltölulega nýútskrifaður úr viðskiptafræði þegar hann tók við sem framkvæmdastjóri. Hann var mjög áhugasamur um nýjar stjórnunarhugmyndir sem verið var að innleiða hjá Eimskipafélaginu og kynnti fyrir okkur starfsmönnum áætlanir sínar um stofnun hinna ýmsu hópa sem áttu að bæta starfsemi fyrirtækisins á öllum sviðum.

Ég, sem ástríðufullur starfsmaður sem brann af metnaði til að ná árangri, langaði til að taka þátt í öllum hópum en gat það ekki eðli málsins samkvæmt. Það var einfaldlega ekki hægt að koma því við og því varð ég að velja og hafna. Ég hafði mjög mikinn áhuga á því m.a. að verða þátttakandi í hópi sem hafði að markmiði „bætt innri samskipti“ á vinnustaðnum en hætti að lokum við þar sem ég varð að velja á milli og einhver annar hópur sem ég er fyrir löngu búin að gleyma hver var varð fyrir valinu. Það var afdrifarík ákvörðun svo ekki sé dýpra í árinni tekið.

Á þessum tíma var gríðarlegur vöxtur í fyrirtækinu og ég var vakin og sofin yfir öllum þáttum – minn fókus var alltaf á viðskiptavininn – að hann væri helst meira en mjög ánægður með þjónustu okkar – við áttum helst að fara fram úr væntingum hans.

Ég var líka vakin og sofin yfir mörgu sem ég bar strangt til tekið enga ábyrgð á, svo sem gagnvart því að fyrirtækið stæði sína plikt gagnvart tollyfirvöldum hvað tiltekna þætti varðaði eins og uppgjör transitskýrslna og fleira. Ég var einfaldlega þeirrar gerðar að mér fannst það sjálfsagt að taka á mig ábyrgð á því að hlutir væru kláraðir. Án þess að hafa verið beðin um það tók ég á mig ábyrgðina á hinum ýmsu þáttum og það var viðurkenndur farvegur að hafa það þannig. Til mín var leitað sem manneskjunnar sem ábyrgðina bar og ég stóð undir því og fannst það sjálfsagt.

Ég vílaði heldur ekki fyrir mér að vinna yfirvinnu ef þess var þörf og oft kom það fyrir að ég tók að mér að hafa umsjón með mjög áríðandi sendingum – eins og t.d. varahlutum í skip sem nauðsynlega þurfti að koma til landsins á sem allra stystum tíma og ég fékk ekkert aukalega greitt fyrir þá vinnu. Það er kannski ekkert sérstaklega skynsamlegt af mér að viðurkenna þetta, en svona var þetta. Ég var einfaldlega svo áhugasöm um starf mitt að mér fannst þetta sjálfsagt. Innri umbunin var það sem ég sóttist eftir. Ég var full starfsgleði á þessum tíma en þá kom höggið – höggið sem ég rek til trúarbragðanna og er tilefni þessarar greinar.

Einn daginn þegar hafði verið brjálað að gera lengi var mér í lok starfsviku boðið far heim af samstarfsmanni – en ég átti aldrei bíl á þessum tíma – hafði engin efni á því. Ég þáði það með þökkum því ég var þreytt og fannst gott að vera boðið. Hann átti þó ekki eftir að verða mér neitt gleðiefni síðar meir, þessi stuttu bíltúr frá Héðinsgötu og heim til mín á Laugateig 21 haustið 1997.

Samstarfsmaður minn hafði nefnilega boðið mér far heim til þess að tilkynna mér þá niðurstöðu hópsins um „bætt innri samskipti“ vinnustaðarins TVG-ZIMSEN – að ég væri ástæðan fyrir slæmum móral á vinnustaðnum. Það var sem sagt niðurstaða hópsins. Slæmur mórall hjá TVG-ZIMSEN var tilkominn vegna mín – Signýjar Sigurðardóttur.

Ég get ekki einu sinni líst því hvaða áhrif þessi tilkynning hafði á mig. Enn þann dag í dag á ég erfitt með að rifja þetta upp. Ég fékk áfall. Áfall sem ég hef mörg síðustu ár viljað meina að megi flokka undir „áfallastreituröskun“. Ég veit ég hef enga sérfræðiþekkingu til að geta greint það en hef gert það samt, því það var svo rosalegt hvaða afleiðingar þessi orð höfðu á mig. Það var eins og kveikt hefði verið á rofa í höfðinu á mér – rofa sem ekki var hægt að slökkva á aftur. Starfsgleðin, sem áður hafði átt hug minn allan, varð að djúpu þunglyndi. Ég átti erfitt með að vakna á morgnana og ég átti erfitt með að brosa. Ég átti eiginlega erfitt með allt. Ég kynntist í sjálfri mér einhverri nýrri manneskju sem ég hafði engin kynni haft af áður.

Ég ákvað að hætta að bera ábyrgð á öllu mögulegu innan fyrirtækisins sem ég átti í raun ekkert að bera ábyrgð á. Það varð allt í einu erfitt verkefni að komast í gegnum daginn. Orkan, sem ég átti alltaf í ótæpilegu magni, hvarf eins og dögg fyrir sólu og ég átti í vandræðum með að komast gegnum daginn. Ég vissi ekkert hvaða manneskja þetta var – ég þekkti hana ekki.

Þarna hafði framkvæmdastjóri fyrirtækisins farið offari í því að taka nýjar stjórnunarhugmyndir viðskiptafræðinnar upp á sína arma og látið fólk hafa hlutverk sem það gat engan veginn staðið undir. Starfshópur um „bætt innri samskipti“ vinnustaðarins átti auðvitað aldrei að leiðast út í það að gera eina manneskju að sökudólgi fyrir slæmum móral á vinnustaðnum. Það var auðvitað út í hött. Fyrir utan hvað það var rangt þá var það svo ljótt.

Þetta hafði svo þær afleiðingar að ég varð fyrir einelti á vinnustaðnum um tíma og það þótti bara sjálfsagt. Þessi ástríðufulla kona átti ekki að fá að haga sér með þeim hvatvísa hætti sem hún átti til að gera og allt niður í lítil smáatriði í mínu fari fóru undir mæliker. Þetta var hryllilegur tími og mér algjörlega ný reynsla. Ég hafði alltaf haft þá sjálfsmynd að vera félagslega sterk. Ég vissi alveg að ég stuðaði fólk oft með eftirfylgni minni en það var bara hluti af mínum karakter og ég hafði engar áhyggjur af því.

Þetta leiddi hins vegar til þess að niðurrifsröddin kviknaði í höfðinu á mér og það reyndist enginn hægðarleikur að slökkva á henni aftur. Það hafði verið vakinn upp í mér einhver þáttur – þáttur sem trúði því að þessi niðurstaða samstarfshópsins væri rétt – ég væri einfaldlega ómöguleg – óalandi og óferjandi – og ég fór að verja mig með því að segja það við mig sjálf. Til að verða ekki fyrir áfalli – aftur – var best að vera viðbúin.

Með þessari grein langar mig til að opna á að það er ekki í lagi með margar af stjórnunaraðferðum viðskiptafræðinnar í Bandaríkjunum á 21. öld. Viðskiptafræði eru ekki sannleikurinn og hún heldur ekki á svarinu við lífsgátunni. Allir þessir frasar sem við erum uppfull af alla daga um „að glasið sé hálffullt en ekki hálftómt“ – að við eigum öll að „vera jákvæð“ og megum ekki vera neikvæð – allt talið um „skemmdu eplin“ o.s.frv., o.s.frv. Það er ekki í lagi með neitt af þessu og það er þörfin fyrir að segja það sem er undirliggjandi því að ég skrifa þessa grein.

Við erum nefnilega öll manneskjur. Við erum alin upp í alls konar aðstæðum og fáum í vöggugjöf mismunandi gjafir. Við erum allskonar og við megum vera allskonar. Við eigum ekki öll að vera stereótýpur af Stepford wives og það er ástæða til þess að segja það upphátt hátt og skýrt.

Þarna hjá TVG-ZIMSEN forðum var ein manneskja sem ég ætla að nafngreina – manneskja sem mér þykir svo undurvænt um – manneskja sem stóð upp fyrir mig og áttaði sig á hversu óeðlilegur og rangur dómur hópsins var og hún sá hvaða áhrif dómurinn hafði á mig. Kristín Sjöfn Valgeirsdóttir heitir hún. Hún sagði við samstarfskonu sína sem hafði verið í hópnum hversu mikið rugl þetta væri og hún talaði við framkvæmdastjórann og krafði hann um að gera eitthvað í málinu, sem hann svo gerði eftir langan tíma – þegar afleiðingarnar höfðu fengið að grassera í tvo mánuði.

Þá var loksins kallað til fundar – sameiginlegs fundar þar sem hópurinn allur – konurnar þ.e. – voru kallaðar saman til að ræða það hvað væri eiginlega í gangi á vinnustaðnum. Það var undarleg uppsetning en hún varð gagnleg og ég komst að því hvar þessi hugmynd að dómnum átti uppruna sinn. Ég hafði einhverju sinni hellt mér yfir samstarfskonu mína fyrir framan viðskiptavin fyrir að hafa ekki klárað tollafgreiðslu og það var undirliggjandi þessu öllu saman. Þessi manneskja hafði byggt upp innra með sér óvild gagnvart mér sem hún fékk útrás fyrir með þátttöku í þessum hópi um „bætt innri samskipti“ með því að gera mig að sökudólgi. Ég áttaði mig strax á því að hún færi örugglega með rétt mál og bað hana innilega afsökunar. Þar með var sá hluti málsins útkljáður.

En það sem þessi dómur hafði framkallað í höfðinu á mér var hins vegar ekki útkljáð eða búið. Þetta var dýrkeypt reynsla. Síðan þetta gerðist hef ég aldrei borið með mér biturð eða særindi út í einstaklinga vegna þessa. Þeir skipta engu máli í þessu samhengi í mínum huga. Það sem skiptir máli er hvað gerðist í höfðinu á mér og hvaða áhrif það átti eftir að hafa á heilsu mína og á líf mitt í áratugi eftir þetta. Það er svo áhugavert og segir svo mikla sögu. Hvað við getum verið viðkvæm og hvað orð geta haft miklar afleiðingar.

„Fræði“ sem innræta okkur að það sé í lagi að benda á einhvern einn í hópi og gera að sökudólgi fyrir öllu slæmu eru ekki fræði og það er ekki í lagi að við séum að ýta undir slíkar hugmyndir. Það er yfir höfuð ekki í lagi að ýta undir einelti eða útskúfun. Það er óheilbrigt og vont samfélag sem það gerir.

Það var ekki fyrr en árið 2016 – 19 árum eftir þennan atburð og í kjölfar algjör niðurbrots sem ég áttaði mig á heildarmyndinni – það var fyrst þá sem ég áttaði mig á mikilvægi setningarinnar „elska skaltu náunga þinn eins og sjálfan þig“.

Aðgát skal höfð í nærveru sálar.

Aðgát skal höfð í nærveru sálar

 „Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Svo oft leyndist strengur í brjósti, sem brast
við biturt andsvar, gefið án saka.
Hve iðrar margt líf eitt augnakast,
sem aldrei verður tekið til baka.“

Úr Einræðum Starkaðar eftir Einar Benediktsson.

Ég hef síðustu mánuði skrifað nokkrar greinar um starfsferil minn á íslenskum vinnumarkaði og ýmislegt honum tengt. Svo hætti ég því.

Mér var mikilvægt að skrifa hlutina í réttri röð og þetta sem ég birti núna þurfti að komast á blað, en birting  varð að bíða því samhengið var ekki til staðar. Nú er það komið.
Gulur september.

Ég hef sagt ykkur frá því að árið 2015 gekk ég í björg og í tvö ár þar á eftir þurfti ég að stríða við miklar áskoranir. Ég sé núna að það var hápunktur niðurrifstímabils sem hófst við þennan atburð árið 1997.

Ég hafði alla tíð litið á sjálfa mig sem mjög félagslega sterkan einstakling. Ég naut barnaskólaáranna og sé þau enn fyrir mér í ljósbjarma. Í gagnfræðaskóla sýndu samnemendur mér að þau höfðu mikla trú á mér og kusu mig sem fulltrúa sinn í nemendaráð öll þrjú árin. Ég var lítil þegar ég kom fyrst til Reykjavíkur, 16 ára, og settist á skólabekk í Kvennó, en ég var fljót að ná mér á strik og ég elskaði sannarlega síðustu tvö árin þar eins og ég hef gert grein fyrir.

Á vinnumarkaði var ég alla tíð sjálfstæð og örugg með mig og fékk endurgjöf í þá veru. Ég var „lausnamiðuð“ og kröftug manneskja og var heilt yfir vel liðin af samstarfsfólki (þótt auðvitað fyndust á því undantekingar eins og gengur) og elskuð af viðskiptavinum, svo ég leyfi mér að taka sterkt til orða. Það er meira að segja einhvers staðar í pappírum gjaldþrota fyrirtækisins Capacent til skoðanakönnun sem staðfestir það. Sennilega frá árinu 1998 en ég man það ekki svo glöggt.

Allt þetta segi ég hér því ég var manneskja sem leit svo á að ég ætti heiminn. Ég var alla jafna glaðsinna og það sem líklega er sagt í daglegu tali „jákvæð manneskja“ þó ég hafi á sama tíma alltaf verið gagnrýnin og sannarlega aldrei hrædd við að benda á hluti sem betur mættu fara.

Þessi einstaki atburður sem ég segi frá í greininni, sem skrifuð var í sumar, hafði afgerandi djúpstæð áhrif. Á mig, Signýju Sigurðardóttur, og líf mitt eftir það. Mér finnst það merkilegt og mig langar til að segja frá því.

Mér finnst það mun frekar styrkur að tala um veikleika sína en hitt, að fela þá. Ég held að öll höfum við okkar djöfla að draga og held líka að heimurinn væri betri ef við hættum að láta eins og manneskjur séu ekki manneskjur.

Ég hef lengi verið þess fullviss að viðskiptafræðin frá Bandaríkjunum eru ekki sannleikurinn. Ég held að fátt ,ef nokkuð, sé mikilvægara en að við áttum okkur á þeirri villu að við eigum ekki að ganga þeim trúarbrögðum á hönd.

föstudagur, 7. ágúst 2026

Hugleiðing á flugvelli

Sit hér á flugvelli í Mílanó og bíð eftir flugi heim. Var að ljúka lestri bókarinnar Jakaranda eftir Gaël Faye sem Angústúra hefur gefið út.

Tárin spruttu fram og ég missti út úr mér hljóð svo nærri manni ganga lýsingarnar í lok bókarinnar. Höfundurinn er hálfur Frakki og að hálfu frá Rúanda og segir fjölskyldusögu í bókinni – sögu sem snertir mann djúpt. Sögu um hryllinginn sem sem hægt er kalla fram í mannskepnunni og hefur verið gert í Rúanda og víðar í veröldinni og endurtekur sig ítrekað.

Hryllinginn sem felst í því aðgreiningunni í „okkur“ og „hina“. Aðgreiningu þar sem venjulegt fólk sem áður lifði saman í sátt og samlyndi tekur upp á því að hæðast að og uppnefna „hina“ – benda á þá og koma upp um þá hvar sem þeir eru staddir. Þessar sömu lýsingar hefur maður lesið í Þýskalandi nasismans, í Júgóslavíu frá fyrstu árum tíunda áratugarins þegar fiskimenn og bændur gerðust fjöldamorðingjar, í Ísrael og Palestínu, í Pakistan – já og svo miklu, miklu víðar.

Lýsingarnar eru alltaf eins. Það erum „við“ og svo eru það „hinir“. „Hinir“ eru stimplaðir og afmennskaðir. Í Rúanda voru þeir kallaðir „kakkalakkar“ og voru réttdræpir hvar sem til þeirra náðist. Karlar, konur og börn, heilu fjölskyldurnar – bútaðar niður með sveðjum og hent á haugana. Í dag þarf þetta fólk að finna leiðir til að búa saman í samfélagi. Það þurfti það líka að gera í Þýskalandi eftir stríð, Í lýðveldum Júgóslavíu eftir að hún sundraðist. Alls staðar er sagan eins. Mannskepnan er ekki betur gerð en svo að það er tiltölulega auðvelt að því er virðist að ýta undir hreina bilun þegar að þessu kemur. Að flokka okkur í „okkur“ og „hina“.

Þennan leik eru kónarnir í Bandaríkjunum að leika á hverjum einasta degi þessa dagana. Daglega eru sagðar af því fréttir að Trump forseti Bandaríkjanna, Vance, Hegseth, Rubio og þessir gæjar og þeirra fylgjendur séu að spúa eitri yfir lýðinn um að þessir og hinir séu ógeðslegt fólk.

Reglunum sem hefur tekið marga mannsaldra að byggja upp í hinum vestræna heimi hefur verið hent hraðar á haugana síðustu tvö ár en nokkurn tíma áður í mínu lífi.

Bandaríkin eru ekki ríki sem ég horfi til eða ber traust til lengur. Það er langur vegur þar frá.

Á sama tíma erum við Evrópusambandið á aðra höndina. Samband Evrópuríkja sem stofnað var til í þeim tilgangi að tryggja frið í álfunni eftir hryllilegar heimsstyrjaldir síðustu aldar. Samstarf sem átti að tryggja viðskiptatengsl ríkjanna þannig að aldrei aftur kæmi til styrjaldar milli þeirra. Þetta samband hefur þróast mikið og stækkað í áranna rás og telur núna 27 ríki.

Ég bý í samfélagi þar sem forystumönnum í viðskiptalífi finnst við hæfi að vera sífellt að hæðast að þessu sambandi. Þeir láta eins og allt vont komi frá Evrópu. Það nýjasta sem ég les núna á vef RÚV er þeir vilja ekki kannast við að eiga svo mikil viðskipti við Evrópuríki. Og ekki heldur í evrum. Nei þeirra markaður er Bandaríkin og gjaldmiðillinn dollar.

Ég hef í áratugi hlustað á forsvarsmenn í íslensku viðskiptalífi tala svona. Eins og kjána um Evrópusambandið. Það er langt síðan ég áttaði mig að orðræðuna sækja þeir til Íhaldsflokksins í Bretlandi. Þangað leita þeir fyrirmynda. Þeim finnst þeir menn að meiri að vera með hroka og yfirlæti gagnvart menningarríkjum Evrópu sem eiga sögu sem nær miklu lengra aftur en saga okkar.

Ég velti fyrir mér – gleðjast þessir menn yfir því þegar Sánches forsætisráðherra Spánar og Meloni forsætisráðherra Ítalíu fara í hár saman? Smjatta þeir í gleði sinni og vonast til að Evrópusambandið liðist í sundur? Yrði það gleðiefni? Fyrir okkur Íslendinga ef það gerðist? Auðvitað gæti það gerst. Allt getur gerst.

Með mann í forystu Bandaríkjanna sem róir að því öllum árum að brjóta upp Evrópusambandið og byggja undir endurreisn fasismans í Evrópu er það sannarlega mögulegt.

Ég hef starfað í íslensku viðskiptalífi alla mína starfsævi. Ég hef starfað í hringiðu milliríkjaviðskipta með vörur þar sem Evrópumarkaðurinn hefur sannarlega alltaf verið langstærstur. Ég skil ekki hvernig menn geta kosið sér að tala endalaust niður  gera lítið úr og samstarfsaðilum sínum. Ég játa að skil bara alls ekki þetta fyrirbæri.

Íslenskir karlar í viðskiptalífi virðast hafa einstaka þörf fyrir að berja sér á brjóst og telja sig yfir aðra hafna. Gera lítið úr öðrum. Ég veit ekki hvort þeir gera sér grein fyrir því hvers konar áhrif orðræða í þessa veru hefur á mann?

Hvaðan kemur þessi hroki? Þetta yfirlæti sem Íslendingar í viðskiptum telja sig hafa efni á að viðhafa?

miðvikudagur, 17. júní 2026

Ævintýri tíunda áratugarins

Hjá ZIMSEN og síðar TVG-ZIMSEN tók ég þátt í mörgum ævintýrum Íslendinga á viðskiptasviðinu. Fyrst man ég eftir stóru verkefni þar sem íslensk verkfræðistofa – Kamhnit í eigu Verkfræðistofunnar Hnit - hafði selt teikningar og uppbyggingu mannvirkja á Kamchatka. Ef ég man rétt var um að ræða hótel, baðstað og fleira sem ég man ekki lengur hvað var.

Við hjá Zimsen fengum það verkefni að sjá um útflutning aðfanga frá Íslandi í þessi mannvirki á áfangastað í Kamchatka. Mér fannst þetta stórmerkilegt verkefni svo ekki sé meira sagt. Fyrir það fyrsta koma mér mjög á óvart að kynnast þarna í fyrsta skipti fyrirtækinu – Set á Selfossi – sem ég vissi ekki áður að væri til. Og í öðru lagi kom það mér mjög á óvart að það væri jarðvegur hér til þess að framleiða hluti á Íslandi og flytja þá héðan alla þessa leið til Kamchatka sem á þeim tíma tilheyrði Sovétríkjunum. Að það væri litið svo á að þessi flutningur gæti borgað sig.

Þetta voru margir gámar af pípulagnaefni frá Set og öðrum – jafnvel innfluttum framleiðsluvörum - sem við sáum um flutning á frá Íslandi til austurstrandar Bandaríkjanna – landleiðina yfir þver Bandaríkin alla leið til Seattle á vesturströndinni og þaðan var þeim siglt yfir til Kamchatka. Þetta var risastórt verkefni og krafðist skipulagningar í þaula en allt hafðist það.

