laugardagur, 3. október 2026

Samruni manns og vélar


Í nýrri könnun sem birt var á vísi í gær kemur í ljós að Elon Musk og Donald Trump eru karlmenn sem komast á blað fyrir að vera fylgt af norrænum körlum á aldrinum 18–45. Andrew Tate er einnig fylgt af dönskum körlum á þessum aldri og Jordan Peterson af íslenskum. Engin kona kemst á blað hjá þeim íslensku. Sanna Marin kemst á blað hjá þeim finnsku og Greta Thunberg hjá þeim öllum nema þeim íslensku. Áhugaverð niðurstaða svo ekki sé dýpra í árinni tekið.

Engum einstaklingum kysi ég síður að ungir karlar fylgdu en þeim sem hér eru nefndir: Elon Musk, Donald Trump, Andrew Tate, Jordan Peterson.

Þetta eru áhrif Kísildalsins. Áhrif frá tæknimógúlunum sem við höfum fylgt í blindni alla þessa öld. Og finnst, að því er virðist, góð hugmynd að treysta fyrir börnunum okkar frá unga aldri.

Það hefur verið merkilegt að fylgjast með þessari þróun. Þróun samfélags þar sem allir einstaklingarnir eru orðnir að zombíum sem sjá það hvað merkilegast í heiminum að stara ofan í skjá daginn út og daginn inn. Finnst það merkilegra en að fylgjast með barninu sínu. Merkilegra en að horfa á umhverfið í krinum sig. Merkilegra en allt. Að stara ofan í skjá daginn út og daginn inn.

Ég hef ekki farið varhluta af þessari þróun. Haustið 2014 keypti ég minn fyrsta „snjallsíma“. Það var Nokia Windows sími. Ég keypti hann fyrir gæði myndavélarinnar þar sem ég var að leggja upp í ferðalag til Asíu þar sem ég hugðist dvelja nokkra mánuði. Hann kom sér vel og skilaði sínu.

Samfélagsmiðlunum kynntist ég árið 2009 þegar ég fór strax á kaf í Facebook. Sem betur fer sleppti ég öðrum slíkum miðlum, lét Facebook duga. Ég kynntist því fljótt á sjálfri mér hvernig andlegri heilsu hrakaði af því að nota Facebook. Samanburðurinn ætlaði fljótt að drepa mig. Ég var 46 ára þegar ég kynntist þessum miðli og leyfði honum strax að taka yfir stjórn á mínu lífi. Ég var 54 ára þegar ég var kominn til helvítis. Það var afleiðing margra hluta – meðal þeirra voru samfélagsmiðlar. Facebook.

Ég hef aldrei síðan haft Facebook uppsett á símanum mínum. Ég er ekki heldur með Messenger uppsett á símanum mínum. Ég er við stjórn. Ég opna Facebook þegar mér sýnist og þegar mig langar. Ég fæ engar tilkynningar þaðan. Ég nota WhatsApp til samskipta. Þetta reyndist gríðarlega mikilvægt skref fyrir mína andlegu heilsu. Ég mun aldrei leyfa Facebook eða öðrum miðlum að taka yfir stjórn á lífi mínu aftur. Aldrei.

Samfélagið hefur á þessum tíma tekið stakkaskiptum. Þ.e. síðan í upphafi aldarinnar. Samruni vélar og manns hefur verið fullur af sársauka og við erum aldeilis ekki búin að bíta úr nálinni með afleiðingarnar enn. Það er komið árið 2026 og við erum að átta okkur á því að því að við höfum endurforritað æskuna.

Byrjaði að lesa Kvíðakynslóðina eftir Jonathan Haidt í gær og er kominn á blaðsíðu 237. Það er rosaleg lesning, svo ekki sé sterkar að orði kveðið, en ekkert í henni kemur mér þó á óvart. Ekkert. Hún staðfestir það sem ég vissi fyrir. Að við erum að leyfa Kísildal að eyðileggja samfélag okkar. Eyðileggja börnin okkar. Okkur sjálf. Við erum ekki lengur við stjórn – heldur tæknin. Við leyfum tækninni að komast upp í rúm með börnunum okkar og vera með þeim allar stundir sólarhringsins. Það teljum við mikilvægast alls.

Við erum búin að úhýsa leiknum og teljum að við getum „kennt“ börnunum okkar allt! Þvílík firra! Þvílík heimska. Hvernig dettur okkur í hug að það geti verið sniðug hugmynd að henda ármilljóna þróun mannkynsins á haugana fyrir hugmyndir heimskra karla í Kísildal sem halda að það sé sniðug hugmynd að fjölfalda sjálfan sig? Eins og Elon Musk? Hafið þið hlustað á þættina „Konungssinnar í Kísildal“? Ef ekki þá mæli ég eindregið með því að þið gerið það. Strax.

Ætlum við núna að treysta þeim fyrir næsta þrepi? Ætlum við blind inn í gervigreindarkapphlaupið? Ætlum við tæknimógúlunum að vera við stjórn? Heimsins? Mannkynsins? Næstu áratugina? Finnst okkur það góð hugmynd?

Ég tek það fram að ég er „ekki á móti tækni“. Ekkert af því sem ég segi hér gefur leyfi til að komast að þeirri niðurstöðu. Ég er aftur á móti þeirrar skoðunar að ég tel tvímælalaust að maðurinn eigi að vera við stjórn. Góði maðurinn. Maðurinn sem veit að lýðræði er langskásta stjórnarfar mannlegs samfélags. Að það er fyrir einhverju að vinna.

Að það er glórulaus heimska að láta mönnum eins og Elon Musk og Donald Trump eftir sviðið. Að leyfa þeim og þeirra kónum að taka yfir stjórn er í mínum huga svipað og við hefðum leyft Hitler að taka við stjórn heimsins árið 1939.

Þetta eru stór orð. Ég veit það. En þau eru meint frá innstu hjartarótum. Ég fyrirlít af öllu hjarta allar hugmyndir þessara karla um styrk og valdníðslu gagnvart minnihlutahópum. Fyrirlít viðhorf þeirra til hvíta kynstofnsins. Til kvenna. Fyrirlít viðhorf þeirra til samkynhneigðra. Til fatlaðra. Til fátækra hluta heimsins. Til fátækra þjóða. Til „vina“ sinna eins og Kanada. Ég fyrirlít af öllu hjarta stjórnarfar þessara karla og ég hef fylgt Timothy Snyder lengi. Manni sem ég hlustaði á fara með ræðu hér á Alþjóðlegri bókmenntahátíð árið 2017 og sem flúði Bandaríkin í upphafi stjórnartíðar Donalds Trump 2024.

Tæknin er ekki upphaf og endir alls. Tæknin er, og á að vera, verkfæri undir stjórn mannsins. Maðurinn verður að vera með það á hreinu að til þess að geta verið við stjórn þarf hann að leyfa sjálfum sér að þroskast eðlilega. Sem manneskja. Ekki sem hluti af vél. Frá fæðingu til ég veit ekki hvaða aldurs – 16 ára? 18 ára? Eigum við að leyfa börnunum okkar að lifa án stafrænnar vélar sem tekur yfir líf þeirra.

Til að börnin okkar verði heilbrigðir og sterkir einstaklingar með sjálf sem situr heilbrigt í þeirra líkama þurfum við að leyfa þeim að þroskast. Þroskast í samskiptum hvert við annað og við okkur, fullorðna fólkið. Án þess að við séum alltaf við stjórn. Án þess að vélin sé alltaf að áreita þau. Stöðugt.

