Bakþankar Fréttablaðsins í dag urðu mér tilefni til að setja nokkur orð á blað. Þar talar Anna Sigrún Baldursdóttir framkvæmdastjóri skrifstofu forstjóra Landsspítalans og kona sem ég ber alla jafna mikla virðingu fyrir með þeim hætti að ég sé ástæðu til.
Hún talar eins og nú sé orðinn til „einn sannleikur“ sem
enginn þarf að efast um eða hafa skoðanir á. Þau sem leyfa sér að efast um
„sannleikann“ eiga enga virðingu skilið og má gera lítið úr þeim með því að
tala um „fýlupósta“ og „fýlufærslur“ en eins og við öll vitum er fólk sem fer í
fýlu marklaust fólk og ber ekki að taka alvarlega.
Ég verð að játa að skrif í þessa veru eru til þess fallin
að það fýkur í mig. Ég velti fyrir mér hvort fólk sem almennt telur sig
uppfullt af lýðræðisást átti sig á því hversu mikill hroki felst í þessum
málflutningi? Er það í alvöru þannig að til þess bærir „sérfræðingar“ mega
einir tjá sig um sín sérfræðimálefni og má venjulegt fólk ekki hafa skoðanir á
því þegar þessir sömu sérfræðingar ætla að hefta frelsi þeirra? Búum við orðið
í samfélagi þar sem sóttvarnarlæknar einir mega tala um sóttvarnir og
veðurfræðingar einir um veður?
Hvers konar lýðræði er það?
Mér er misboðið og sé ástæðu til að láta það í ljós
opinberlega. Virðing fyrir skoðunum fólks virðist með tilkomu samfélagsmiðla
fara þverrandi. Það þykir sjálfsagt og eðlilegt að tala niður fólk sem lætur í
ljós að það hafi skoðanir og sé ekki sammála ríkisvaldinu um ýmislegt sem þetta
sama ríkisvald viðhefur til að hefta frelsi þeirra.
Það að ríkisvaldið hefti mjög frelsi fólks á þeim forsendum
að verið sé að vernda líf þess er aðgerð sem á sér margar hliðar. Sóttvarnir og
sóttvarnarsjónarmið eru ekki sannleikurinn. Sókrates vissi fyrir meira en 2.400
árum síðan að mannleg viska væri lítils virði og við mættum svo gjarna hafa þau
orð meira í heiðri nú á dögum. „Vísindi“ eru ekki „sannleikurinn“, hvorki þá
eða í dag eða nokkurn tíma. Það má hafa af þeim gagn og þau eru mikilvæg en þau
eru ekki sannleikurinn.
Að almannavarnir taki ákvörðun um að gefa út viðvörun sem verður
til þess að skólum er lokað er ákvörðun sem hefur grundvallaráhrif á líf
venjulegs fólks. Það er sjálfsagt að þau geri það. Það er jafn sjálfsagt að
venjulegt fólk hafi skoðanir á því og setji spurningamerki við það. Og það sem
meira er – þetta „venjulega fólk“ getur haft heilmikið til síns máls.
Veðurfræðingar eru ekki handhafar sannleikans frekar en
sóttvarnarlæknir. Ekki heldur sérfræðingar um almannavarnir. Það er fullkomlega
eðlilegt og sjálfsagt að setja spurningamerki við vilja þessara sérfræðinga í
aðstæðum eins við upplifðum í upphafi vikunnar. Má ég biðja um að það fólk fái
að njóta virðingar fyrir þær skoðanir sínar?
Sérfræðiþekking gefur engum heimild til að láta eins og viðkomandi
sé handhafi sannleikans. Allt orkar tvímælis sem gert er og það er sjálfsagt og
eðlilegt að efast um hvaðeina.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli