Orð sem Andri Snær Magnason notaði til að lýsa Ísak Harðarsyni í minningargrein um hann vorið 2023. Orð sem snertu mig. Snertu mig djúpt.
Ég á þetta nefnilega
sameiginlegt með Ísak Harðarsyni – ég á erfitt með að sætta mig við heim sem er ekkert nema
efnið. Undarlegt áreiðanlega,
í ljósi þess hver starfsvettvangur minn hefur
verið en samt svo satt.
Haustið
1999 hóf ég nám í Viðskiptaháskólanum á Bifröst. Í frumgreinadeild þó ég væri með einkunnir nálægt 9 í meðaleinkunn á stúdentsprófi og 11 ára reynslu af alþjóðlegum
viðskiptum. Ég var auðvitað kjáni að gefa yfirleitt færi á því en þegar mann skortir
sjálfstraust þá gerir maður ýmislegt
undarlegt.
Orðið nokkuð síðan ég áttaði mig á hversu óskaplega
vitlaust nám ég valdi mér og hversu afdrifarík sú ákvörðun var. Það lá eitthvað svo beint við. Fyrst ég hafði valið að starfa í viðskiptum var
eitthvað svo augljóst
að fara í nám í viðskiptafræði. Þvílík
vitleysa! Þvílík sóun
á árum sem hefðu getað verið nýtt í
eitthvað gagnlegt. Eitthvað uppbyggilegt. Eitthvað sem skipti einhverju máli. Í þess stað fór ég í nám þar
sem ég engdist sundur og saman því hausinn á mér var að þorna upp af völdum
tæknináms sem þóttist hafa svörin við ölluðum sköpuðum hlutum. Sem betur fer og til að gæta allrar sanngirni með undantekningum –
vissulega. Annars hefði ég
ekki lifað af.
Já, ég get játað það hér að mér fannst viðskiptafræðinám á Bifröst heilt yfir ekki skemmtilegt
nám – eiginlega fjarri því. Og það
gaf mér heldur ekki næringu. Eiginlega miklu fremur hið gagnstæða. Ég man eftir dögum
þar sem ég fór á bókasafnið
að leita að bókum
um heimspeki eftir Pál Skúlason eða Sigurð Nordal … bara eitthvað til að losna undan þessu
materíalska … sem var að gera mig brjálaða.
Og reyndar fór það svo að í lok þriðju annar fékk ég taugaáfall. Ég
brann yfir í bókstaflegri
merkingu. Ég bara gat ekki
meir … fékk andnauð einhverja
nóttina og hélt ég væri að deyja – nú
væri komið að því! Ég fékk skólabróður minn úr næsta bústað til að
fara með mig til læknis í
Borgarnesi (enn bíllaus og bjó í sumarbústað fyrir ofan skólasvæðið) sem sendi mig heim með þær
fréttir að það væri allt í lagi með mig. Ég hefði leyft streitunni að ná tökum á mér og ofandað sem væri vel þekkt fyrirbæri – nú þyrfti ég bara að slaka á. Vörn misserisverkefnis var framundan
– verkefnið um mismunandi færslur
gengismunar í bókhaldi
íslenskra stórfyrirtækja – verkefni sem ég hafði unnið hörðum höndum að því að klára – og
tókst það. Man að ég stóð upp og svaraði spurningum
fyrirspyrjenda af miklu öryggi
þennan dag. Þeir gáfu okkur samt bara 7. Létu það fylgja að ef við
breyttum einu tilteknu atriði í lokaskilum gætum við mögulega
fengið 8. Ég settist við tölvuna og hugðist reyna að verða
við því … en það reyndist ómögulegt. Bara að setjast við tölvuna var eins og ég var væri sjálf komin í beint samband við rafmagn. Ég gat það ekki. Var komin á stað sem ég varð að játa
mig sigraða og taka mér frí til að hlaða batteríin að nýju.
Þetta taugaáfall var fullkomlega eðlilegt viðbragð við fullkomlega óeðlilegu ástandi. Ég hafði komið í þennan skóla með
útbrunninn batterí – þennan skóla
af öllum – skóla sem byggði á því
verklagi að krefjast verkefnaskila í hverju fagi í hverri viku. Oftar en ekki hópverkefnum. Skóli sem gaf engin færi á því að lesa, hvað þá að hugsa. Allt gekk út á að
framleiða. Framleiða og framleiða meira og meira af lausnum. Jesús minn hvað
þetta var þreytandi og hvað þetta hentaði mér illa. En auðvitað svaraði ég þessu
kalli. Metnaðurinn var ekki slökknaður enn og ég barðist til síðasta blóðdropa að fá eins háar einkunnir og mögulegt var.
Í ákvörðuninni – að fara í nám á Bifröst – fólst mikil uppgjöf, því ég hafði alltaf ætlað í háskólanám erlendis. En það var flókið að vera einstæð móðir með engan höfuðstól og ég hreinlega guggnaði á því að gera annað
en vera hér heima. Að fara í
viðskiptafræði lá einhvern veginn beint við því það var greinin sem ég starfaði í.
Hugsunin þá var að
fara í „stutt“ praktískt nám (sem það varð auðvitað ekki í ljósi frumgreinadeildarinnar) var ekkert fráleit hugsun þegar ákvörðunin var tekin – en hins vegar var hún algjörlega fráleit þegar ég útskrifaðist. Það er ótrúlegt til þess að
hugsa hvað gerðist þessi ár – hvaða breytingar urðu á samfélaginu. Að koma úr háskóla með
diplomagráðu vorið 2002 var
nákvæmlega einskis virði.
Ég man það enn eins og það hafi
gerst í gær að einhvern tíma áður en ég fór upp á Bifröst leitaði ég til „heilara“ í Kópavoginum.
Eins og ég sagði frá í síðustu grein, hafði ég tapað orkunni og var á þeim stað að vilja reyna allt til að fá
hana aftur,. Að fara til heilara var eitt af því. Ég man enn hvað ég var gjörsamlega orkulaus og búin á því og hvað þessi tími reyndist því miður gjörsamlega gagnslaus. Ég fór
í einhverja handayfirlagningu sem skilaði engu.
Þetta var staðan á mér þegar ég hóf nám í þessum skóla sem ég
hafði svo miklar væntingar
til.
Viðskiptaháskólinn á Bifröst
var ekki staður þar sem mér leið vel. Ég vil ekki vera grimm, því auðvitað kynntist ég
yndislegu fólki þar
– ekki síst í frumgreinadeildinni – sem mér þykir undurvænt
um og mun alltaf þykja og kennurum ekki síður, en því miður verður að
segjast að þessi skóli var ekki stofnun sem
byggði undir sjálfstraust mitt nema síður væri og mér leið
einfaldlega aldrei vel þar.
Ég lagði
af stað 36 ára með miklar væntingar um námið sem slíkt. Það
sem ég kynntist var
vertíðarstemning. Í stað þess að fá okkur nemendur til þess að hugsa gekk allt
út á „afurðir“. Við áttum að skila verkefni í hverju einasta fagi í hverri
viku. Álagið var brjálæðislegt. Hópstarf mjög
vinsælt án þess nokkurn tíma að gerð væri tilraun til að skýra út fyrir okkur
hverju það ætti að skila –
öðru en því „að það átti að
gera okkur svo gott þegar við kæmum
út á vinnumarkaðinn“.
Eins og flestir vita sem taka þátt í endalausu hópastarfi án skilgreiningar þá endar
slíkt oft með því að einn eða
tveir einstaklingar vinna megnið af vinnunni. Þannig var það oft á Bifröst. Ef þú hafðir metnað til að fá góðar einkunnir var oft látið með það eins og það væri neikvætt. Ég ætla ekki að þreyta ykkur með löngum lýsingum á þessum skóla. Aðeins að segja að
það var svo margt í viðskiptafræðinni sem mér fannst illþolanlegt og andlaust og ég var oft gjörsamlega við það að bilast af innrætingu á „selfölfeligheder“ eins og einn samnemandi minn
orðaði það einhvern tíma.
Í stað þess að fá mig til þess að hugsa var sífellt látið að því liggja að ég væri með „hið
eina sanna svar“ í höndunum.
