Heitir nýútkomin bók eftir Guðbrand Árna Ísberg. Titill sem hittir mig beint í hjartastað og þess vegna gerist ég svo gróf að stela honum hér. Auður Jónsdóttir, rithöfundur og blaðamaður, birtir viðtal við höfundinn Guðbrand í nýjasta blaði Heimildarinnar. Þar ræða þau efni bókarinnar sín í milli og það hefur þau áhrif á mig að ég verð að fara beint út í búð og kaupa þessa bók. Það ætla ég að gera og ég vona að þessi fyrsta málsgrein verði til þess að höfundur fyrirgefi mér að stela frá honum titlinum. Ég geri það vegna þess að hann hittir beint í mark að mínu viti. Hann segir með einni setningu það sem öllu skiptir í nútímasamfélagi en við höfum í stafrænum heimi misst sjónir á. „Í augum þínum verð ég til“. Ef ég hef ekki tækifæri til að spegla mig í þér, eða ef ég upplifi endalaust áhugaleysi – að síminn sé þér meira virði en ég – þá verð ég einskis virði. Nánd er það sem máli skiptir.
Taugakerfið okkar er ekkert aukaatriði.
Taugakerfið er við.
Það er þetta sem ég hef áhuga á. Ég hef áhuga
á manninum. Ég hef engan áhuga á tækni. Hef aldrei haft. Ég afneita henni ekki
heldur og ber alveg mátulega virðingu fyrir henni en ég bugta mig ekki og beygi
í andakt þegar ný útgáfa af síma kemur á markað eða þegar allur heimurinn
virðist standa á öndinni yfir gervigreind. Aðrir geta séð um það. Ég hef áhuga
á manninum. Hef alltaf haft hann en hef hins vegar staðið mig illa í að rækta
hann. Eða kannski er það nú ekki alveg rétt. Áhugi minn á bókmenntum og
hugvísindum fellur auðvitað hér undir en samt – ég hefði getað staðið mig svo
miklu, miklu betur.
Nú langar mig til að bæta úr. Svo um munar.
Mig langar til að hjálpa okkur – heiminum – til að breyta um kúrs . Til að
komast aftur á rétta braut.
Ég sagði ykkur að ég hefði heimsótt helvíti
árið 2017 – 54ra ára gömul. Það var hræðilega vont og ég vona innilega að ég
muni aldrei fara á þann stað aftur en auðvitað veit ég ekkert um það. Framtíðin
er óráðin og ég veit lítið um það hvað á fyrir mér að liggja. Það sem ég veit
er að mér hefur tekist að læra að sýna sjálfri mér mildi mun oftar en áður og
það er ótrúlega gott. Ég ætla ekki að halda því fram að mér hafi tekist að læra
að elska sjálfa mig skilyrðislaust en ég er á góðri leið og það er ótrúlega
mikilvæg breyting.
Það sem fór með mig á þann stað sem ég fór var
fyrst og síðast niðurrifsröddin í hausnum á mér. Auðvitað voru margir aðrir
þættir líka en það sem gerði útslagið var ég sjálf.
Á Bifröst árið 2016 – á árinu sem ég ákvað að
taka BS gráðu í viðskiptafræði frá skólanum sem ég hafði tekið Diploma gráðu 15
árum fyrr – hafði ég snemma hugsað mér að gera verkefni um persónulegt líf mitt
með íslensku krónunni í áratugi. Ég hafði talað við Guðmund Ólafsson sem ætlaði
að vera leiðbeinandi minn í þessu verkefni og ég ætlaði að skrifa það út frá
Hagfræði. Meiningin var að varpa ljósi á líf einstaklings með þessu fyrirbæri
sem ég hef haft ímugust á allt mitt fullorðinslíf.
Það átti þó eftir að fara öðruvísi. Ég hef
sagt frá því áður að fyrsta algjöra niðurbrotið mitt varð árið 2015 og það var
í raun ástæða þess að ég sat á skólabekk þarna, komin vel yfir miðjan aldur.
Þetta var eitthvað sem ég gat gert – þó ég væri langt frá því upp á mitt besta
– ég gat þetta.