Það sem fyrst og fremst vakti athygli mína var hversu ódýrt það var tiltölulega að flytja allar þessar gámaeiningar landleiðina þvert yfir Bandaríkin – þessa gríðarlega löngu leið – og á sama tíma hvað það var rándýrt að flytja gámana með skipi þessa – að manni fannst – stuttu siglingaleið á milli Seattle og Kamchatka. (Ég sé núna að kannski er hún ekkert svo stutt.)

Skipafélagið sem á þessum tíma sigldi þessa leið Seattle – Kamchatka var eitt um hituna og það næsta sem ég vissi var að Eimskip hafði keypt það og samstarfskona mín hjá því félagi var flutt til Seattle til starfa fyrir félagið. Ég held þó að þetta ævintýri hafi staðið stutt og ég finn engar heimildir um þetta núna til að styðja mál mitt.

Annað ævintýri sem mig langar að nefna frá þessum tíma er uppbygging samheitalyfjamarkaðarins. Ég fékk að kynnast og gera tilboð í „handling“ eða afgreiðslu  heilu flugvélanna til að lenda hér og fylla af lyfjum sem fljúga átti út aftur innan tiltekinna tímamarka þar sem markaðurinn fyrir samheitalyf opnaðist klukkan þetta tiltekinn dag og þá mátti ekki klikka að ná að framleiðslunni út til að verða fyrstir til.

Ég kann ekki sögu Actavis til að segja hana hér en það var auðvitað stórt fyrirtæki hér sem skipti hagkerfi okkar miklu á þessum tíma. Var stór útflytjandi á lyfjum í samkeppnisrekstri við evrópsk fyrirtæki. Rekstur TEVA á Íslandi heldur utan um það sem eftir stendur af þessu fyrirtæki Actavis á Íslandi í dag.

Baugur varð til sem innkaupafyrirtæki og hafði þegar haft gríðarmikil áhrif á flutningamarkaðinn. Með tilkomu hans var ekki lengur hægt að bjóða upp á að það skipti máli hvað varan hét þegar hún var sett í gáma – hvort hún var hvít eða hvernig hún var á litinn. Eins og annars staðar í heiminum – þurftu skipafélögin að sætta sig við að einingin „gámur“ varð söluvara. Hvít raftæki gátu ekki lengur verið verðlögð með sérstakri álagningu heldur varð það gámurinn sem gilti. Ég sakna þess enn að heyra rannsóknarniðurstöður á því hvað Jón Ásgeir Jóhannesson gerði fyrir samkeppnismarkaðinn og neytendur á Íslandi en það er saga sem er enn ósögð. Stofnun Bónuss árið 1989 lagði auðvitað línurnar að gjörbreyttu Íslandi þar sem helmingaskiptareglu SÍS og Kolkrabbans var hrundið og enginn varð samur eftir þá byltingu.

Tíundi áratugurinn – eftir undirskrift EES samningsins - var áratugur uppbyggingar. Íslendingar létu til sín taka á mörgum sviðum og það var gaman að vera þátttakandi í þessari uppbyggingu. Það var gríðarmargt að gerast og sjálfstraustið var mátulegt. Það var ekki komið á flug – var enn jarðtenging til staðar - í minningunni er það þannig.

Kauphöllin var ekki orðinn sá staður þar sem peningarnir urðu til. Krónan var ekki komin á flot og rekstur fyrirtækja skipti enn máli. Stjórnendur fyrirtækja voru almennt ekki orðnir að Guðum og allt var enn tiltölulega í lagi svo ég deili með ykkur mínu minni og tilfinningum þegar ég fór á nám á Bifröst haustið 1999.

sunnudagur, 7. júní 2026

Saga mín á vinnumarkaði – breytingarnar við að Ísland gerist aðili að EES

Það var árið 1993 og ég var komin suður aftur með skottið á milli lappanna. Ég varð þrítug þá um sumarið. Einstæð móðir með 3ja ára gamla stelpu og öryggið var það sem öllu skipti – starfsöryggi.

Til greina komu tvö störf – annars vegar hjá Jes Zimsen sem þá var í 100% eigu Eimskip eða hjá litlu útflutningsfyrirtæki á sjávarafurðum sem hét Sæmark við að selja fisk til útflutnings. Það var ekki vafi í mínum huga að mig langaði í síðara starfið – en eftir það sem á undan var gengið þorði ég því ekki. Það var í raun ekkert vitað hvað yrði og gat allt eins verið að ég stæði uppi atvinnulaus eftir skamman tíma. Því varð það úr að ég hóf störf hjá Jes Zimsen í byrjun júlí árið 1993.