Og mér var gefin uppskrift að
þessu svari með eilífum
langlokum þar sem greinilegt var að gengið var út frá að ég væri ekki vitsmunavera sem kynni deili á nokkrum sköpuðum hlut. Mér fannst þetta ótrúlega
þreytandi og velti því upp þegar
tækifæri gafst til að benda á þetta. Hvort það gæti verið að það væri eitthvað rangt við þennan hugsunarhátt – þessa endalausu leit „að einu réttu svari“?
Ég var að byrja að lesa bókina hans Bergs Ebba í gærkvöld. Öld ímyndunaraflsins
heitir hún. Á fyrstu síðunum gerir hann mér grein fyrir að gervigreindin byggir á þessu módeli. Gervigreindin gefur okkur „eitt
rétt svar“ við því sem við spyrjum um.
Frederick
Winslow Taylor. Maðurinn sem leit svo á að það væri til eitt rétt svar við öllum hlutum. Hugmyndafræðingur tæknihyggjunnar í Kísildal par excellence?
Set spurningarmerki því ég hef ekki hugmynd um það. Hef ekkert kafað ofan í
það, en einhvern veginn virðist það
blasa við af öllu sem ég upplifi. Ég er
umlukin hugmyndafræði sem gengur út á að telja og mæla allt í mannlegri hegðan. Viðskiptafræðiskólinn orðinn SANNLEIKURINN með stórum staf þar sem allt sem kennt er
þar er prjónað inn
í samfélagið sem ég lifi í. Menn tala – stjórnmálamenn og aðrir
forystumenn – eins og allt samfélagið
eigi að vera undirorpið þeirri hugmyndafræði sem kennd er í viðskiptafræði. Hún sé boðberi sannleikans!
Þetta er svo mikil firra að það nær ekki nokkurri átt. Það er kominn tími
til að beygja af leið og það
fyrir löngu síðan.
Maðurinn er heimspekileg vera. Það að vera forvitinn og
spyrja spurninga er það mikilvægasta
af öllu í mannlegum heimi. Tæknihyggja sem heldur að allir
hlutir lúti „einu réttu svari“ ber dauðann í sér.
Árið 2002, eftir að hafa klárað frumgreinadeild og tvö ár á Bifröst, var komið gott. Ég útskrifaðist með diplomagráðu og það var ekki nokkur
möguleiki að halda áfram og
klára BS-gráðu. Ég var einstæð móðir og hafði fyrir
barni að sjá og skammtímaskuldir (námslánin dugðu engan veginn) komnar í þær
upphæðir að ég varð að fara
aftur að vinna. Auk þess sem það var ekki arða af vilja í mér til að halda áfram. Ég
var gjörsamlega niðurbrotin
eftir þrjú ár í þessum skóla
sem ég hafði farið í til að byggja mig upp og nú var komið gott.
Misskiljið mig samt ekki. Það var ekki vegna þess að mér hefði ekki gengið vel. Einkunnir
mínar voru fínar og með þeim hæstu
þetta vor ,en ég var
einfaldlega búin á því og varð að halda áfram. Niðurrifstímabilið hafði hafist
1997 og ég var bara í fyrsta fasanum.
Foreldrar mínir seldu jörðina þar sem ég
hafði alist upp hinum megin við heiðina
við Bifröst og þau fluttu til Reykjavíkur þetta vor
– í sömu götu og ég bjó – Laugateig í Reykjavík.
Þegar ég kom út voru allir stjórnendur á Íslandi meira
og minna orðnir að guðum. Komnir með laun sem gáfu þau skýru skilaboð að þetta fólk átti ekkert sameiginlegt með fólkinu á gólfinu. Á grundvelli sömu hugmyndafræði og ég hafði numið í skólanum. Hugmyndafræðin um
frammistöðutengd launakerfi hafði í bókstaflegri merkingu heltekið íslenskt samfélag eins og það lagði sig. Stjórnendur lítilla fyrirtækja og samtaka jafnt sem stórra.
Grunnurinn að aðlinum hafði verið lagður.
Árið var 2002 og enn sex ár í hrunið.
Ég var 39 ára.