Að síðustu ætla ég að láta þess getið að árið 2017 áttaði ég mig á að ég hafði orðið fyrir „auðkennisþjófnaði“. Ég áttaði mig á því að stafrænt sjálf mitt hafði verið tekið yfir af öðrum einstaklingi. Það var rosaleg reynsla. Rosaleg. En í sjálfu sér held ég núna ekkert einstök. Við erum búin að þróa þessa tækni okkar þannig að glæpir eru daglegt brauð. Og við venjumst því að það sé þannig.

Ég spyr mig reglulega að því hversu langt sé í að netbankar heyri sögunni til. Hversu langt sé í að gervigreindin komi okkur aftur í þá stöðu að þurfa líkamlega að fara í bankann til að ganga frá okkar málum? Ég veit það ekki.

Ég veit það að til að komast aftur á rétt ról í kjölfar þess að hafa verið yfirtekin stafrænt ákvað ég að líta svo á að samskipti mín á tölvunni væru eins og sveitasíminn sem ég ólst við í gamla daga. Ég ákvað að það væri eina leiðin til að lifa af. Að taka samskipti mín við tölvuna ekki svo hátíðlega að þau mættu ekki koma fyrir sjónir annarra heldur kysi ég að líta svo á að það gæti vel verið að einhver annar læsi allt sem ég léti frá mér fara og það væri bara allt í lagi. Þetta viðhorf hjálpaði mér að komast á réttan kjöl og ég komst yfir þá staðreynd að annar einstaklingur hefði í raun tekið yfir stafrænt sjálf mitt.

Þannig er staðan í dag. Ég lít á þessa tölvu og stafræna miðla sem ég skrifa og vinn á eins og sveitasímann forðum. Að allt sem ég geri geti verið séð af öðrum og það er í lagi. Það er mikill léttir að líta svo á og það hjálpar.

Ég man mjög vel að ég var 16 ára þegar við fengum loksins sjálfvirkan síma í stað sveitasímans þar sem allir í sveitinni gátu hlustað. Ég gerði ekki mikið af því að hringja fyrir þann tíma og raunar held ég að við unga fólkið höfum lítið notað símann sem samskiptatæki.

Það var stórkostleg breyting að fá sjálfvirkan síma. Síma sem hægt vara að tala í án þess að hafa áhyggjur af því að samtalið væri hlerað.

Mér finnst mikilvægt að við hugsum aðeins um þær breytingar sem orðið hafa. Að við veltum fyrir okkur hvers konar byltingu við höfum leyft að yfirtaka heiminn síðustu áratugi. Að það sé kannski kominn tími til að við áttum okkur á því að við höfum hlutverki að gegna. Maðurinn. Að það er ekki sjálfsagt að við leyfum tækninni að taka af okkur alla stjórn.

Að það sé eitthvað ekki í lagi með heim þar sem ungir karlar líta svo á að Elon Musk og Donald Trump séu helstu fyrirmyndirnar.

(Ljósmyndin er af verki Errós frá sýningu í Listasafni Reykjavíkur á Menningarnótt 2025)

föstudagur, 2. október 2026

Vélin – guð 21. aldar?


Ég hef í greinaskrifum mínum fjallað um guði 21. aldar í fleirtölu og að þeir séu núna á meðal okkar niðri á jörðinni. Er tölvan – vélin – með ákveðnum greini einn af þeim?

Ég hallast að því að svo sé og byggi það á reynslu.

Upp í hugann kemur myndlistarsýning sem ég fór á um feril Errós í fyrra. Ég ætlaði alltaf að fjalla um þá upplifun opinberlega en svo varð aldrei af því – sem er synd því þetta var stórkostleg sýning og það sem var svo stórkostlegt við hana var þessi uppgötvun – að átta sig á því að Erró hafði verið að fjalla um samruna manns og vélar allan sig feril. Þessi sýning átti svo mikið erindi við okkur og mig langar að leggja aðeins út af henni núna.

Ég sagði ykkur af því í síðustu grein að ég ætti erfitt með að sætta mig við heim sem væri ekkert nema efnið. Þannig hefur það alltaf verið. Ég hef átt erfitt með að fóta mig í nútímanum alla þessa öld og það á ekki síst við um hvernig við höfum gert tæknina að aðalatriði. Mitt helsta áhugasvið frá unga aldri hefur verið maðurinn í sinni víðustu mynd og ég sakna þess að við gerum mennskunni hærra undir höfði. Að við gerum meira af því að fjalla um hvað það þýðir að vera maður og að göngumst við því að maðurinn er breysk tegund – marglaga en ekki tvívíð.

Ég var orðin tvítug þegar ég fór fyrst að vinna á tölvu. Ég var ritari hjá skattrannsóknarstjóra og var í því að setja upp stórar skýrslur með fjöldanum öllum af töflum af margvíslegum toga inn á milli í textanum. Þetta var vandasamt verk en mér fórst það vel úr hendi og fékk hrós fyrir frá körlunum sem ég starfaði fyrir. Ég lærði að vinna með þessa vél sem mér fannst ekkert tiltakanlega merkilegt fyrirbæri, þ.e. ég bar enga ótæpilega virðingu fyrir henni en hún gagnaðist mér vel og það var ágætt.

Ég hafði lært fingrasetningu í vélritun í Kvennaskólanum og sá lærdómur kom sér vel við að tileinka sér færni og hraða á tölvuna. Síðar varð ég ritari hjá Flugleiðum og enn var ég að vinna með ritvinnsluforrit sem mér líkaði ágætlega. Einhvern tíma á þessum árum man ég eftir að „músin“ kom til sögunnar. Mér varð strax meinilla við þessa mús þar sem hún krafðist þess að ég tæki fingurna af lyklaborðinu .sem eðli málsins skv. var ekki gott fyrir vinnsluhraðann.

Strax þarna varð ljóst að samferðamönnum mínum fannst ég ekki bera nægilega mikla virðingu fyrir þessu fyrirbæri – tölvunni – sérstaklega var þetta viðhorf áberandi hjá körlunum í kringum mig.

Þeir hæddust að mér þegar ég kvartaði yfir þessari „framþróun“ sem fólst í músinni og báru enga virðingu fyrir því sem ég var að tala um. Löngu, löngu, löngu síðar hæddust svo aðrir karlar að því að ég hefði ekki tileinkað mér flýtlilykla til að komast hjá því að nota músina en það þarf vart að taka fram að þarna í upphafi lágu þeir ekkert fyrir og stóðu því ekki til boða. Ég hefði svo sannarlega gripið þá fegins hendi ef svo hefði verið.

Ég segi þessa sögu til að lýsa viðhorfi mínu til tækninnar sem hefur í meginatriðum verið óbreytt allan þennan tíma. Ég ber enga ótæpilega virðingu fyrir henni. Mér finnst hún oft alveg ágæt og allt í lagi með það en ég hef mjög oft saknað þess að fólk í kringum mig hlustaði meira og væri sér meðvitaðra um breytingarnar sem tæknin óhjákvæmilega hlýtur að leiða af sér.

Mér hefur misboðið þessi ótæpilega virðing mannkynsins fyrir endalaust hraðri tækniþróun án þess nokkurn tíma að velta fyrir sér hvort að um sé að ræða „framþróun“ eða hvort mögulega sé um að ræða eitthvað allt annað – eyðileggingarafl kannski? Gæti það átt við í einhverjum tilfellum?

Ein breyting man ég þó að mér fannst „stórkostleg“ og ætla að deila henni með ykkur hér – Google.