Fyrstu mánuðina og sennilega alveg fyrsta árið leiddist mér starfið ógurlega. Það fólst ekki í neinu öðru en endalausu pappírsfargani í þágu móðurfélagsins Eimskip. Ég sá um að endursenda ótollafgreidda vöru sem félagið af einhverjum orsökum sat uppi með og pappírsfarganið sem hið opinbera á Íslandi krafðist fyrir þessar sendinga var eitthvað það rosalegasta sem ég hafði komist í kynni við – og hafði ég þó kynnst viðskiptum við Sovét þar sem enginn skortur var á upphafningu skriffinnskunnar. Í bland fékk ég þó sem betur fer að sjá um útflutningspappíra fyrir einstaka fyrirtæki og það hélt mér á lífi.

Það verður seint sagt að það að starfa eingöngu í þágu félagsins sem átti þetta litla fyrirtæki sem ég starfaði fyrir hafi gefið mér tilgang. Ég var bókstaflega að deyja úr leiðindum og ætlaði að koma mér burtu þegar ár var liðið en þá fóru hlutirnir að gerast sem breyttu öllu og mér snerist hugur.

Árið 1994 er árið sem allt breyttist. Það ár varð Ísland aðili að EES samningnum og þar með að innri markaði Evrópusambandins. Það var líka árið sem Jes Zimsen flutti í Tollvörugeymsluna og það færðist fjör í leikinn. Þessi tvö fyrirtæki sameinuðust þó ekki í TVG-ZIMSEN fyrr en tveimur árum síðar eða 1996 en þau voru frá árinu 1994 staðsett saman á gólfi Tollvörugeymslunnar við Héðinsgötu og það var ótrúlega gaman að fá að taka þátt í atgangi þessara ára.

Zimsen varð á þessum tíma alvöru flutningsmiðlun sem hún hafði ekki verið fram að því. Við tókum að selja flutninga með flugi og byggja upp samstarf við stór erlend flutningsfyrirtæki með skrifstofur út um allan heim. Kühne og Nagel og DFDS svo dæmi séu tekin. Það varð gaman aftur í vinnunni! Vá hvað það var gaman – og það var atgangur og fjör alla daga.

Framkvæmdastjórinn hafði einhverra hluta vegna ákveðið að það væri best að hafa mig staðsetta í framlínunni þó ég væri í símanum allan daginn við að selja innflytjendum flutninga. Ég sat í afgreiðslunni – stundum með sitt hvort símtólið á sitt hvoru eyranu, stóð svo upp til að rétta viðskiptavinum pappíra sem þeir komu á staðinn til að sækja og allir símarnir á öllum borðum starfsfólksins hringdu upphátt og prentararnir – nálaprentarar - prentuðu tollskýrslur í gríð og erg! Það var brjálæðislegur atgangur og vöxtur í greininni þessi ár og ég kann ekki einu sinni að lýsa því hvað mér fannst það gaman! Ég varð þekkt nafn á meðal innflytjenda á þessum tíma – Signý hjá TVG-ZIMSEN og ég náði árangri – miklum árangri. Ég og framkvæmdastjórinn áttum alltaf í einhverjum smá hnútum – skildum aldrei hvort annað – en okkur tókst samt að halda því á því stigi að það varð aldrei alvarlegt.

Hann gaf mér tækifæri sem alls ekki voru sjálfsögð. Ég fór í margar ferðir til samstarfsaðila minna í hinum ýmsu löndum Evrópu til að styrkja tengslin og það þótti mér gaman. Mér þótti þetta allt gaman. Mér fannst gaman að eiga í endalausum samskiptum við viðskiptavini mína, samstarfsaðila sem voru flugfélögin hér heima og svo flutningsmiðlarar og flugafgreiðsluaðilar handan hafsins. Mér fannst gaman að leysa vandamál viðskiptavina og tryggja að þeir vildu hvergi annars staðar vera en í höndunum á mér. Ég tók við mörgum sem öskruðu á mig í fyrstu en urðu síðar mínir tryggustu viðskiptavinir.

Ég var kröfuhörð – ég kenndi samstarfsaðilum mínum í hinum ýmsu löndum að þegar Ísland væri annars vegar þýddi ekkert annað en láta standa í hálsinum á sér. Það væri nauðsynlegt til að þjóna markaðnum sem væri rosalega kröfuharður. Sumir spiluðu með og urðu miklir persónulegir vinir mínir – aðrir áttu erfitt með að þola frekjuna í mér – en þeir voru þó miklu færri. Allt hafðist þetta. Það var svo mikil þróun á þessum tíma og það var svo mikið að gerast í viðskiptalífinu á Íslandi.