Lestur á litlu appelsínugulu kveri um
„Þjónandi forystu“ varð til þess að ég henti ritgerðarefninu sem ég hafði
hugsað mér si svona og tók algjöra u-beygju varðandi viðfangsefnið. Ég varð. Ég
varð að takast á við það hvað gerðist í hausnum á mér við lestur þessa litla
kvers og það kom á daginn að ég fékk stuðning til þess að skipta þó tíminn væri
í sjálfu sér enginn. Ég fékk leiðbeinanda til að samþykkja að taka verkefnið að
sér og málið var afgreitt á einni viku eða svo þarna á vormánuðum árið 2016.
Sumrinu 2016 eyddi ég með Sókratesi, Platon og
Nietzsche, Páli Skúlasyni, Hannah Arendt, Sigmund Freud og fleira góðu fólki.
Ég komst í ham og var bókstaflega að tapa mér yfir að finna að sjálf mitt var
aftur á lífi eftir að hafa dáið svo gott sem ári fyrr. Það var dásamlegt að
vera á lífi. Ólýsanlegt. Ég skrifaði og skrifaði og skrifaði og fór auðvitað
offari í þeirri viðleitni minni að gera grein fyrir því hvað gerðist í hausnum
á mér.
Ég tókst á við efnið með persónulegum hætti og
leiðbeinandinn skildi ekkert hvað ég var að fara. Honum var verulega misboðið –
ætlaði að fella mig. Ég hélt nú ekki. Ætlaði ekki að leyfa honum það og sagðist
mundu gera aðra tilraun. Vissi upp á hár hvernig ég ætlaði að takast á við
efnið í annarri tilraun og lagði það fyrir hann. Hann samþykkti.
Ég tók sjálfa mig út úr ritgerðinni og tókst
að klára hana samhliða öðrum fögum sem ég var í á haustönn. Skilaði henni
óyfirlesinni inn á vef Skemmunnar á síðustu stundu og sat milli vonar og ótta
öll jólin 2016 hvort þetta hefði tekist og viti menn það tókst – ég fékk 7! Og
þar er hún enn, BS ritgerðin mín í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst, „Við erum manneskjur“.
Ég segi frá þessu hér vegna þess að ég held að
ég sé í grundvallaratriðum að tala um það sama í ritgerð minni og Guðbrandur er
að fjalla um. Að við manneskjurnar þörfnumst ástar. Að við getum ekki lifað án
ástar.
Ástin er ekki á rafrænu formi. Ástin er miklu
merkilegri en svo og hún birtist okkur með speglun. Eins og titillinn hér ber
með sér „í augum þínum verð ég til“. Nákvæmlega þannig.
Þroska sinn tekur manneskjan út með samskiptum
við aðra. Við lærum á okkur sjálf og heiminn með samskiptum. Samskiptum sem
stafræn tækni getur ekki komið í staðinn fyrir.
Auður Jónsdóttir á segir á einum stað í grein
sinni í Heimildinni, Ástleysi er sárt: „Hluti af vandanum í nútímanum getur
falist í því að fólk talar oft saman rafrænt, eins og maður nokkur sagði, eftir
að hafa endað nokkur sambönd í skilaboðum: Djöfullinn býr í takkaborðinu.“
Við því segir Guðbrandur Árni: „Það sem getur verið skaðlegt við það er að
heilinn fær ekki þau ógrynni af upplýsingum sem koma í gegnum skynfærin í
nærveru. Allar þessar fjölbreyttu upplýsingar sem hann notar til að reyna að
skilja gjörðir annarra. Tómarúmið þarf því einstaklingurinn sjálfur að fylla út
og þar skapast auðveldlega misskilningur.“
Þekkið þið þetta? Þekkið þið að mistúlka
skrifleg skilaboð við ykkar nánustu reglulega?
Marina
Abromovich bauð almenningi upp á gjörning í Metropolitan safninu í New York
árið 2010 þar sem hún sat kyrr á stól og einbeitti sér að því að mynda tengsl
við þann sem settist í stólinn á móti henni. Hún sagði ekkert – ekki orð í yfir
700 klukkustundir. Hún sat bara á stólnum og fólk flykktist í stólinn á móti
henni til að njóta þess sem hún hafði upp á að bjóða. Sem var ekkert en um leið
allt.
Er ekki kominn tími til að við gefum þessum
þætti meira vægi?