Ég hóf nám í Viðskiptaháskólanum á Bifröst árið 1999 og þá var internetið komið til sögunnar. Ég þurfti að berjast fyrir því að fá símalínu inn í sumarbústaðinn þar sem ég bjó og fannst það áhugaverður lærdómur í sarpinn á 21. öld. Að það þætti ekki sjálfsagt að hið opinbera á Íslandi skaffaði mér internettengingu í alfararleið hringvegar númer 1 á þessum tíma – en þannig var það ekki – það hafðist þó allt saman fyrir rest og ég fékk tenginguna án persónulegs tilkostnaðar ef ég man rétt.

Og þá að uppgötvun Google. Eitt af því jákvæða sem við gerðum sem nemendur á Bifröst voru svokölluð misserisverkefni – verkefni sem hópur nemenda vann að saman í tvær vikur í lok hverrar annar og endaði svo á að standa skil á fyrir framan hóp sem samanstóð af kennurum og samnemendum – svokallaðri „málsvörn misserisverkefna“. Þetta var gagnleg og skemmtileg vinna og í einum þessara hópa kynntist ég töfrum Google í fyrsta skipti.

Vorið 2001 vorum við, misserishópur á Bifröst, að gera litla athugun á því hvort það gæti mögulega verið þess virði að veiða sæbjúgu á Íslandi fyrir kínverskan markað. Internetið lá fyrir fótum okkar með allar sínar upplýsingar en það virtist óvinnandi vegur að ná nokkru vitrænu út úr því. Maður sá bara fyrir sér ofgnótt upplýsinga án þess að það nýttist manni neitt. Þá var okkur bent á að prófa þetta forrit, Google. Og viti menn – það kom okkur strax á sporið. Rétta sporið meira að segja!

Það sem okkur fýsti svo mjög að vita var hvort sú tegund af sæbjúga sem veiddist við Íslandsstrendur væri möguleika einhvers virði fyrir kínamarkað. Hvort að við gætum komist í einhverjar upplýsingar sem færðu okkur nær því að vita það. Og það var það sem Google færði okkur. Kom okkur á slóðir rannsakanda í Kanada sem hafði rannsakað þessa tegund sem veiddist hér og ég einfaldlega skrifaði honum til að fá upplýsingar frá honum frá fyrstu hendi. Hann svaraði um hæl og í framhaldi gerði hann sér lítið fyrir og birti tölvupóstinn í sérriti sem gefið var út í Kanada um „Cucumaria frondosa“ (sæbjúgu) og það átti eftir að verða til þess að við fengum frekari fyrirspurnir um þessa litlu rannsókn okkar frá aðilum erlendis og  hér heima, löngu eftir að við vorum hættar í skólanum. 

Ég man hvað mér fannst þetta stórkostlegt og hvað ég heillaðist gjörsamlega af þessari nýju tækni sem maður upp frá því notaði ótæpilega og er nú orðið að íslenskri sögn yfir leit á internetinu „að gúggla“. Á þeim tíma sem liðinn er hefur þessi leitarvél orðið, eins og annað á netinu, Mammoni að bráð.

Á Bifröst á þessum árum var gerð sú krafa að allir sem sóttu nám í skólanum þurftu að vera með fartölvu. Ég, í mínum innbyggða mótþróa, komst þó upp með að vera án þess fyrsta árið mitt í skólanum í frumgreinadeildinni. Mér finnst það merkilegt í dag að hafa fengið þennan samanburð. Annars vegar að nota penna og blað til að glósa og svara prófum og hins vegar að vera með þetta tæki – vélina – tölvuna sem hluta af mér og nota hana til allra hluta. Mér fannst jafnvel á þessum tíma afturför að nota tölvuna. Í prófum þýddi það miklu meira blaður. Óhjákvæmilega. Ég tók líka mjög vel eftir því að skrifa á tölvuna virkaði allt öðruvísi á minnið en að skrifa með penna. Við erum að tala um gjörólika virkni á heilastarfsemina. Að nota penna verður til þess að maður man og maður sorterar og greinir. Með fingurna á lyklaborðinu þá gerirðu það ekki með sama hætti.

Á Bifröst tóku nemendur upp samskiptaforrit til að eiga samskipti sín í milli. Mig minnir að það hafi heitið ICQ. Það var merkilegt að horfa á hópa nemenda sitja saman í hring og tala saman í gegnum samskiptaforrit – því þau gerðu það miklu fremur en að tala saman beint. Ég skildi þetta aldrei og fór aldrei inn á þetta fyrirbæri. Mér fannst þarna þegar mjög áhugavert að horfa á hvernig tæknin var að hafa grundvallaráhrif til hins verra á samskipti fólks. Hugsið ykkur – en við vorum augljóslega rétt að byrja. Ég útskrifaðist með diplomagráðu í viðskiptafræði frá Bifröst árið 2002. Við vorum vissulega komin með farsíma – meira að segja dóttir mín sem var 9 ára þegar ég hóf nám í frumgreinadeild – orðin 12 ára þegar ég útskrifaðist. En það voru enn takkasímar.

Síðan þetta var hefur mikið vatn runnið til sjávar og um það mun ég fjalla í næstu grein.

sunnudagur, 20. september 2026

Hann sætti sig ekki við heim sem var ekkert nema efnið …

Orð sem Andri Snær Magnason notaði til að lýsa Ísak Harðarsyni í minningargrein um hann vorið 2023. Orð sem snertu mig. Snertu mig djúpt.

Ég á þetta nefnilega sameiginlegt með Ísak Harðarsyni – ég á erfitt með að sætta mig við heim sem er ekkert nema efnið. Undarlegt áreiðanlega, í ljósi þess hver starfsvettvangur minn hefur verið en samt svo satt.

Haustið 1999 hóf ég nám í Viðskiptaháskólanum á Bifröst. Í frumgreinadeild þó ég væri með einkunnir nálægt 9 í meðaleinkunn á stúdentsprófi og 11 ára reynslu af alþjóðlegum viðskiptum. Ég var auðvitað kjáni að gefa yfirleitt færi á því en þegar mann skortir sjálfstraust þá gerir maður ýmislegt undarlegt.

Orðið nokkuð síðan ég áttaði mig á hversu óskaplega vitlaust nám ég valdi mér og hversu afdrifarík sú ákvörðun var. Það lá eitthvað svo beint við. Fyrst ég hafði valið að starfa í viðskiptum var eitthvað svo augljóst að fara í nám í viðskiptafræði. Þvílík vitleysa! Þvílík sóun á árum sem hefðu getað verið nýtt í eitthvað gagnlegt. Eitthvað uppbyggilegt. Eitthvað sem skipti einhverju máli. Í þess stað fór ég í nám þar sem ég engdist sundur og saman því hausinn á mér var að þorna upp af völdum tæknináms sem þóttist hafa svörin við ölluðum sköpuðum hlutum. Sem betur fer og til að gæta allrar sanngirni með undantekningum – vissulega. Annars hefði ég ekki lifað af.

Já, ég get játað það hér að mér fannst viðskiptafræðinám á Bifröst heilt yfir ekki skemmtilegt nám – eiginlega fjarri því. Og það gaf mér heldur ekki næringu. Eiginlega miklu fremur hið gagnstæða. Ég man eftir dögum þar sem ég fór á bókasafnið að leita að bókum um heimspeki eftir Pál Skúlason eða Sigurð Nordal … bara eitthvað til að losna undan þessu materíalska … sem var að gera mig brjálaða.