Þórarinn Kjartansson kom hingað með fraktflug Cargolux og stofnaði síðar sitt eigið flugfélag Bláfugl í samkeppni við fyrirtækið sem hafði haft svo gott sem einokun á þessum markaði fram að því Flugleiðir eða Icelandair. Framboðið jókst og eftir því jókst umfangið á þessum markaði – flugflutningamarkaðnum og við getum eiginlega sagt að hann hafi orðið til á þessum tíma.

Ég öðlaðist á þessum árum ótrúlega verðmæta sérþekkingu. Ég hafði byrjað hjá Sölusamtökum lagmetis við að sjá um útflutning á vörum sem seld var CIF meira og minna á áfangastað til viðskiptavina í hinum ýmsu löndum. Hjá TVG-ZIMSEN bætti ég við innflutningshliðinni. Að þjónusta innflytjendur og selja þeim flutninga – oftast frá verksmiðjudyrum þar sem framleiðendur voru staðsettir heim til þeirra á Íslandi.

Ég varð sérfræðingur í flutningsleiðum og milliríkjaviðskiptum með vörur, og ég varð manneskjan sem viðskiptavinir og hinir ýmsu samstarfsaðilar hér heima og hinum megin við hafið hringdu í til að redda þessu eða hinu.

Sl. haust hringdi í mig gamall viðskiptavinur frá þessum tíma og í mörg ár þar á eftir. Tryggur viðskiptavinur sem fylgdi mér til fleiri fyrirtækja síðar. Ég vildi að ég gæti sagt söguna hans orðrétt hér en hann fór yfir það lið fyrir lið hvaða hlutverk ég hefði haft og hvernig ég hafði sinnt mínum verkefnum af einskærum metnaði og hæfni. Sérstaklega tiltók hann hvernig ég hefði alltaf haldið um alla þræði og aldrei misst einn úr.

Ég og þessi viðskiptavinur erum algjörlega á sitt hvorri línunni í pólitík. Hann er eins langt til hægri og hægt er vera. Ég vil ekki segja að ég sé sérstaklega langt til vinstri en við vorum alltaf í grundvallaratriðum ósammála í pólitík og við vissum það og vitum það enn. Það truflaði þó samskipti okkar aldrei neitt. Ég hef hann reyndar grunaðan um eins og marga fleiri af viðskiptavinum mínum að hafa haft dálítið gaman að því að rökræða pólitík við mig.

Því er ég að segja frá þessu hér? Ég er að því vegna þess að ég hef aldrei skilið af hverju ég átti í þvílíkum vandræðum með að fá störf við hæfi eftir nám mitt á Bifröst og mér finnst að það sé kominn tími til að greina frá því upphátt og það megi standa hér. Mér finnst það vera atriði sem er mikill ljóður á íslensku samfélagi og ég vil sjá að verði upprættur. Fólk á að mega vera allskonar. Líka konur sem tala hátt og hafa sterkar skoðanir.

Ég veit alveg hvers konar starfkraftur ég var á þessum árum og ég veit að það skipti aldeilis máli að hafa mig innan borðs. Það er ekkert eðlilegt við það að fólk fái ekki að njóta verðleika sinna vegna þess að það er af einhverjum ástæðum ekki réttrar tegundar. Ekki með réttar pólitískar skoðanir. Talar of hátt. Er of laust við að vera meðvirkt og segir hlutina eins og þeir eru.

Af þessum ástæðum stend ég með konum sem ýtt er til hliðar af því það hentar. Það er ekkert eðlilegt við það í landi sem þykist vera í fararbroddi hvað varðar jafnrétti hversu auðvelt það er að ýta konum út í kuldann.

Ég vissi reyndar ekki að ég ætlaði hingað þegar ég hóf þessi skrif í kvöld en allt í lagi með það þetta fær að standa hér.

Ég ætla svo að halda áfram að tala um lærdóm þessara ára. Breytingarnar á íslensku samfélagi. Vöxtinn í hagkerfinu og það allt saman. Allt saman gerðist þetta vegna þess að Ísland var orðið aðili að EES samningnum og þar með innri markaði Evrópusambandins. Ekkert af því sem þarna var í gangi hefði gerst nema vegna þess.

Er viðskiptafræðin kirkja?

Ég hallast að því að svo sé – að viðskiptafræðin sé kirkja. Kirkja þar sem Mammon er Guðinn. Í morgun spurði ég Google hvernig við skilgre...