Og reyndar fór það svo að í lok þriðju annar fékk ég taugaáfall. Ég brann yfir í bókstaflegri merkingu. Ég bara gat ekki meir … fékk andnauð einhverja nóttina og hélt ég væri að deyja – nú væri komið að því! Ég fékk skólabróður minn úr næsta bústað til að fara með mig til læknis í Borgarnesi (enn bíllaus og bjó í sumarbústað fyrir ofan skólasvæðið) sem sendi mig heim með þær fréttir að það væri allt í lagi með mig. Ég hefði leyft streitunni að ná tökum á mér og ofandað sem væri vel þekkt fyrirbæri – nú þyrfti ég bara að slaka á.  Vörn misserisverkefnis var framundan – verkefnið um mismunandi færslur gengismunar í bókhaldi íslenskra stórfyrirtækja – verkefni sem ég hafði unnið hörðum höndum að því að klára – og tókst það. Man að ég stóð upp og svaraði spurningum fyrirspyrjenda af miklu öryggi þennan dag. Þeir gáfu okkur samt bara 7. Létu það fylgja að ef við breyttum einu tilteknu atriði í lokaskilum gætum við mögulega fengið 8. Ég settist við tölvuna og hugðist reyna að verða við því … en það reyndist ómögulegt. Bara að setjast við tölvuna var eins og ég var væri sjálf komin í beint samband við rafmagn. Ég gat það ekki. Var komin á stað sem ég varð að játa mig sigraða og taka mér frí til að hlaða batteríin að nýju.

Þetta taugaáfall var fullkomlega eðlilegt viðbragð við fullkomlega óeðlilegu ástandi. Ég hafði komið í þennan skóla með útbrunninn batterí – þennan skóla af öllum – skóla sem byggði á því verklagi að krefjast verkefnaskila í hverju fagi í hverri viku. Oftar en ekki hópverkefnum. Skóli sem gaf engin færi á því að lesa, hvað þá að hugsa. Allt gekk út á að framleiða. Framleiða og framleiða meira og meira af lausnum. Jesús minn hvað þetta var þreytandi og hvað þetta hentaði mér illa. En auðvitað svaraði ég þessu kalli. Metnaðurinn var ekki slökknaður enn og ég barðist til síðasta blóðdropa að fá eins háar einkunnir og mögulegt var.

Í ákvörðuninni – að fara í nám á Bifröst – fólst mikil uppgjöf, því ég hafði alltaf ætlað í háskólanám erlendis. En það var flókið að vera einstæð móðir með engan höfuðstól og ég hreinlega guggnaði á því að gera annað en vera hér heima. Að fara í viðskiptafræði lá einhvern veginn beint við því það var greinin sem ég starfaði í.

Hugsunin þá var að fara í „stutt“ praktískt nám (sem það varð auðvitað ekki í ljósi frumgreinadeildarinnar) var ekkert fráleit hugsun þegar ákvörðunin var tekin – en hins vegar var hún algjörlega fráleit þegar ég útskrifaðist. Það er ótrúlegt til þess að hugsa hvað gerðist þessi ár – hvaða breytingar urðu á samfélaginu. Að koma úr háskóla með diplomagráðu vorið 2002 var nákvæmlega einskis virði.

Ég man það enn eins og það hafi gerst í gær að einhvern tíma áður en ég fór upp á Bifröst leitaði ég til „heilara“ í Kópavoginum. Eins og ég sagði frá í síðustu grein, hafði ég tapað orkunni og var á þeim stað að vilja reyna allt til að fá hana aftur,. Að fara til heilara var eitt af því. Ég man enn hvað ég var gjörsamlega orkulaus og búin á því og hvað þessi tími reyndist því miður gjörsamlega gagnslaus. Ég fór í einhverja handayfirlagningu sem skilaði engu.

Þetta var staðan á mér þegar ég hóf nám í þessum skóla sem ég hafði svo miklar væntingar til.

Viðskiptaháskólinn á Bifröst var ekki staður þar sem mér leið vel. Ég vil ekki vera grimm, því auðvitað kynntist ég yndislegu fólki þar – ekki síst í frumgreinadeildinni – sem mér þykir undurvænt um og mun alltaf þykja og kennurum ekki síður, en því miður verður að segjast að þessi skóli var ekki stofnun sem byggði undir sjálfstraust mitt nema síður væri og mér leið einfaldlega aldrei vel þar.

Ég lagði af stað 36 ára með miklar væntingar um námið sem slíkt. Það sem ég kynntist var vertíðarstemning. Í stað þess að fá okkur nemendur til þess að hugsa gekk allt út á „afurðir“. Við áttum að skila verkefni í hverju einasta fagi í hverri viku. Álagið var brjálæðislegt. Hópstarf mjög vinsælt án þess nokkurn tíma að gerð væri tilraun til að skýra út fyrir okkur hverju það ætti að skila – öðru en því „að það átti að gera okkur svo gott þegar við kæmum út á vinnumarkaðinn“.

Eins og flestir vita sem taka þátt í endalausu hópastarfi án skilgreiningar þá endar slíkt oft með því að einn eða tveir einstaklingar vinna megnið af vinnunni. Þannig var það oft á Bifröst. Ef þú hafðir metnað til að fá góðar einkunnir var oft látið með það eins og það væri neikvætt. Ég ætla ekki að þreyta ykkur með löngum lýsingum á þessum skóla. Aðeins að segja að það var svo margt í viðskiptafræðinni sem mér fannst illþolanlegt og andlaust og ég var oft gjörsamlega við það að bilast af innrætingu á „selfölfeligheder“ eins og einn samnemandi minn orðaði það einhvern tíma.

Í stað þess að fá mig til þess að hugsa var sífellt látið að því liggja að ég væri með „hið eina sanna svar“ í höndunum. Og mér var gefin uppskrift að þessu svari með eilífum langlokum þar sem greinilegt var að gengið var út frá að ég væri ekki vitsmunavera sem kynni deili á nokkrum sköpuðum hlut. Mér fannst þetta ótrúlega þreytandi og velti því upp þegar tækifæri gafst til að benda á þetta. Hvort það gæti verið að það væri eitthvað rangt við þennan hugsunarhátt – þessa endalausu leit „að einu réttu svari“?

Ég var að byrja að lesa bókina hans Bergs Ebba í gærkvöld. Öld ímyndunaraflsins heitir hún. Á fyrstu síðunum gerir hann mér grein fyrir að gervigreindin byggir á þessu módeli. Gervigreindin gefur okkur „eitt rétt svar“ við því sem við spyrjum um.

Frederick Winslow Taylor. Maðurinn sem leit svo á að það væri til eitt rétt svar við öllum hlutum. Hugmyndafræðingur tæknihyggjunnar í Kísildal par excellence? Set spurningarmerki því ég hef ekki hugmynd um það. Hef ekkert kafað ofan í það, en einhvern veginn virðist það blasa við af öllu sem ég upplifi. Ég er umlukin hugmyndafræði sem gengur út á að telja og mæla allt í mannlegri hegðan. Viðskiptafræðiskólinn orðinn SANNLEIKURINN með stórum staf þar sem allt sem kennt er þar er prjónað inn í samfélagið sem ég lifi í. Menn tala – stjórnmálamenn og aðrir forystumenn – eins og allt samfélagið eigi að vera undirorpið þeirri hugmyndafræði sem kennd er í viðskiptafræði. Hún sé boðberi sannleikans!

Þetta er svo mikil firra að það nær ekki nokkurri átt. Það er kominn tími til að beygja af leið og það fyrir löngu síðan.

Maðurinn er heimspekileg vera. Það að vera forvitinn og spyrja spurninga er það mikilvægasta af öllu í mannlegum heimi. Tæknihyggja sem heldur að allir hlutir lúti „einu réttu svari“ ber dauðann í sér.

Árið 2002, eftir að hafa klárað frumgreinadeild og tvö ár á Bifröst, var komið gott. Ég útskrifaðist með diplomagráðu og það var ekki nokkur möguleiki að halda áfram og klára BS-gráðu. Ég var einstæð móðir og hafði fyrir barni að sjá og skammtímaskuldir (námslánin dugðu engan veginn) komnar í þær upphæðir að ég varð að fara aftur að vinna. Auk þess sem það var ekki arða af vilja í mér til að halda áfram. Ég var gjörsamlega niðurbrotin eftir þrjú ár í þessum skóla sem ég hafði farið í til að byggja mig upp og nú var komið gott.

Misskiljið mig samt ekki. Það var ekki vegna þess að mér hefði ekki gengið vel. Einkunnir mínar voru fínar og með þeim hæstu þetta vor ,en ég var einfaldlega búin á því og varð að halda áfram. Niðurrifstímabilið hafði hafist 1997 og ég var bara í fyrsta fasanum.

Foreldrar mínir seldu jörðina þar sem ég hafði alist upp hinum megin við heiðina við Bifröst og þau fluttu til Reykjavíkur þetta vor – í sömu götu og ég bjó – Laugateig í Reykjavík.

Þegar ég kom út voru allir stjórnendur á Íslandi meira og minna orðnir að guðum. Komnir með laun sem gáfu þau skýru skilaboð að þetta fólk átti ekkert sameiginlegt með fólkinu á gólfinu. Á grundvelli sömu hugmyndafræði og ég hafði numið í skólanum. Hugmyndafræðin um frammistöðutengd launakerfi hafði í bókstaflegri merkingu heltekið íslenskt samfélag eins og það lagði sig. Stjórnendur lítilla fyrirtækja og samtaka jafnt sem stórra.

Grunnurinn að aðlinum hafði verið lagður.
Árið var 2002 og enn sex ár í hrunið.
É
g var 39 ára.

laugardagur, 19. september 2026

Að velja fótspor forheimskunnar

Ef marka má grein Sönnu Magdalenu Mörtudóttur í vikunni þá lét borgarstjórinn okkar núverandi Hildur Björnsdóttir út úr sér samhengi hlutanna sem mig langar að tala út frá hér.

Hún talaði um tekjulægstu hópa borgarinnar sem fólk „sem gæti ekki staðið undir sér“ og mikilvægi þess að borgin laðaði að „tekjuhærri hópa“, sem að hennar mati „halda skattkerfinu okkar uppi“.

Áður en lengra er haldið verður að viðurkennast að ég varð kjaftstopp að lesa þetta. Er þetta í alvörunni viðhorf manneskjunnar sem er í forystu í Reykjavíkurborg? Borgarstjóra Reykjavíkur árið 2026?

Er það sérstakt markmið borgarinnar sem ég bý í að laða til sín Exitgæja og hvað ætlar hún svo að gera við þær sem verða fórnarlömb ofbeldis þeirra? Lóga þeim?

Ég sturlast næstum að lesa svona viðhorf til fólks. Þessi orð lýsa svo mikilli heimsku og skilningsleysi á stöðu manneskjunnar og samfélagsins að það er ófyrirgefanlegt að manneskja í stöðu borgarstjóra Reykjavíkurborgar tali með þessum hætti.

Það þarf ekkert að fara í grafgötur með í smiðju hverra hún leitar – hún fer lóðbeint í smiðju forheimskunnar – til Trump og þeirra líka.

Það þarf svo sem ekki að koma á óvart. Stórnarhættirnir strax í upphafi voru augljóslega sóttir til forskriftar viðskiptaskóla Bandaríkjanna. Setja fram lista um atriði sem átti að vera búið að framkvæma fyrstu 100 dagana í embætti. Byrja á því að reka svo og svo stóran hóp fólks og sýna okkur þannig hversu rosalega ábyrgur og flottur stjórnandi meirihlutinn ætlar að vera. Ég hef ekki treyst mér til að tala um þá hluti enda langt því frá sérfræðingur um málefni Reykjavíkurborgar – hef látið öðrum það eftir en vinnubrögðin minna augljóslega á „Apprentice“ og fulltrúa forheimskunnar pr excellence Donald Trump forseta Bandaríkjanna.

Ég ætla að upplýsa Hildi Björnsdóttur um það að fólk lendir í alls konar vandræðum í lífinu. Það lendir í ríkum gæjum sem beita stöðugu grófu andlegu og líkamlegu ofbeldi eins og gæjarnir í Exit beittu stöðugt. Einstaklingar sem lenda í slíku ofbeldi þurfa hjálp við að komast á fætur og það er hreint ekki víst að þeir einstalingar „standi undir sér“ á meðan.

Það er líka þannig að elítan sem henni er svo umhugað um borgar ekki öllum starfsmönnum sínum svimandi há laun fyrir störf sín. Það fólk á margt hvert „erfitt með að standa undir sér“.

Elítan á sama tíma er ekkert sérstaklega fyrir það að greiða háa skatta. Margir sem tilheyra þeim hópi vilja helst alls ekki greiða neina skatta og gera allt til að komast undan því.

Hvers konar flokkun er þetta annars í alvöru talað á manneskjum? Að tala annars vegar um „manneskjur sem hafa háar tekjur“ og hins vegar „manneskjur sem standa ekki undir sér“?

Er þetta viðhorf sem við íslenskur almenningur styður og tekur undir? Erum við Reykvíkingar yfir okkur hrifin af þeirri hugmynd að meirihlutinn í borginni hyggist „laða að sér hátekjuhópa“? Og hvað þá – losa sig sem mest við „þá sem standa ekki undir sér“?

Er hægt að flokka okkur almennt í þessa tvo hópa? Erum við manneskjurnar í Reykjavíkurborg þessar tvær tegundir hópa?

Hildur Björnsdóttir, Björg Magnúsdóttir og Einar Þorsteinsson eru væntanlega í „eftirsóknarverða hópnum“? Þessum tekjuháa?

Við hin mörg væntanlega í hinum hópnum „þessum sem stendur ekki undir sér“.
Hvað skal gera við okkur?

Þessi viðhorf borgarstjórans gera ekkert annað en sannfæra mig í þúsundasta skipti að við eigum að henda viðskiptafræðiskóla Bandaríkjanna á haugana eins og hann er kenndur. Við horfumst í augu við afleiðingar þeirrar hugmyndafræði í Bandaríkjunum núna.

Við þörfnumst heimspeki í almannarýmið. Við þörfnumst móður – einkynja fræðin eru að drepa okkur. Þessi viðhorf borgarstjórans eru ekki boðleg. Við erum ekki manneskjur annars vegar sem „stöndum ekki undir okkur“ og hins vegar manneskjur „með háar tekjur“. Við erum manneskjur. Punktur. Manneskjur í þessari stöðu í dag og hinni stöðunni á morgun. Manneskjur sem þurfum að takast á við alls kyns óendanlega hluti í veröldinni frá degi til dags. Persónulega og með öðrum. Við erum á einum stað í tilverunni í dag og við erum á öðrum stað á morgun.

Má ég vinsamlegast biðja um að borgarstjórinn í Reykjavík og meirihlutinn sem með honum starfar sýni okkur öllum virðingu. Fólkinu sem er með lágar tekjur í dag en getur haft svimandi háar tekjur á morgun. Fólkinu sem er á götunni vegna þess að það hefur lent á vegg í lífinu. Fólkinu sem er að takast á við sitt líf og hefur ekki orku til að takast á við heimsku stjórnmálamanna sem heldur að veröldin sé tvívíð.

laugardagur, 12. september 2026

Trúarbrögðin og afleiðingar þeirra

Ég held að fyrrverandi svila mínum hafi aldrei dottið í hug að hann hefði höndlað sannleikann, eða að hann vissi betur en aðrir um gangverk lífsins. Hann var menntaður í Háskóla Íslands með fjögurra ára Cand Mag. gráðu í viðskiptafræði. Hann var sér þess vel meðvitaður að nám hans veitti honum sérfræðiþekkingu á tilteknu sviði viðskiptafræða – en ekkert umfram það.

Á tíunda áratugnum fór að bera á því að menn létu eins og „svörin“ væri að finna í viðskiptafræði og það átti eftir að ágerast mjög á þeirri öld sem við nú lifum. Páll Skúlason var duglegur að benda okkur á að hún væri undarleg þessi árátta sem við værum umlukin alla daga, að svörin við öllu milli himins og jarðar væri að finna í markaðsfræðum. Við létum okkur samt ekki segjast og vorum og erum dugleg við að innleiða og upphefja þessi trúarbrögð. Þau trúarbrögð að viðskiptaheimurinn og viðskiptaháskólarnir haldi á sannleikanum og hafi svörin við öllum sköpuðum hlutum.

Mig hefur lengi langað til að skrifa þennan formála að grein og læt nú loksins verða af því.

Árið 1997 voru innleiddar miklar skipulagsbreytingar hjá aðaleiganda TVG-ZIMSEN – Eimskipafélaginu – skipulagsbreytingar sem áttu eftir að hafa afgerandi áhrif á mitt líf. Skipulagsbreytingar sem rekja mátti til þessara nýju trúarbragða sem heimurinn var í þann veginn að lyfta í hæstu hæðir.

Framkvæmdastjóri TVG-ZIMSEN var ungur, metnaðarfullur maður, tiltölulega nýútskrifaður úr viðskiptafræði þegar hann tók við sem framkvæmdastjóri. Hann var mjög áhugasamur um nýjar stjórnunarhugmyndir sem verið var að innleiða hjá Eimskipafélaginu og kynnti fyrir okkur starfsmönnum áætlanir sínar um stofnun hinna ýmsu hópa sem áttu að bæta starfsemi fyrirtækisins á öllum sviðum.

Ég, sem ástríðufullur starfsmaður sem brann af metnaði til að ná árangri, langaði til að taka þátt í öllum hópum en gat það ekki eðli málsins samkvæmt. Það var einfaldlega ekki hægt að koma því við og því varð ég að velja og hafna. Ég hafði mjög mikinn áhuga á því m.a. að verða þátttakandi í hópi sem hafði að markmiði „bætt innri samskipti“ á vinnustaðnum en hætti að lokum við þar sem ég varð að velja á milli og einhver annar hópur sem ég er fyrir löngu búin að gleyma hver var varð fyrir valinu. Það var afdrifarík ákvörðun svo ekki sé dýpra í árinni tekið.

Á þessum tíma var gríðarlegur vöxtur í fyrirtækinu og ég var vakin og sofin yfir öllum þáttum – minn fókus var alltaf á viðskiptavininn – að hann væri helst meira en mjög ánægður með þjónustu okkar – við áttum helst að fara fram úr væntingum hans.

Ég var líka vakin og sofin yfir mörgu sem ég bar strangt til tekið enga ábyrgð á, svo sem gagnvart því að fyrirtækið stæði sína plikt gagnvart tollyfirvöldum hvað tiltekna þætti varðaði eins og uppgjör transitskýrslna og fleira. Ég var einfaldlega þeirrar gerðar að mér fannst það sjálfsagt að taka á mig ábyrgð á því að hlutir væru kláraðir. Án þess að hafa verið beðin um það tók ég á mig ábyrgðina á hinum ýmsu þáttum og það var viðurkenndur farvegur að hafa það þannig. Til mín var leitað sem manneskjunnar sem ábyrgðina bar og ég stóð undir því og fannst það sjálfsagt.

Ég vílaði heldur ekki fyrir mér að vinna yfirvinnu ef þess var þörf og oft kom það fyrir að ég tók að mér að hafa umsjón með mjög áríðandi sendingum – eins og t.d. varahlutum í skip sem nauðsynlega þurfti að koma til landsins á sem allra stystum tíma og ég fékk ekkert aukalega greitt fyrir þá vinnu. Það er kannski ekkert sérstaklega skynsamlegt af mér að viðurkenna þetta, en svona var þetta. Ég var einfaldlega svo áhugasöm um starf mitt að mér fannst þetta sjálfsagt. Innri umbunin var það sem ég sóttist eftir. Ég var full starfsgleði á þessum tíma en þá kom höggið – höggið sem ég rek til trúarbragðanna og er tilefni þessarar greinar.

Einn daginn þegar hafði verið brjálað að gera lengi var mér í lok starfsviku boðið far heim af samstarfsmanni – en ég átti aldrei bíl á þessum tíma – hafði engin efni á því. Ég þáði það með þökkum því ég var þreytt og fannst gott að vera boðið. Hann átti þó ekki eftir að verða mér neitt gleðiefni síðar meir, þessi stuttu bíltúr frá Héðinsgötu og heim til mín á Laugateig 21 haustið 1997.

Samstarfsmaður minn hafði nefnilega boðið mér far heim til þess að tilkynna mér þá niðurstöðu hópsins um „bætt innri samskipti“ vinnustaðarins TVG-ZIMSEN – að ég væri ástæðan fyrir slæmum móral á vinnustaðnum. Það var sem sagt niðurstaða hópsins. Slæmur mórall hjá TVG-ZIMSEN var tilkominn vegna mín – Signýjar Sigurðardóttur.

Ég get ekki einu sinni líst því hvaða áhrif þessi tilkynning hafði á mig. Enn þann dag í dag á ég erfitt með að rifja þetta upp. Ég fékk áfall. Áfall sem ég hef mörg síðustu ár viljað meina að megi flokka undir „áfallastreituröskun“. Ég veit ég hef enga sérfræðiþekkingu til að geta greint það en hef gert það samt, því það var svo rosalegt hvaða afleiðingar þessi orð höfðu á mig. Það var eins og kveikt hefði verið á rofa í höfðinu á mér – rofa sem ekki var hægt að slökkva á aftur. Starfsgleðin, sem áður hafði átt hug minn allan, varð að djúpu þunglyndi. Ég átti erfitt með að vakna á morgnana og ég átti erfitt með að brosa. Ég átti eiginlega erfitt með allt. Ég kynntist í sjálfri mér einhverri nýrri manneskju sem ég hafði engin kynni haft af áður.

Ég ákvað að hætta að bera ábyrgð á öllu mögulegu innan fyrirtækisins sem ég átti í raun ekkert að bera ábyrgð á. Það varð allt í einu erfitt verkefni að komast í gegnum daginn. Orkan, sem ég átti alltaf í ótæpilegu magni, hvarf eins og dögg fyrir sólu og ég átti í vandræðum með að komast gegnum daginn. Ég vissi ekkert hvaða manneskja þetta var – ég þekkti hana ekki.

Þarna hafði framkvæmdastjóri fyrirtækisins farið offari í því að taka nýjar stjórnunarhugmyndir viðskiptafræðinnar upp á sína arma og látið fólk hafa hlutverk sem það gat engan veginn staðið undir. Starfshópur um „bætt innri samskipti“ vinnustaðarins átti auðvitað aldrei að leiðast út í það að gera eina manneskju að sökudólgi fyrir slæmum móral á vinnustaðnum. Það var auðvitað út í hött. Fyrir utan hvað það var rangt þá var það svo ljótt.

Þetta hafði svo þær afleiðingar að ég varð fyrir einelti á vinnustaðnum um tíma og það þótti bara sjálfsagt. Þessi ástríðufulla kona átti ekki að fá að haga sér með þeim hvatvísa hætti sem hún átti til að gera og allt niður í lítil smáatriði í mínu fari fóru undir mæliker. Þetta var hryllilegur tími og mér algjörlega ný reynsla. Ég hafði alltaf haft þá sjálfsmynd að vera félagslega sterk. Ég vissi alveg að ég stuðaði fólk oft með eftirfylgni minni en það var bara hluti af mínum karakter og ég hafði engar áhyggjur af því.

Þetta leiddi hins vegar til þess að niðurrifsröddin kviknaði í höfðinu á mér og það reyndist enginn hægðarleikur að slökkva á henni aftur. Það hafði verið vakinn upp í mér einhver þáttur – þáttur sem trúði því að þessi niðurstaða samstarfshópsins væri rétt – ég væri einfaldlega ómöguleg – óalandi og óferjandi – og ég fór að verja mig með því að segja það við mig sjálf. Til að verða ekki fyrir áfalli – aftur – var best að vera viðbúin.

Með þessari grein langar mig til að opna á að það er ekki í lagi með margar af stjórnunaraðferðum viðskiptafræðinnar í Bandaríkjunum á 21. öld. Viðskiptafræði eru ekki sannleikurinn og hún heldur ekki á svarinu við lífsgátunni. Allir þessir frasar sem við erum uppfull af alla daga um „að glasið sé hálffullt en ekki hálftómt“ – að við eigum öll að „vera jákvæð“ og megum ekki vera neikvæð – allt talið um „skemmdu eplin“ o.s.frv., o.s.frv. Það er ekki í lagi með neitt af þessu og það er þörfin fyrir að segja það sem er undirliggjandi því að ég skrifa þessa grein.

Við erum nefnilega öll manneskjur. Við erum alin upp í alls konar aðstæðum og fáum í vöggugjöf mismunandi gjafir. Við erum allskonar og við megum vera allskonar. Við eigum ekki öll að vera stereótýpur af Stepford wives og það er ástæða til þess að segja það upphátt hátt og skýrt.

Þarna hjá TVG-ZIMSEN forðum var ein manneskja sem ég ætla að nafngreina – manneskja sem mér þykir svo undurvænt um – manneskja sem stóð upp fyrir mig og áttaði sig á hversu óeðlilegur og rangur dómur hópsins var og hún sá hvaða áhrif dómurinn hafði á mig. Kristín Sjöfn Valgeirsdóttir heitir hún. Hún sagði við samstarfskonu sína sem hafði verið í hópnum hversu mikið rugl þetta væri og hún talaði við framkvæmdastjórann og krafði hann um að gera eitthvað í málinu, sem hann svo gerði eftir langan tíma – þegar afleiðingarnar höfðu fengið að grassera í tvo mánuði.

Þá var loksins kallað til fundar – sameiginlegs fundar þar sem hópurinn allur – konurnar þ.e. – voru kallaðar saman til að ræða það hvað væri eiginlega í gangi á vinnustaðnum. Það var undarleg uppsetning en hún varð gagnleg og ég komst að því hvar þessi hugmynd að dómnum átti uppruna sinn. Ég hafði einhverju sinni hellt mér yfir samstarfskonu mína fyrir framan viðskiptavin fyrir að hafa ekki klárað tollafgreiðslu og það var undirliggjandi þessu öllu saman. Þessi manneskja hafði byggt upp innra með sér óvild gagnvart mér sem hún fékk útrás fyrir með þátttöku í þessum hópi um „bætt innri samskipti“ með því að gera mig að sökudólgi. Ég áttaði mig strax á því að hún færi örugglega með rétt mál og bað hana innilega afsökunar. Þar með var sá hluti málsins útkljáður.

En það sem þessi dómur hafði framkallað í höfðinu á mér var hins vegar ekki útkljáð eða búið. Þetta var dýrkeypt reynsla. Síðan þetta gerðist hef ég aldrei borið með mér biturð eða særindi út í einstaklinga vegna þessa. Þeir skipta engu máli í þessu samhengi í mínum huga. Það sem skiptir máli er hvað gerðist í höfðinu á mér og hvaða áhrif það átti eftir að hafa á heilsu mína og á líf mitt í áratugi eftir þetta. Það er svo áhugavert og segir svo mikla sögu. Hvað við getum verið viðkvæm og hvað orð geta haft miklar afleiðingar.

„Fræði“ sem innræta okkur að það sé í lagi að benda á einhvern einn í hópi og gera að sökudólgi fyrir öllu slæmu eru ekki fræði og það er ekki í lagi að við séum að ýta undir slíkar hugmyndir. Það er yfir höfuð ekki í lagi að ýta undir einelti eða útskúfun. Það er óheilbrigt og vont samfélag sem það gerir.

Það var ekki fyrr en árið 2016 – 19 árum eftir þennan atburð og í kjölfar algjör niðurbrots sem ég áttaði mig á heildarmyndinni – það var fyrst þá sem ég áttaði mig á mikilvægi setningarinnar „elska skaltu náunga þinn eins og sjálfan þig“.

Aðgát skal höfð í nærveru sálar.

Aðgát skal höfð í nærveru sálar

 „Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Svo oft leyndist strengur í brjósti, sem brast
við biturt andsvar, gefið án saka.
Hve iðrar margt líf eitt augnakast,
sem aldrei verður tekið til baka.“

Úr Einræðum Starkaðar eftir Einar Benediktsson.

Ég hef síðustu mánuði skrifað nokkrar greinar um starfsferil minn á íslenskum vinnumarkaði og ýmislegt honum tengt. Svo hætti ég því.

Mér var mikilvægt að skrifa hlutina í réttri röð og þetta sem ég birti núna þurfti að komast á blað, en birting  varð að bíða því samhengið var ekki til staðar. Nú er það komið.
Gulur september.

Ég hef sagt ykkur frá því að árið 2015 gekk ég í björg og í tvö ár þar á eftir þurfti ég að stríða við miklar áskoranir. Ég sé núna að það var hápunktur niðurrifstímabils sem hófst við þennan atburð árið 1997.

Ég hafði alla tíð litið á sjálfa mig sem mjög félagslega sterkan einstakling. Ég naut barnaskólaáranna og sé þau enn fyrir mér í ljósbjarma. Í gagnfræðaskóla sýndu samnemendur mér að þau höfðu mikla trú á mér og kusu mig sem fulltrúa sinn í nemendaráð öll þrjú árin. Ég var lítil þegar ég kom fyrst til Reykjavíkur, 16 ára, og settist á skólabekk í Kvennó, en ég var fljót að ná mér á strik og ég elskaði sannarlega síðustu tvö árin þar eins og ég hef gert grein fyrir.

Á vinnumarkaði var ég alla tíð sjálfstæð og örugg með mig og fékk endurgjöf í þá veru. Ég var „lausnamiðuð“ og kröftug manneskja og var heilt yfir vel liðin af samstarfsfólki (þótt auðvitað fyndust á því undantekingar eins og gengur) og elskuð af viðskiptavinum, svo ég leyfi mér að taka sterkt til orða. Það er meira að segja einhvers staðar í pappírum gjaldþrota fyrirtækisins Capacent til skoðanakönnun sem staðfestir það. Sennilega frá árinu 1998 en ég man það ekki svo glöggt.

Allt þetta segi ég hér því ég var manneskja sem leit svo á að ég ætti heiminn. Ég var alla jafna glaðsinna og það sem líklega er sagt í daglegu tali „jákvæð manneskja“ þó ég hafi á sama tíma alltaf verið gagnrýnin og sannarlega aldrei hrædd við að benda á hluti sem betur mættu fara.

Þessi einstaki atburður sem ég segi frá í greininni, sem skrifuð var í sumar, hafði afgerandi djúpstæð áhrif. Á mig, Signýju Sigurðardóttur, og líf mitt eftir það. Mér finnst það merkilegt og mig langar til að segja frá því.

Mér finnst það mun frekar styrkur að tala um veikleika sína en hitt, að fela þá. Ég held að öll höfum við okkar djöfla að draga og held líka að heimurinn væri betri ef við hættum að láta eins og manneskjur séu ekki manneskjur.

Ég hef lengi verið þess fullviss að viðskiptafræðin frá Bandaríkjunum eru ekki sannleikurinn. Ég held að fátt ,ef nokkuð, sé mikilvægara en að við áttum okkur á þeirri villu að við eigum ekki að ganga þeim trúarbrögðum á hönd.

föstudagur, 7. ágúst 2026

Hugleiðing á flugvelli

Sit hér á flugvelli í Mílanó og bíð eftir flugi heim. Var að ljúka lestri bókarinnar Jakaranda eftir Gaël Faye sem Angústúra hefur gefið út.

Tárin spruttu fram og ég missti út úr mér hljóð svo nærri manni ganga lýsingarnar í lok bókarinnar. Höfundurinn er hálfur Frakki og að hálfu frá Rúanda og segir fjölskyldusögu í bókinni – sögu sem snertir mann djúpt. Sögu um hryllinginn sem sem hægt er kalla fram í mannskepnunni og hefur verið gert í Rúanda og víðar í veröldinni og endurtekur sig ítrekað.

Hryllinginn sem felst í því aðgreiningunni í „okkur“ og „hina“. Aðgreiningu þar sem venjulegt fólk sem áður lifði saman í sátt og samlyndi tekur upp á því að hæðast að og uppnefna „hina“ – benda á þá og koma upp um þá hvar sem þeir eru staddir. Þessar sömu lýsingar hefur maður lesið í Þýskalandi nasismans, í Júgóslavíu frá fyrstu árum tíunda áratugarins þegar fiskimenn og bændur gerðust fjöldamorðingjar, í Ísrael og Palestínu, í Pakistan – já og svo miklu, miklu víðar.

Lýsingarnar eru alltaf eins. Það erum „við“ og svo eru það „hinir“. „Hinir“ eru stimplaðir og afmennskaðir. Í Rúanda voru þeir kallaðir „kakkalakkar“ og voru réttdræpir hvar sem til þeirra náðist. Karlar, konur og börn, heilu fjölskyldurnar – bútaðar niður með sveðjum og hent á haugana. Í dag þarf þetta fólk að finna leiðir til að búa saman í samfélagi. Það þurfti það líka að gera í Þýskalandi eftir stríð, Í lýðveldum Júgóslavíu eftir að hún sundraðist. Alls staðar er sagan eins. Mannskepnan er ekki betur gerð en svo að það er tiltölulega auðvelt að því er virðist að ýta undir hreina bilun þegar að þessu kemur. Að flokka okkur í „okkur“ og „hina“.

Þennan leik eru kónarnir í Bandaríkjunum að leika á hverjum einasta degi þessa dagana. Daglega eru sagðar af því fréttir að Trump forseti Bandaríkjanna, Vance, Hegseth, Rubio og þessir gæjar og þeirra fylgjendur séu að spúa eitri yfir lýðinn um að þessir og hinir séu ógeðslegt fólk.

Reglunum sem hefur tekið marga mannsaldra að byggja upp í hinum vestræna heimi hefur verið hent hraðar á haugana síðustu tvö ár en nokkurn tíma áður í mínu lífi.

Bandaríkin eru ekki ríki sem ég horfi til eða ber traust til lengur. Það er langur vegur þar frá.

Á sama tíma erum við Evrópusambandið á aðra höndina. Samband Evrópuríkja sem stofnað var til í þeim tilgangi að tryggja frið í álfunni eftir hryllilegar heimsstyrjaldir síðustu aldar. Samstarf sem átti að tryggja viðskiptatengsl ríkjanna þannig að aldrei aftur kæmi til styrjaldar milli þeirra. Þetta samband hefur þróast mikið og stækkað í áranna rás og telur núna 27 ríki.

Ég bý í samfélagi þar sem forystumönnum í viðskiptalífi finnst við hæfi að vera sífellt að hæðast að þessu sambandi. Þeir láta eins og allt vont komi frá Evrópu. Það nýjasta sem ég les núna á vef RÚV er þeir vilja ekki kannast við að eiga svo mikil viðskipti við Evrópuríki. Og ekki heldur í evrum. Nei þeirra markaður er Bandaríkin og gjaldmiðillinn dollar.

Ég hef í áratugi hlustað á forsvarsmenn í íslensku viðskiptalífi tala svona. Eins og kjána um Evrópusambandið. Það er langt síðan ég áttaði mig að orðræðuna sækja þeir til Íhaldsflokksins í Bretlandi. Þangað leita þeir fyrirmynda. Þeim finnst þeir menn að meiri að vera með hroka og yfirlæti gagnvart menningarríkjum Evrópu sem eiga sögu sem nær miklu lengra aftur en saga okkar.

Ég velti fyrir mér – gleðjast þessir menn yfir því þegar Sánches forsætisráðherra Spánar og Meloni forsætisráðherra Ítalíu fara í hár saman? Smjatta þeir í gleði sinni og vonast til að Evrópusambandið liðist í sundur? Yrði það gleðiefni? Fyrir okkur Íslendinga ef það gerðist? Auðvitað gæti það gerst. Allt getur gerst.

Með mann í forystu Bandaríkjanna sem róir að því öllum árum að brjóta upp Evrópusambandið og byggja undir endurreisn fasismans í Evrópu er það sannarlega mögulegt.

Ég hef starfað í íslensku viðskiptalífi alla mína starfsævi. Ég hef starfað í hringiðu milliríkjaviðskipta með vörur þar sem Evrópumarkaðurinn hefur sannarlega alltaf verið langstærstur. Ég skil ekki hvernig menn geta kosið sér að tala endalaust niður  gera lítið úr og samstarfsaðilum sínum. Ég játa að skil bara alls ekki þetta fyrirbæri.

Íslenskir karlar í viðskiptalífi virðast hafa einstaka þörf fyrir að berja sér á brjóst og telja sig yfir aðra hafna. Gera lítið úr öðrum. Ég veit ekki hvort þeir gera sér grein fyrir því hvers konar áhrif orðræða í þessa veru hefur á mann?

Hvaðan kemur þessi hroki? Þetta yfirlæti sem Íslendingar í viðskiptum telja sig hafa efni á að viðhafa?

Er viðskiptafræðin kirkja?

Ég hallast að því að svo sé – að viðskiptafræðin sé kirkja. Kirkja þar sem Mammon er Guðinn. Í morgun spurði ég Google hvernig við skilgre...